Fréttablaðið - 27.06.2013, Side 26

Fréttablaðið - 27.06.2013, Side 26
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26 Þegar þetta er skrifað hafa yfir þrjátíu þúsund manns skrifað undir mót- mæli vegna fyrirhugaðr- ar lækkunar veiðigjalda. Fólkið sem tekur þátt í þessum undirskriftum er í raun ekki að segja að nefnd tegund veiðigjalda sé eina aðferðin sem komi til greina. Það vill einfaldlega að eðlilegt endurgjald fáist fyrir að nýta fiski miðin. Allir stjórnmálaflokkar segja að þjóðin eigi auðlindina og eru nú teknir á orðinu. Ef Alþingi samt sem áður samþykkir þetta frumvarp mun forsetinn, ef hann er samkvæmur sjálfum sér, synja því staðfestingar. Þá þyrfti þjóðin að kjósa um óboð- lega kosti. Annars vegar bráða- birgðaákvæði um afar lágt gjald og hins vegar gallað fyrirkomulag sem ekki tryggir þjóðinni eðlilegt endur- gjald og yrði þó ýmsum útgerðar- formum óbærilegt. Af þessum ástæðum get ég ekki skrif- að undir mótmælaskjalið. Jafnræði ekki í augsýn Sú aðferð sem felst í núgild- andi lögum um sérstakt veiðigjald hentar illa til að innheimta gjald fyrir afnot auðlindar sem þarf á sem frjálsustum viðskipt- um að halda. Heildarlausn síðustu ríkisstjórnar fólst annars vegar í fyrrnefndu veiðigjaldi og hins vegar frumvarpi sem byggði á nýtingar- samningum og flóknu potta- og útdeilingarkerfi. Aðalgallinn við þá leið var þó sá að ekki sá fyrir end- ann á forgangi núverandi kvótahafa til nýtingarinnar. Jafnræði var ekki í augsýn. Ef lausn síðustu ríkis- stjórnar hefði náð fram að ganga hefðu menn staðið frammi fyrir sömu vandamálum aftur þegar nýtingar samningum hefði lokið. Sú ríkisstjórn sem núna situr virðist eftir því sem ég kemst næst vilja byggja á hugmyndum svo- kallaðrar „sáttanefndar“, og þar með nýtingarsamningum, en vill varðveita sem mest núgildandi stjórnkerfi. Sami gallinn er við þá leið, sá að með henni næst ekki frambúðar lausn á aðgangi að nýt- ingu auðlindar innar. Menn virðast gleyma sér í umræðu um hvert skuli vera eðlilegt endurgjald og hvernig skuli reikna það en horfa fram hjá því hvernig eigi að tryggja jafnræði til að fá úthlutað veiðirétti. Ríkis- stjórnin hefur a.m.k. ekki sett fram hvernig jafnræði til nýtingarinnar verði komið á. Einföld breyting Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi sjávar útvegsráðherra, skrifar grein í Fréttablaðið þann 22. júní.Þar nefnir hann þá leið að selja á mark- aði tiltekin prósent veiði heimilda árlega. Þessi einfalda leið getur leyst deiluna um upphæð veiði- gjaldsins vegna þess að þá ákveða útgerðarmenn sjálfir upphæð gjaldsins. Hún kemur jafnframt á jafnræði til nýtingarinnar. Í raun þyrfti ekki að breyta neinu öðru í lögunum um stjórn fiskveiða til að leysa aðaldeilurnar um eignarhald og jafnræði til nýtingar. Deilan um það hvernig eigi að orða stjórnar- skrárákvæðið yrði þar með úr sög- unni vegna þess að ágreiningsefnið væri horfið. Menn gætu hins vegar haldið áfram eðlilegum rök ræðum um stjórn veiðanna sem er eðli máls samkvæmt viðvarandi verk- efni. Til að skera úr um þá prósentu veiðiréttar sem setja ætti á mark- að þyrfti vandaða umfjöllun fræði- manna. Fimm prósent myndu jafn- gilda tuttugu ára veiðirétti en það er sú tímalengd sem oftast hefur verið nefnd í umræðunni um nýt- ingarsamninga. Prósentuna þarf hins vegar að velja með það í huga að langtímaveiðiréttur verði eðli- lega verðlagður. Þetta er afar mikil- vægt til að önnur viðskipti með veiðirétt geti verið á réttum grund- velli. Ég tek ofan Útgerðarmenn sem hafa keypt veiðirétt hafa mótmælt þessari aðferð harkalega og segjast fara á hausinn verði þetta gert. Þeirra hlut mætti rétta með endurgreiðslu á hluta þess verðs sem fengist á markaðnum í tiltekinn árafjölda. Ég fagna því að fyrrverandi sjávar- útvegsráðherra Sjálfstæðisflokks- ins bendir á leið af þessu tagi og tek ofan fyrir honum að setja hana fram. Ég skora á alla alþingismenn að sameinast um að fresta afgreiðslu á frumvarpi sjávarútvegsráðherra og leita sátta á þeim grundvelli sem Þorsteinn bendir á. Tækifæri til sátta Í aðdraganda kosninga og á síðustu vikum hefur verið mikið rætt um list- og verknám í framhalds- skólum. Má á mörgum skilja að skortur á slíku námi standi nemendum fyrir þrifum og sé jafn- vel meginorsök brottfalls og vanlíðunar nemenda á þessum aldri. Nú er alls ekki ætlun mín að gera lítið úr alvar- leika brottfalls en bendi þó á að nauðsynlegt er að rýna vel í þær tölur til að átta sig á umfangi vandamálsins í heild. Þegar kemur að framboði á list- og verknámi þá er það svo að framboðið á því á er umtals- vert. Tækniskólinn og Iðnskólinn í Hafnarfirði hafa öflugar listnáms- brautir, ásamt því að bjóða upp á fjölbreytt verknám. Borgarholtsskóli, Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ bjóða allir upp á öflugar listnámsbrautir og útskrifa á hverri önn hóp nemenda sem hafa öðl- ast góðan grunn í hinum ólíku listgreinum. Verk- menntaskólinn á Akur- eyri og Menntaskólinn á Tröllaskaga bjóða einn- ig báðir upp á listnám og fleiri skóla mætti nefna. Í bráðabirgðahúsnæði Þegar rætt er um að stofna sér- stakan listamenntaskóla vill gleymast að listaskólar eru þegar til og hafa umtalsverða kosti umfram sérstaka listamennta- skóla, sem er að allir nemendur þessara skóla geta auk bóknáms eða verknáms bætt við sig áföng- um í listgreinum. Í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ getur nemandi á náttúrufræðibraut lokið námi af þeirri braut ásamt því að hafa að baki 21 einingu í listnámi sem er tæplega einn sjöundi af námi hans í skólanum. Framboð af listnámi er í raun fjölbreytt. Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er boðið upp á listnám í fata- og textílgreinum, leiklist og myndlist, auk þess sem skólinn býður upp á hönnunar- og mark- aðsbraut. Á þessu ári verður lokið við að hanna styttri útgáfur af öllum þessum brautum, sem nem- endur geta brautskráðst af eftir tveggja til þriggja ára nám. Framboð af listnámi, og verk- námi einnig, er því talsvert á framhaldsskólastigi. Það sem vantar er að gera því hærra undir höfði í umræðunni og í sam- félaginu í heild. Foreldrar verða að átta sig á að námsferill í list- og verk greinum er ekki síðri en í bóknámi. Stjórnvöld verða að setja nægj- anlegt fjármagn í listnám. Fjöl- brautaskólinn í Garðabæ hefur frá upphafi boðið upp á listnám í bráðabirgðahúsnæði. Árið 2008 var búið að teikna viðbyggingu við skólann sem átti að hýsa list- og verknám. Þau áform voru lögð á hilluna í kjölfar hrunsins. Nú er tækifæri til að blása rykið af þessum teikningum og hefja fram- kvæmdir við nýja viðbyggingu við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og sýna þannig í verki áhuga á að efla list- og verknám á Íslandi. Það þarf ekki að stofna sérstakan listamenntaskóla á Íslandi. Þessir skólar eru til nú þegar og hafa fjöl- breytt úrval og öflugt nám upp á að bjóða. Við þurfum að efla veg og virðingu þessa náms ásamt því skapa listaskólum þessa lands aðstöðu og tæki til að efla þetta nám enn frekar. List- og verknám í framhaldsskólum SJÁVARÚTVEGS- MÁL Jóhann Ársælsson fv. alþingismaður ➜ Ef lausn síðustu ríkis- stjórnar hefði náð fram að ganga hefðu menn staðið frammi fyrir sömu vanda- málum aftur þegar nýtingar- samningum hefði lokið. MENNTUN Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ ➜ Framboð af listnámi er í raun fjölbreytt. Í Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ er boðið upp á listnám í fata- og textílgreinum, leiklist og myndlist auk þess að vera með hönnunar- og markaðs- braut. Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17. citroen.is Einstaklega sparneytinn, lipur og þægilegur. Notar einungis frá 3,4 l/100 km í blönduðum akstri. Há sætisstaða, gnótt rýmis og ríkulegur staðalbúnaður veita þér hámarks notagildi og frelsi. Auk þess fær hann frítt í stæði í Reykjavík. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.