Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 18

Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 18
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18 Aðeins fjögur prósent allra þeirra 404 reiðhjóla sem könnuð voru í fimmtán stærstu verslununum á höfuðborgarsvæðinu stóðust alveg reglugerð um búnað reiðhjóla, að því er segir í fréttatilkynningu frá Brautinni – bindindisfélagi ökumanna. Þar segir jafnframt að í núverandi reglugerð frá 1994 sé gert ráð fyrir að eftirfarandi búnaður sé á öllum reiðhjólum: Bjalla, glitmerki að framan og aftan, glitmerki á fótstigum, teinaglit, bremsur á fram- og afturhjóli, keðjuhlíf og lás. Í rökkri og myrkri skal einnig hafa ljós að framan og aftan. Við könnun Brautarinnar kom oft í ljós að seljendur þekktu ekki reglugerðina. FJÖGUR PRÓSENT NÝRRA HJÓLA STANDAST REGLUGERÐ Neytendastofa ítrekar þau til- mæli sín að forráðamenn taki strax úr notkun trampólín með öryggisneti sem seld voru árið 2011 í Byko. Vörunúmerið er 88040048. Enn er ekki búið að skila 66 trampólínum af 220 sem seld voru. Á vef Neytenda- stofu segir að mikilvægt sé að forráðamenn bregðist við hið fyrsta í ljósi hættunnar sem kann að stafa af vörunni en suðusamsetning getur gefið sig og trampólínið þar með brotnað. HÆTTULEG TRAMPÓ- LÍN ENN Í NOTKUN Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, matgæðingur og útvarpskona, segist fyllast hamingju þegar fyrsta rabarbarauppskeran er komin í hús. „Þá á maður að halda veislu. Þetta varð svo gaman þegar maður uppgötvaði að hægt væri að gera eitthvað annað við rabarbara en að stela honum úr görðum og borða hann með sykri.“ Nú er Sigurlaug með rabarbara í sínum eigin görðum, heima og við sumarbústaðinn. „Þar er ég með rabarbara frá Hesteyri fyrir vest- an og svo tek ég líka uppskeru á Halldórsstöðum í S-Þingeyjar- sýslu. Báðar þessar tegundir eru gamlar og mér líður stundum eins og vínbónda sem er að pæla í upp- skerunni sinni.“ Hún tímir ekki að setja fyrstu uppskeru sumarsins í frysti. „Ég bý þá til sultu og pæ. Svo er líka gott að grilla rabarbara og hafa með kjöti. Þegar maður er búinn að gera rabarbararétti nokkr- um sinnum yfir sumarið verður maður rólegri. Þá er hægt að fara saxa niður, setja kíló í poka og í frysti.“ Uppskriftirnar hennar Sigur- laugar eru úr ýmsum áttum. „Fyrir mörgum árum gaf Albert Eiríksson mér uppskrift að bestu rabarbaraköku í heimi. Hann kom með hana glóðvolga í þátt til mín og við ræddum þessa köku og borðuðum með bestu lyst. Síðan þá hef ég ekki fundið rabarbaraköku sem toppar hana, en ég er alltaf að reyna, og hér er ein tilraun. Einföld rabarbarakaka með hindberjum 2 dl hveiti 2 msk. sykur 2 dl gróft kókosmjöl 75-90 g smjör 2 tsk. vanillusykur 350 g rabarbari (4-5 stilkar) 150 g fersk hindber 1 msk. kartöflumjöl 1/2 dl sykur Hitið ofninn í 225 gráður. Blandið þurrefnum saman og bætið svo smjöri út í, vinnið deigið í mat- vinnsluvél. Skerið rabarbara í litla bita og setjið í pæform ásamt hindberjum. Stráið kartöflumjöli og sykri yfir rabarbarann og hindberin. Hellið blöndunni yfir og bakið í ofni í 25 mínútur. Berið fram með ís eða vanillurjóma. „Listamaðurinn Þorri Hrings- son gaf mér dásamlega uppskrift að sultu úr rabarbara og kræki- berjum, ég var nú eitthvað efins með þessa blöndu, vilja ekki bara krummarnir borða krækiberin? En þegar þau eru bústin og falleg og tínd t.d. í Suður-Þingeyjarsýslu þá er þetta auðvitað algjör unaður, sultan verður svolítið sparileg og falleg á litinn, mjúk og ótrúlega góð. (Sérstaklega með fransk- brauði!) Sulta málarans 500 g rabarbari 300-400 g krækiber 700 g sykur/hrásykur Öllu blandað saman og soðið þar til sultan þykknar. Setjið í vel hreinar krukkur, geymið í kæli eða bara borðið strax! Rabarbarasaft (í 10 glös) 500 g rabarbari 150 g hrásykur 1 l vatn 1 sítróna lífræn Skerið rabarbara í bita og blandið saman sykri, vatni og sítrónu sem er skorin í bita. Sjóðið í 5 mínútur, slökkvið undir og látið bíða í 30 mínútur. Hellið í gegnum sigti og þrýstið vel á rabarbarann svo allur safinn skili sér. Bætið klaka út í og nokkrum mintulaufum og þá er kominn sumarlegur drykkur sem minnir kannski örlítið á gamla æsku. Sulta málarans og aðrar kræsingar Sigurlaug Margrét Jónasdóttir er hætt að stela rabarbara úr annarra manna görðum. Nú ræktar hún sjálf tröllasúruna og býr til margs konar kræsingar. Hún lumar á uppskrift að bestu rabarabaraköku í heimi. RABARBARABAKA Hindberjum er blandað saman við tröllasúruna. FYLLIST HAMINGJU Sigurlaug Margrét Jónasdóttir heldur veislu þegar rabarbarinn er kominn í hús. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hrím Hönnunarhús á Laugavegi 25 hefur vakið mikla athygli fyrir nýstárlega hönnun sína síðan það var stofnað um miðbik árs 2011. Nú hafa þau hafið sölu á umhverf- isvænum töskuhlífum fyrir ferðatöskur frá merkinu LOQI. Hlífarnar verja töskuna fyrir óhreinindum og hjálpa ferðalöngum að þekkja sína tösku á færibandinu en ábreiðurnar eru til í sex mismunandi mynstrum. Efnið er vatns- helt og auðvelt að skella því í þvottavél. TÖFF TÖSKUHLÍFAR Mikilvægasti fundur atvinnuvegar síðari hluta árs // ómis- sandi vettvangur fyrir pantanir vetra- og jólaviðskipta // innsýn í strauma og stefnur vorsins // mikil fjölbreytni heimilis- og gjafavara // þekktustu merkin og mikilvægustu alþjóðlegu sölu- og viðskiptaaðilarnir // fyrir allar tegundir viðskipta Sími: +45 39 40 11 22 // dimex@dimex.dk >> Hér eru 50 mikilvægustu ástæðurnar til að heimsækja Tendence tendence-50reasons.com perfect date // perfect time new 24 –27. 8. 2013 Saturday – Tuesday

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.