Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 22
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 22
Hluthafafundur Framtaks-sjóðs Íslands samþykkti í vikunni sérstaka arð-greiðslu upp á 5,6 millj-arða króna. Með greiðsl-unni hefur sjóðurinn greitt
út til eigenda sinna 17,3 milljarða króna,
meira en helming af öllu inn kölluðu
hlutafé sjóðsins. Eigendur sjóðsins
eru 16 lífeyrissjóðir auk Landsbanka
Íslands og VÍS.
„Fram til þessa höfum við fjárfest
32 milljarða og eigum eftir 22. Það eru
þau loforð sem eigendurnir skuldbundu
sig til að leggja til sjóðsins,“ segir Þor-
kell Sigurlaugsson, stjórnarformaður
Framtakssjóðsins. Hann bendir á að
með arðgreiðslunni nú hafi sjóðurinn
endurgreitt meira en helminginn af öllu
innkölluðu hlutafé.
„Um áramót voru eignir sjóðsins bók-
færðar á 29 milljarða króna, en mats-
virði þeirra var 46 milljarðar. Þannig
mikið er eftir inni af verðmætum gangi
áætlanir okkar um þessi fyrirtæki eftir.
Við horfum á næstu ár sem mjög góð
fyrir sjóðinn áfram.“
Sjóðurinn markaði tímamót
Hlutverk Framtakssjóðsins segir Þor-
kell fyrst og fremst hafa verið að endur-
reisa íslenskt atvinnulíf og vera þátttak-
andi í því eftir hrun. Koma fyrirtækjum
út úr bankakerfinu og láta ekki staðar
numið við að fjárfesta í fyrirtækjum,
heldur breyta þeim og efla og koma þeim
á hlutabréfamarkað eða selja þau.
„Þetta var nýjung því lífeyrissjóðir
höfðu almennt áður fjárfest án þess að
beita sér mikið innan fyrirtækja með
sama hætti og við höfum gert.“
Þorkell segir sjóðinn með verkum
sínum hafa slegið á gagnrýnis raddir
sem heyrðust í upphafi um að með
stofnun hans væri búið til gríðarstórt
valdabatterí. Eignir hafi verið seldar
að endur skipulagningu og upp byggingu
lokinni og fjármunirnir sem til hafi
orðið runnið beint til eigenda sjóðsins.
En vitanlega hafi ýmis mál tekið á, svo
sem þegar taka þurfti afstöðu til þess
hvort selja ætti Icelandic í einu lagi eða
ekki. „Þá var á endanum ákveðið að selja
ákveðna starfsemi og verksmiðjur sem
ekki hentuðu inn í reksturinn.“ Eftir
stendur traust félag auk um það bil 75
milljón evra sem nýtast geta til erlendra
fjárfestinga.
Eins segir Þorkell vel hafa tekist
til við söluna á Húsasmiðjunni, en á
sínum tíma hafi aðkoma sjóðsins að
fyrir tækinu verið gagnrýnd harðlega
og sumir jafnvel lýst þeirri skoðun að
réttast væri að láta fyrirtækið fara í
þrot. „Við hins vegar seldum félagið til
erlendra aðila sem eru að byggja það upp
og í samkeppni við þá sem fyrir eru á
þessum markaði.“ Það er einnig mikill
ábyrgðarhluti að láta félag fara í þrot til
dæmis gagnvart starfsmönnum þegar
aðrar leiðir eru færar.
Sama hafi átt við um Icelandair og
talað um það þegar sjóðurinn keypti í
félaginu á genginu 2,5 að fjárfestingin
væri slæm. „Um það talar enginn í dag
þegar gengið er komið í 13 og félagið
orðið gífurlega öflugt,“ segir Þorkell.
Hlutverk sjóðsins segir Þorkell mjög
skýrt. „Við erum ekki að kaupa fyrir-
tæki til að eiga til langs tíma, heldur til
þess að gera úr þeim verðmæti fyrir eig-
endur sjóðsins.“ Starfsemin skipti líka
máli fyrir hlutabréfamarkaðinn og þar
með fyrir almenning sem sé eigandi að
sjóðnum í gegnum lífeyrissjóðina og
Landsbankann. Með starfsemi sinni
hafi sjóðurinn átt þátt í því að bjarga líf-
vænlegum fyrirtækju, efla þau og koma
um leið í veg fyrir að þrotabú bankanna
seldu þau, mögulega á hrakvirði, til
erlendra fjárfesta.
Annað hlutverk í sjónmáli
Hvað framtíðina varðar segir Þorkell
ljóst að fjárfestingatímabil sjóðsins
renni sitt skeið og síðan þurfi að vinna
úr þeim eignum sem sjóðurinn hafi á
hendi sér.
„En síðan erum við kannski að koma
líka inn í nýja bylgju. Að lokinni endur-
reisn eftir hrun er verkefnið fram
undan að losna út úr gjaldeyrishöftum,
skapa trúverðugleika á alþjóðavísu og
fjárfesta þannig að hagvöxtur aukist.“
Núna segir Þorkell að við taki upp-
byggingarstarf og fjárfestar, lífeyris-
sjóðir sem aðrir, þurfi að horfa til þess
hvaða tæki henti til starfans.
„Lífeyrissjóðir verða að geta treyst
því að félögum sem þeir fjárfesta í sé
vel sinnt og má nefna að fjárfestingar
þeirra erlendis eru gjarnan í gegnum
svona private equity-sjóði. Þeir kaupa
ekki endilega beint í Microsoft, Apple
eða Facebook og þess konar fyrir-
tækjum, heldur oft í framtakssjóðum
sem eru sérfróðir á ákveðnum sviðum.“
Þorkell segist telja slíkt fyrirkomulag
ekki síður mikilvægt á heimavelli, sér
í lagi í ríkjandi aðstæðum innan hafta,
mikilli nálægð og þrýstingi á að selja á
einum stað og kaupa á öðrum.
Eins segir Þorkell tækifæri fólgin í
því að erlendir fjárfestar kaupi í fram-
takssjóðum hér. „Þeir kunna að vera vilj-
ugri til að kaupa í private equity-sjóði en
að leggja fé sitt beint í einhverjar fram-
kvæmdir. Með því að fjárfesta í svona
sjóði, með íslenskum lífeyrissjóðum og
öðrum fjárfestum, er áhættan minni
fyrir erlenda fjárfesta og þeir geta betur
réttlætt það að fjárfesta á Íslandi.“
Áhersla á góða stjórnarhætti
Þá segir Þorkell eignir og starfsemi
sjóðsins skipta máli innan hafta því
um 70 prósent af veltu eigna sjóðsins
séu erlendar tekjur. Sjóðurinn hlíti
skil málum laga um gjaldeyrishöft en
fyrirtæki í eigu hans og hann sjálfur
hafa tækifæri til að skila verðmætum
eða fjárfesta erlendis í þágu lífeyris-
sjóðanna. „Og þar sem þeir hafa tak-
markaða fjárfestingargetu erlendis
má segja að þarna séu þeir óbeint með
erlendar eignir sem ekki koma fram
sem slíkar í reikningum þeirra.“
Vegna hafta og fæðar fjárfestingar-
kosta segir Þorkell nær óhjákvæmilegt,
þegar sjóðurinn selur eignir, að meðal
kaupenda séu eigendur sjóðsins eða
aðrir lífeyrissjóðir. „Við höfum haft þá
reglu við eignasölu að fela öðrum að sjá
um hana.“ Um leið er í starfsemi sjóðsins
mikið lagt upp úr góðum stjórnarháttum
og þeir innleiddir í þeim fyrirtækjum
sem sjóðurinn á í. Þá eru stjórnarmenn
Framtakssjóðsins að sögn Þorkels óháðir
stjórnarmenn. „Svo höfum við til dæmis
þá reglu að stjórnarmenn Framtaks-
MAÐUR MEÐ REYNSLU Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands, hefur átt sæti í stjórnum fjölda fyrirtækja, jafnt stórra sem smárra, og um
áratugaskeið látið sig varða þróun íslensks atvinnulífs með ritun greina og bóka. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Úr endurreisn í uppbyggingu
Kaflaskipti eru fram undan hjá Framtakssjóði Íslands. Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður sjóðsins, segir nú komið að því að byggja upp
til framtíðar. Sjóðir á borð við Framtakssjóðinn geti liðsinnt við að afla erlendra fjárfesta, auka trúverðugleika og aflétta gjaldeyrishöftum.
HAGNAÐUR FRAMTAKS-
SJÓÐS ÍSLANDS EFTIR
REKSTRARÁRUM
Þorkell Sigurlaugsson er fæddur 2. maí árið 1953. Hann er stúdent frá MR 1973 og
viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1977. Hann hefur komið víða við í íslensku
atvinnulífi frá útskrift og ritað fjölda greina og bóka um íslenskt viðskiptalíf, síðast
bókina „Ný framtíðarsýn“ árið 2009. Frá 2009 hefur Þorkell verið framkvæmdastjóri
fjármála- og fasteignareksturs Háskólans í Reykjavík (HR). 2004 til 2008 var hann
framkvæmdastjóri þróunarsviðs HR og þar áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Eimskips og Burðaráss, sem var fjárfestingafélag Eimskips. Að auki hefur hann setið
í stjórnum fjölda fyrirtækja, stórra sem smárra. Þorkell hefur verið í stjórn Fram-
takssjóðs Íslands frá upphafi og stjórnarformaður frá sumri 2011.
Á LANGA SÖGU Í ÍSLENSKU ATVINNULÍFI
EIGNIR SJÓÐSINS
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
sjóðsins sitja ekki í stjórnum þeirra fyr-
irtækja sem við eigum í.“ Sama á við um
framkvæmdastjóra sjóðsins.
Þess í stað taka starfmenn sjóðsins
sæti í stjórnum félaga auk þess sem
valdir eru fagaðilar til stjórnarsetu.
„Við leggjum mikla áherslu á að starfs-
menn séu tengdir þessum félögum,
því hlutverk þeirra er að fylgja eftir
stefnumörkun og áherslum sjóðsins.
Hjá sjóðnum starfar öflugur og skil-
virkur, en lítill hópur starfsmanna þar
sem liðsheildin er afar mikilvæg og það
er þeim fyrst og fremst að þakka hve
vel hefur gengið.“
Sjóðurinn er þolinmóður
„Við höfum líka lagt áherslu á að
byggja félög þannig upp að eigið fé
þeirra sé nægilega sterkt áður en
kemur að sölu eða skráningu á mark-
að. Við höfum enga hagsmuni af öðru
en að þau félög sem við seljum standi
undir nafni og standi undir fjárhags-
legri getu. Okkur liggur ekkert á.“
Þorkell bendir á að sjóðurinn sé ekk-
ert skuldsettur, með 96 prósenta eig-
infjárhlutfall. „Við eigum núna nokk-
ur félög sem fólk kannast við og eru
í umræðunni, svo sem N1, Advania,
Icelandic, Promens og Icelandair og
horfum bara á hvenær þau eru tilbúin;
hvenær stjórnendur þeirra og rekstur
er orðinn það góður að forsvaranlegt sé
og skynsamlegt að selja þau.“
„Allt sem við seljum fer beint til eig-
enda okkar. Við greiðum arð, en megum
ekki endurfjárfesta samkvæmt reglum
sjóðsins.“ Vilji sjóðurinn hins vegar
fjárfesta sé jafnóðum kallað inn nýtt
hlutafé.
Síðan þegar kemur að sölu þá sé
fyrsti kostur að skrá félög á hlutabréfa-
markað hér heima. „En það er auðvitað
alls ekki sjálfgefið. Sum félög sem við
eigum eru þess eðlis að ekki er víst að
skynsamlegt sé að skrá þau á markað
hér heima, svo sem vegna eðlis starf-
semi þeirra, sem kannski fer fyrst og
fremst fram erlendis,” segir Þorkell.
Verkefni sjóðsins segir Þorkell hafa
verið skemmtileg, spennandi og krefj-
andi. „Ég verð var við að aðkoma okkar
að fyrirtækjum, jafnvel þótt henni hafi
ekki fylgt fjárframlag, hefur ýtt undir
jákvæðni og sjálfstraust innan þeirra.”
Starfsfólkið viti þá að þarna sé kom-
inn eigandi sem ætli sér að vinna með
fyrir tækinu og hjálpa því inn í fram-
tíðina en geri líka miklar kröfur.
100%
45%
49,5%
7%*
Búið er að selja Húsasmiðjuna, Plastprent og
Vodafone, sem skráð var í Kauphöllina.
*Upphafl eg eign var var 30%2010 2011 2012
701 2.344 6.111
M
ill
jó
ni
r
kr
ón
a
75%
Að
lokinni
endurreisn
eftir hrun er
verkefnið
fram undan
að losna út
úr gjald-
eyrishöftum,
skapa
trúverðug-
leika á
alþjóðavísu
og fjárfesta
þannig að
hagvöxtur
aukist.