Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 8

Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 8
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 VIÐSKIPTI Ráðgjafarhópur iðnaðar- ráðherra um lagningu raf- sæstrengs til Evrópu leggur til að hafnar verði viðræður við breska aðila um tengingu á raforku kerfum landanna. Ráðgjafarhópurinn skil- aði í gær skýrslu til ráðherra með tillögum sínum og niðurstöðum greiningar á þjóðhagslegri hag- kvæmni slíkrar framkvæmdar. Í skýrslu um heildstæða orku- stefnu fyrir Ísland er sett fram það markmið að einangr- un íslenska raforku- k e r f i s i n s v e r ð i rofin með lagningu sæstrengs til Evrópu ef og þegar slík fram- kvæmd reynist þjóð- hagslega hagkvæm. Með hliðsjón af því markmiði skipaði Oddný G. Harðar- dóttir, þáverandi iðn- aðarráðherra, í júní 2012 ráðgjafarhóp sem kanna átti nánar þjóðhagslega hag- kvæmni slíkrar fram- kvæmdar auk þess að fjalla um tæknileg álitaefni og umhverfis- áhrif verkefnisins. Fékk hópurinn Hagfræðistofn- un Háskóla Íslands (HHÍ) til þess að vinna úttekt á þjóðhagslegum áhrifum rafsæstrengs og var sú úttekt kynnt í gær. Niðurstaða úttektarinnar er sú að tenging raforkumarkaða Íslands og Evrópu leiði til hag- kvæmari vinnslu og dreifing- ar en ella. Þá telur HHÍ að nettó útflutnings tekjur þjóðarbúsins geti aukist um 4 til 76 milljarða króna með sölu á raforku til Evr- ópu en vegna þess að stærst- ur hluti íslenskra raforkufyr- irtækja er í opinberri eigu geta verulegar skatt- og arð- greiðslur runnið frá raforku- fyrirtækjum til ríkisins. Þá er heildarávinningur þjóðarbúsins tal- inn jákvæður þó að raforkuverð á Íslandi gæti hækkað. Þessar niður stöður eru þó mikilli óvissu háðar þar sem þær byggja á for- sendum um orkuverð, orkumagn, lengd raforkusölusamn- inga, eignarhald og fleira. Óvissa ríkir um alla þessi þætti og því varasamt að draga of miklar álykt- anir af niður stöðunum. HHÍ og ráðgjafarhópnum sömu- leiðis finnast þær vísbendingar um að framkvæmdin geti verið hag- kvæm þó nægjanlega sterkar til að halda áfram könnun á verkefninu. Þannig leggur ráðgjafarhópur- inn meðal annars til að greiningu á þjóðhagslegri hagkvæmni verk- efnisins verði haldið áfram og að upplýsinga sem varpað geti skýr- ara ljósi á málið verði aflað. Þá verði metin áhrif þess á rekstrar- skilyrði atvinnugreina sem ætla má að verkefnið hefði áhrif á. Hópurinn telur einnig að iðnaðar ráðuneytið eða Orku- stofnun ættu að greina sviðs- myndir mögulegrar orkuöflunar og að leiðir til fjármögnunar verk- efnisins verði kannaðar. Þá telur hann að hefja ætti viðræður við breska aðila um málið. Í því felst annars vegar að Landsnet, ásamt Landsvirkjun, fái heimild til viðræðna við rekstrar- aðila raforkukerfis Bretlands og bresku orkustofnunina, Ofgem, um tenginu raforkukerfa land- anna. Og hins vegar að ráðuneytið hefji könnunarviðræður við bresk stjórnvöld með hvaða hætti sala á íslenskri orku gæti fallið undir breska löggjöf um ívilnanir fyrir endurnýjanlega orku. magnusl@frettabladid.is Raforkusala um sæstreng hagkvæm en óvissa mikil Ráðgjafarhópur iðnaðarráðherra um lagningu sæstrengs til Evrópu leggur til að hafnar verði viðræður við breska aðila um tengingu raforkukerfa landanna. Hagkvæmniskýrsla bendir til að tenging sé arðbær en óvissa er mikil. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að niður- stöður og tillögur ráðgjafarhópsins verði nú teknar til vandlegrar skoðunar. „Við munum nú fara yfir efni skýrslunnar hér í ráðuneytinu– en í henni koma fram ýmsar spurningar sem leita þarf svara við. Nefndin telur til dæmis ekki hægt að fullyrða á þessu stigi hvort verkefnið sé þjóðhagslega hagkvæmt og því þurfi augljóslega að kanna þau mál frekar áður en lengra væri haldið. Eins eru atriði varðandi orkuöflun og orkunýtingu, virkjanir og raflínur, verð til íslenskra heimila og fyrirtækja, umhverfisþætti og fleira sem þarf að kanna frekar,“ segir Ragnheiður Elín. Leita þarf svara við ýmsum spurningum RAGNEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR ÁSTRALÍA, AP Kevin Rudd vann sigur í óvæntu leiðtogakjöri ástr- alska Verkamannaflokksins, sem Julia Gillard forsætisráðherra efndi til í gær. Gillard ákvað að efna til leið- togakjörs eftir að henni barst til eyrna að Rudd myndi reyna að endurheimta leiðtogasætið fyrir þingkosningar, sem haldnar verða í haust. Rudd tók áskoruninni fegins hendi og tókst að sannfæra flokksfélaga þeirra um að flokks- ins biði hroðalegt tap í þingkosn- ingunum ef Gillard yrði áfram við stjórnvölinn. Rudd hlaut 57 atkvæði en Gillard 47. - gb Leiðtogakjör í Ástralíu: Rudd vann sigur á Gillard KEVIN RUDD OG JULIA GILLARD Hafa þrisvar áður barist um leiðtogasætið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SÝRLAND, AP Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hefur kostað meira en 100 þúsund manns lífið undan- farna 27 mánuði, að því er aðgerðasamtök er fylgjast grannt með mannfallinu fullyrða. Samtökin nefnast Sýrlenska mannréttindaeftirlitið og hafa höfuðstöðvar í Bretlandi. Sam- kvæmt heimildum þeirra hafa nærri 37 þúsund almennir borg- arar látið lífið í þessum hildar- leik. Fyrr í mánuðinum sögðust Sameinuðu þjóðirnar hafa heim- ildir fyrir því að í það minnsta 93 þúsund manns hefðu látist í átök- unum, þar af að minnsta kosti 6.300 börn. - gb Mannfall eykst í Sýrlandi: Yfir hundrað þúsund látnir UPPREISNARMENN Í SÝRLANDI Átökin hafa staðið yfir í 27 mánuði. NORDICPHOTOS/AFP ÞÝSKALAND „Það væri okkur mikil ánægja að geta boðið Ísland vel- komið sem hluta af Evrópu- sambandinu.“ Þetta sagði Joachim Gauck, forseti Þýskalands, í borð- ræðu sinni í hátíðarkvöldverði með forseta Íslands í fyrrakvöld. Gauck sagði Þýskaland hafa stutt aðild Íslands „af fullum þunga“. Hann tók þó fram að hann vissi að Íslendingar væru klofnir í afstöðu sinni til ESB-aðildar og að fram undan væri ákvörðun um framhald viðræðnanna. Í niðurlagi sagðist Gauck von- ast til þess, hvernig sem ákvörðun ríkis stjórnarinnar yrði, að haldið yrði áfram uppbyggilegu sam- starfi við Ísland, „hvort sem það verður undir formerkjum aðild- ar að Evrópu sambandinu eða sem áframhaldandi samstarf innan nú- verandi ramma evrópska efnahags- svæðisins.“ - þj Forsetahjónin í veislu hjá forseta Þýskalands: Væri mikil ánægja að fá Ísland í ESB Á GÓÐRI STUND Forsetahjónin hittu þýsku forsetahjónin í opinberri heimsókn til Berlínar. MYND/RUT SIGURÐARDÓTTIR NOREGUR Sumarbústaðareigandi í Søgne fyrir utan Kristiansand í Noregi verður að greiða 800 þúsund norskra króna í bætur og 140 þúsund krónur í málskostnað, jafngildi um 20 milljóna íslenskra króna, fyrir að hafa fellt 14 furu- tré án leyfis. Trén felldi hann til þess að tryggja sér betra útsýni frá bústaðnum sínum. Samtök sumarbústaðaeigenda á svæðinu höfðuðu einkamál og kröfðust bóta, að því er greint er frá í norskum fjölmiðlum. - ibs Felldi fjórtán furutré: Gert að greiða 20 milljónir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.