Fréttablaðið - 27.05.2013, Blaðsíða 48
27. maí 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 20
Víkingur Ó. (4-4-2): Einar Hjörleifsson 6 - Emir
Dokara 6, *Damir Muminovic 7, Tomasz
Luba 6, Insa Bohigues Fransisco 6 - Brynjar
Kristmundsson 6 (80., Fannar Hilmarsson -), Björn
Pálsson 7, Abdel-Farid Zato-Arouna 6, Eldar Masic
6 - Arnar Már Björgvinsson 5 (61., Steinar Már
Ragnarsson 6), Guðmundur Steinn Hafsteinss. 6.
ÍBV (4-4-2): Guðjón Orri Sigurjónsson 6 - Arnór
Eyvar Ólafsson 5, Brynjar Gauti Guðjónsson
7, Eiður Aron Sigurbjörnsson 6, Matt Garner
6 - Tonny Mawejje 6, Gunnar Þorsteinsson 5,
Ian Jeffs 5, Bradley Simmonds 6 (53., Aaron
Spear 5) - Gunnar Már Guðmundsson 7, Víðir
Þorvarðarson 6.
Skot (á mark): 6-9 (2-2) Horn: 2-6
Varin skot: Einar 2 - Guðjón Orri 2.
0-0
Ólafsvíkurvöll.
620 áhorfendur
Valgeir
Valgeirsson (7)
PEPSI DEILDIN 2013
STAÐAN
FH 5 4 1 0 9-2 13
KR 4 4 0 0 9-1 12
Valur 5 3 2 0 11-4 11
ÍBV 5 2 2 1 6-4 8
Stjarnan 4 2 1 1 6-5 7
Breiðablik 4 2 0 2 9-7 6
Þór 5 2 0 3 6-11 6
Fram 4 1 2 1 4-5 5
Keflavík 5 1 1 3 6-11 4
ÍA 5 1 0 4 4-8 3
Fylkir 5 0 2 3 5-10 2
Víkingur Ó. 5 0 1 4 3-5 1
Mörkin: 1-0 Haukur Páll Sigurðsson (18.), 2-0
Rúnar Már Sigurjónsson (60.), 3-0 Rúnar Már
Sigurjónsson, víti (69.), 4-0 Kolbeinn Kárason (78.).
Valur (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson 7 - James Hurst
5 , Magnús Már Lúðvíksson 6, Stefán Ragnar
Guðlaugsson 5, Bjarni Ólafur Eiríksson 6 - Haukur
Páll Sigurðsson 7, *Rúnar Már Sigurjónsson 8,
Ian Williamson 5 - Matthías Guðmundsson 4 (77.,
Kolbeinn Kárason -), Kristinn Freyr Sigurðsson
7 (70., Andri Fannar Stefánsson 5), Björgólfur
Takefusa 5 (85., Arnar Sveinn Geirsson -).
Keflavík (4-3-3): David Preece 4, Benis Krasniqi
3, Haraldur Freyr Guðmundsson 4, Halldór
Kristinn Halldórsson 4, Samúel Kári Friðþjónsson
4, - Sigurbergur Elísson 5 (57., Magnús Þórir
Matthíasson 5), Frans Elvarsson 5 (80., Magnús
Þór Magnússon -), Arnór Ingvi Traustason 5 -
Hörður Sveinsson 3, Jóhann Birnir Guðmundsson
5 (75., Elías Ómarsson -), Marjan Jugovic 4.
Skot (á mark): 9-10 (6-3) Horn: 6-3
Varin skot: Fjalar 2 - Preece 2.
4-0
Vodafonevöll.
1067 áhorfendur
Garðar Örn
Hinriksson (7)
PEPSI DEILDIN 2013
NÆSTU LEIKIR
Mánudagur 27. mai: 19.15 Fram - Stjarnan
20.00 KR - Breiðablik. Sunnudagur 2. júní:
17.00 ÍBV - Fylkir. Sunnudagur 9. júní: 18.00
Þór - Valur, 19.15 ÍA - Stjarnan. Mánudagur
10. júní: 19.15 FH - KR, Breiðablik - Víkingur
Ó. , Keflavík - Fram.
Mörkin: 1-0 Sjálfsmark Jan Mikel Berg (51.), 2-0
Atli Guðnason (64.)
FH (4-3-3): Róbert Örn Óskarsson 6 - Jón Ragnar
Jónsson 7, Guðmann Þórisson 7, Freyr Bjarnason
5 (40., Brynjar Ásgeir Guðmundsson 5), Sam
Tillen 6 (84., Viktor Örn Guðmundsson -) - Björn
Daníel Sverrisson 7, Dominic Furness 6, Emil
Pálsson 6 (54., Kristján Gauti Emilsson 7) - Ólafur
Páll Snorrason 4, *Atli Guðnason 7, Atli Viðar
Björnsson 5.
ÍA (4-3-3): Páll Gísli Jónsson 7 - Theodore Furness
4, Kári Ársælsson 4, Ármann Smári Björnsson 4,
Jan Mikel Berg 3 - Arnar Már Guðjónsson 6, Hallur
Flosason 5 (72., Einar Logi Einarsson -), Maksims
Rafalskis 6 - Joakim Wrele 5, Andri Adolphsson 6
(79., Aron Ýmir Pétursson -), Eggert Kári Karlsson
6 (72., Þórður Birgisson -).
Skot (á mark): 12-10 (6-4) Horn: 10-4
Varin skot: Róbert 3 - Páll Gísli 4
2-0
Kaplakrikavöll.
1437 áhorfendur
Þorvaldur
Árnason (7)
Mörkin: 0-1 Edin Beslija (19.), 0-2 Jóhann
Þórhallsson (49.), 0-3 Chukwudi Chijindu (66.), 0-4
Sigurður Marinó Kristjánsson (72.), 1-4 Viðar Örn
Kjartansson (85.).
Fylkir (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 4 -
Tómas Þorsteinsson 4, Andri Þór Jónsson 3,
Sverrir Garðarsson 4, Ásgeir Eyþórsson 3 - Finnur
Ólafsson 4 (70., Egill Trausti Ómarsson 5), Davíð
Þór Ásbjörnsson 5, Heiðar Geir Júlíusson 4
(56., Oddur Ingi Guðmundsson 5) - Kristján Páll
Jónsson 5, Tryggvi Guðmundsson 3 (83., Hákon
Ingi Jónsson -), Viðar Örn Kjartansson 6.
Þór Ak. (4-3-3): Srdjan Rajkovic 7 - Andri Hjörvar
Albertsson 7, Hlynur Atli Magnússon 7, Janez
Vrenko 6 (77., Atli Jens Albertsson -), Ármann
Pétur Ævarsson 6 - Edin Beslija 6, Orri Freyr
Hjaltalín 7, Mark Tubæk 7 (46., Sigurður Marinó
Kristjánsson 6) - Sveinn Elías Jónsson 6 (46.,
Jóhann Helgi Hannesson 8), *Jóhann Þórhallsson
8, Chukwudi Chijindu 7.
Skot (á mark): 12-7 (6-5) Horn: 7-0
Varin skot: Bjarni Þórður 1 - Rajkovic 4
1-4
Fylkisvöllur
Óuppgefið.
Kristinn
Jakobsson (8)
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
SPORT
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Serpo 261 trefjamúr
Fyrir múrkerfi
Weber Milligróf
múrblanda
Weber staurasteypa
(stolpebeton)
Maxit Steiningarlím
Hvítt og grátt
Weberdur 120 (Ip 14)
inni & útimúr
Weber REP 980
þéttimúr grár
Weber Gróf
Múrblanda
Deka Latexgrunnur
Deka Acryl
Hágæða múrefni frá Múrbúðinni
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið má-fö kl. 8-18
Akureyri Óseyri 1. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-14
Vestmannaeyjar Flötum 29. Opið má-fö kl. 8-18
FÓTBOLTI Veikleika er ekki
að sjá á KR-ingum í upphafi
Íslandsmótsins, þeir eru með fullt
hús, hafa skorað meira en tvö
mörk að meðaltali í leik og haldið
hreinu í þremur síðustu leikjum
sínum. Frá árinu 1977 hafa aðeins
sjö lið verið með betri markatölu
eftir fjóra leiki og það er margt
sem bendir til þess að KR-liðið sé
í meistaraham og hungrað eftir
ófarirnar í fyrra.
Mótherjar kvöldsins eru Blikar
sem hafa verið sveiflukenndir
í fyrstu umferðunum en verða
helst að fá eitthvað út úr leiknum í
kvöld ætli Ólafur Kristjánsson og
lærisveinar hans ekki að heltast úr
lestinni í titilbaráttunni.
KR er með tveggja stiga forskot
á FH og kannski finnst einhverjum
það vera skrýtin fullyrðing að þeir
verði að vinna leikinn á KR-velli
í kvöld. Sagan segir hins vegar
að KR verði að vinna sigur í
kvöld eigi 26. titilinn að rata í
Frostaskjólið.
KR er fjórtánda liðið sem vinnur
fjóra fyrstu leiki sína frá því að
liðin fóru að leika heima og heiman
sumarið 1959. Þeir voru þeir
fyrstu til að afreka slíkt sumarið
1959 en KR-liðið setti þá met sem
aldrei verið slegið, aðeins jafnað
þegar þeir unnu alla leiki sína á
Íslandsmótinu. Síðan eru liðin 54
ár og nú voru KR-ingar sjálfir
fyrst að endurtaka leikinn, það er
vinna fyrstu fjóra leiki sína.
Mikilvægi fimmta leiksins
fer ekki framhjá neinum sem
skoðar tölfræði Íslandsmótsins á
þessum 54 árum. Ekkert liðanna
fimm sem hefur tapað stigum í
fimmta leik eftir sigra í fjórum
fyrstu leikjunum hefur orðið
Íslandsmeistari um haustið.
Fjögur þeirra voru reyndar nálægt
því, með því að vinna silfrið en
nýjasti meðlimurinn í hópnum,
ÍA-liðið frá því í fyrra, gaf mikið
eftir þegar leið á sumarið.
Sex af átta liðum sem hafa
verið með fullt hús eftir fimm
leiki hafa aftur á móti orðið
Íslandsmeistarar. Í öðru af þeim
tveimur tilfellum sem það klikkaði
unnu tvö lið fyrstu fimm leiki
sína (FH og Valur 2005) en í hitt
skiptið komu Keflvíkingar (1997)
gríðarlega á óvart með því að
vinna fyrstu sex leiki sína (spáð 7.
sætinu) en náðu síðan aðeins í sex
stig í síðustu tólf leikjum sínum.
KR-ingar koma því ekki mikið á
óvart með því að berjast um titil-
inn og engu öðru liði hefur tekist
að fylgja þeim eftir í upphafi móts.
Þetta blasir því við Vesturbæing-
um svart á hvítu, þeir verða að
vinna í kvöld.
ooj@frettabladid.is
Verða að vinna í kvöld
KR-ingar eru með fullt hús eft ir fj órar umferðir í Pepsi-deild karla og hafa ekki
byrjað betur í 54 ár. Fyrir lið í sömu stöðu hefur fi mmti leikurinn skipt öllu máli
í gegnum tíðina. Blikar koma í heimsókn á KR-völlinn í kvöld.
HVAÐ GERIST ÞEGAR ÞESSIR FARA ALMENNILEGA Í GANG? KR-ingar eru búnir
að skora níu mörk í fyrstu fjórum leikjunum en flestir telja að liðið eigi mikið inni
hjá þeim Óskari Erni Haukssyni og Gary Martin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN OG DANÍEL
Fimmti leikur liða
með fullt hús: (1959-2012)
Sigur í fimmta leik
FH 2006 Íslandsmeistari
FH 2005 Íslandsmeistari
Valur 2005 2. sæti
Keflavík 1997 6. sæti
ÍA 1995 Íslandsmeistari
Valur 1978 Íslandsmeistari
Keflavík 1973 Íslandsmeistari
KR 1959 Íslandsmeistari
Jafntefli eða tap í fimmta leik
ÍA 2012, jafntefli 6. sæti
Keflavík 2008, tap 2. sæti
FH 2007, jafntefli 2. sæti
Fram 1980, jafntefli 2. sæti
ÍA 1961, tap 2. sæti
HANDBOLTI Íslenska kvennalandsliðið tapaði öllum þremur leikjum sínum á
Nettbuss Open-æfingamótinu í Gautaborg um helgina en liðið var nálægt því
að vinna Serbíu í lokaleiknum sem tapaðist aðeins með einu marki, 21-22.
„Þetta mót var frábær undirbúningur fyrir Tékkaleikinn um næstu helgi.
Það fengu allir að spreyta sig og við náðum að fínpússa ýmsa hluti. Það var
kannski gott að fá þennan skell á móti Noregi svo að við gætum hugsað okkar
gang. Það mætti allt annað lið til leiks á móti Serbum og við sýndum þá okkar
rétta andlit. Það var fúlt að ná ekki sigri en heilt yfir var þetta flott mót og
topp andstæðingar,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir
Íslenska liðið mætir Tékklandi í fyrri umspilsleiknum um næstu helgi. „Ég
er þokkalega bjartsýn. Þetta er skemmtilegur hópur og ég er viss um að það
verður gaman um næstu helgi,“ sagði Rakel. Íslenska liðið lenti í riðli með
Frakklandi, Slóvakíu og Finnlandi þegar dregið var í undankeppni EM 2014 í
gær. „Það er klárt markmið hjá okkur að komast áfram og við eigum góðan
möguleika á því. Við hefðum alveg getað fengið verri andstæðinga.“ - óój
Kannski gott að fá þennan skell á móti Noregi
RAKEL DÖGG Segir liðið hafa grætt
mikið á mótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Íslandsmeistarar Þór/KA unnu sér inn þrjú stig á Val-
bjarnarvellinum í gær eftir 4-1 sigur á Þrótti í fyrsta
leik fimmtu umferðar Pepsi-deildar kvenna. Það
kostaði þó sitt því Sandra María Jessen fór meidd
af velli strax á 25. mínútu. Sandra María tognaði
aftan í læri og verður að hvíla næstu vikurnar.
Með þessu er sá möguleiki að Sandra vinni sæti í
EM-hópi Íslands kannski úr sögunni. Petrea Björt
Sævarsdóttir kom Þrótti í 1-0 á 59. mínútu en
Mateja Zver jafnaði metin á 62. mínútu og Lillý Rut
Hlynsdóttir kom Þór/KA yfir mínútu síðar. Katla Ósk
Káradóttir, sem kom inn á fyrir Söndru, skoraði þriðja
markið á 78. mínútu og Katrín Ásbjörnsdóttir innsiglaði
svo sigurinn.
Sandra María meiddist
í sigri Þór/KA