Fréttablaðið - 27.06.2013, Side 30
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
HERRATÍSKAN Í TÖSKUM
TÍSKA Veski og hliðartöskur hafa verið ómissandi fylgihlutur kvenna gegnum tíðina en karlarnir eru að færa sig upp á skaftið.
Hliðar töskur í yfirstærð hafa notið mikilla vinsælda hjá konum og það virðist einnig vera uppi á teningnum hjá körlunum. Á ný-
liðinni tískuviku í Mílanó sýndu tískuhúsin herralínur sínar fyrir vor og sumar 2014 og spiluðu stórar hliðartöskur þar stórt hlutverk.
GUCCI
EMPORIO
ARMANI
GUCCI
FENDI
FENDI
FENDI
Vöruhönnuðurinn Sruli
Recht er ekki í uppáhaldi
hjá einum höfunda lífstíls-
síðunnar Sharperliving.
co.uk, ef marka má grein
sem birtist þar 12. júní
síðastliðinn. Umer Sharif
tekur þar saman lista
yfir það sem hann kallar
„fimm verstu“ vörur Sruli
undir yfirskriftinni „Sruli Recht:
Sá klikkaðasti í tískubransanum.“
Af hverju Sharif birtir einungis
lista yfir fimm verstu vörurnar,
en ekki líka fimm bestu, segir
hann skýrast af því að hann hafi
ekki fundið vörur eftir hönnuð-
inn sem fyllt gætu slíkan lista.
Á listanum er meðal annars
hanski úr hákarlaskinni með
göddum að innan, kápa úr
lambaskinnum og hring-
urinn Forget me not, sem
er klæddur mannshúð, af
Sruli sjálfum, sem Sharif er
lítt hrifinn af.
Sruli virðist þó ekki láta
umfjöllun sem þessa slá
sig út af laginu. „Það er
gaman að búa til hluti sem
gera fólk hamingjusamt,“ sagði
hann einfaldlega þegar Fólk innti
hann álits.
Sruli hefur verið búsettur
hér á landi síðastliðin átta ár og
rekið vinnustofuna og verslunina
Vopnabúrið. Tímaritið Wall-
paper valdi Vopnabúrið eina af
tíu athyglis verðustu verslunum
heims árið 2010.
SÁ KLIKKAÐASTI
Í BRANSANUM?
Sruli Recht fær slæma útreið á lífstílssíðunni
Sharper Living þar sem taldar eru upp fimm
„verstu“ vörur hans.
FORGET ME NOT
MYND/MAINO
THORLACHIUS
SRULI RECHT
MYND/ARASH AFRAZADEH