Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 36
KYNNING − AUGLÝSINGKonur á besta aldri FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 20134
Bella donna er ítalska og þýðir falleg kona. Okkur þótt i v ið hæf i að láta
verslun ina heita þetta enda eru
allar konur fallegar,“ segir Stella
Leifsdóttir, eigandi verslunarinn-
ar Belladonna. Litadýrðin ræður
ríkjum í versluninni um þess-
ar mundir og úrvalið af falleg-
um kjólum er mikið og konur af
öllum stærðum og gerðum finna
þar eitthvað við sitt hæfi.
Stella bendir á að þó marg-
ar konur fylgist með tískunni og
vilji líta vel út lendi þær oft í vand-
ræðum þar sem þær finni fátt sem
passi þeim. „Vaxtarlag kvenna
hefur verið greint í átta ólíkar
gerðir og því skiljanlegt að sama
sniðið hentar ekki öllum konum.
Því er sérlega mikilvægt að konur
með mjúkar línur finni sniðið sem
passar vaxtarlagi þeirra,“ bendir
Stella á.
Í Belladonnu er boðið upp á
breitt úrval af tískufatnaði í stærð-
um 38 til 58. „Hér fást föt og fylgi-
hlutir frá yfir tuttugu merkjum
með mismunandi áherslur. Merk-
in eru ólík og stíla inn á mismun-
andi aldurshópa,“ segir Stella.
Hún bendir á að þær sem vilji
vanda valið geti notið þess í rúm-
góðum mátunarklefum auk þess
sem mjúkir leðursófar fari vel með
fylgdarliðið. Þá geti börnin unað
vel við sitt í barnahorninu.
„Við leggjum áherslu á fjöl-
breytni og persónulega þjón-
ustu,“ segir Stella og áréttar að þó
úrvalið sé mikið í versluninni sé
aðeins pantað lítið af hverri gerð.
„Það þurfa ekki allir að vera eins,“
segir hún glaðlega og bætir við
að breytingar séu örar
í búðinni enda teknar
upp nýjar sendingar í
hverri viku.
Hún bendir þeim
sem vilja fylgjast með
framboðinu í Bella-
donnu á netklúbbinn á
www.belladonna.is.
Konur eru fallegar
Litadýrðin ræður ríkjum í Belladonnu í Skeifunni 8 um þessar mundir .
Verslunin býður upp á breitt úrval af fatnaði í stærðum 38-58.
Mikið úrval er af fallegum kjólum
í Belladonnu. Litadýrðin ræður
ríkjum og færir sól í sinni að
sögn Stellu Leifsdóttur eiganda
Belladonnu í Skeifunni 8.
MYND/ARNÞÓR
Lífið breytist ekki við það eitt að verða fimmtug og ég fann meira fyrir aldrinum þegar ég
átti orðið börn í grunnskóla og síðar
í háskóla. Annars er ég lítið upptekin
af aldri og finnst samferðafólk mitt
alltaf vera á sama aldri og ég, þótt
áratugir skilji á milli,“ segir Elín, sem
á haustdögum verður 61 árs.
„Árin eftir fimmtugt hafa verið
frábær og mér líður afskaplega vel.
Mér fannst dásamlegur tíminn
þegar ég var yngri með börnin smá
en líka núna þegar ég á orðið barna-
börn. Mér finnst því allur aldur frá-
bær.”
Elín segir góða heilsu og vellíðan
mikilvæga til að geta notið sín.
„Til að vera við góða heilsu þarf
að hugsa vel um sig; sofa nóg, borða
rétt, hreyfa sig og stunda áhugamál
sem hvíla hugann. Til vel líðunar
þarf svo að takast á við verkefni sem
mann langar til og vera með fjöl-
skylduna tiltölulega nálægt sér,“
segir Elín, sem hefur alla tíð aðhyllst
hollt mataræði og ástundað mikla
hreyfingu.
„Til að ná árangri í því sem
maður tekur sér fyrir hendur þarf
maður að vera í standi til að takast
á við verkefnin. Ég á mér mýmörg
áhugamál sem hvíla hugann og
hef mjög gaman af göngu ferðum
heima og í útlöndum. Þá hef ég
mikinn áhuga á trjárækt og fágæt-
um plöntum og er ég með stóran
garð í Þorlákshöfn þar sem ég hef
ræktað upp þriggja metra eik,“ segir
Elín, sem einnig sinnir garði for-
eldra sinna sem enn búa á Læk
ásamt tveimur bræðrum hennar.
„Það eru forréttindi að hafa þá
sem manni þykir vænst um svo ná-
lægt sér,“ segir Elín.
Fjölskyldan dýrmætust
Elín segir aukinn þroska það besta
við aldursskeiðið eftir fimmtugt.
„Best er að öðlast allan þann
þroska sem maður fær við að tak-
ast á við lífið í sextíu ár. Mér fannst
stórt þroskaskref að uppgötva að
ég þurfti ekki sjálf að vera sérfræð-
ingur í öllu heldur gat leitað til ann-
arra þar sem ég sjálf varð stopp. Það
hefði mér ekki dottið í hug fertug.“
Elín á tvo syni og tvö barnabörn,
sex ára og eins og hálfs árs.
„Tímann með barnabörnunum
nota ég afskaplega vel; hann er mér
afar dýrmætur og börnunum líka.
Þau eiga mig því alveg óskipta þegar
við erum saman,“ segir Elín um
samrýnda fjölskyldu sína.
„Fjölskyldan er aleigan mín og
við erum mikið saman. Ég á líka
son og tengdadóttur í Svíþjóð en
hann var að fá vinnu hér heima og
þau nú að skipuleggja líf sitt eins og
fjöldi samlanda þeirra sem vinna í
sitt hvoru landinu.“
Verðmæti í aldri og þroska
Elín var komin á sextugsaldur þegar
hún var kjörin formaður BSRB árið
2009 og segir aldur og lífsreynslu
hafa verið gott veganesti í slíkt starf.
„Ég er ekki viss um að ég hefði
haft þroska mjög ung til að takast á
við verkefnin sem liggja fyrir í þessu
starfi. Fjölbreytnin er mikil, engir
tveir dagar eins og dagleg verkefni
bæði ögrandi og kröfuhörð.“
Innan aðildarfélaga BSRB eru
konur í miklum meirihluta; um sjö-
tíu prósent félagsmanna. Elín segir
helstu mál á borðum BSRB nú að
rétta af launamun kynjanna og nú
sé unnið að launakönnun til að vita
hvort félaginu hafi orðið ágengt í
vinnu þar að lútandi síðastliðið ár.
„Mér er fyrir munað að skilja
hvers vegna konur eiga erfið ara
með að fá vinnu eftir fimmtugt hér
á landi. Fimmtugt fólk er í blóma
lífsins og hefur mun meiri þroska
til að takast á við verkefnin en þeir
sem eru ungir og án sambærilegar
reynslu,“ segir Elín og bætir við að
henni finnist jafn óskiljanlegt að
ungt og hæfileikaríkt fólk fái ekki
heldur vinnu.
„Ég hef sterklega á tilfinning-
unni að viðhorf til eldra fólks sé að
breytast. Æ fleiri átta sig á hversu
gífurleg verðmæti liggja í aldri og
þroska og því sóun á verð mætum
að nýta ekki starfskrafta vinnandi
fólks yfir fimmtugu. Þvert á móti
ætti að vera eftirsóknarvert að fá
fólk á besta aldri til starfa,“ segir
Elín og furðar sig á að aldur skuli
skipta vinnuveitendur máli.
„Vitaskuld viljum við bæði kyn
og allan aldur á vinnustöðum og
þar sem ákvarðanir eru teknar.
Þannig verður hann sem fjölbreytt-
astur og tekur mið af sem flestum
sjónarmiðum. Sá sem er sextugur
hefur aðrar væntingar og þarfir en
sá sem er tvítugur. Því skiptir mestu
máli að við vinnum þetta saman.“
Elín hvetur konur yfir fimmtugu
til dáða enda eigi þær upp undir
tuttugu ár eftir á vinnumarkaði.
„Konur eiga að trúa og treysta á
innsæi sitt, takast á við hindranir á
veginum og aldrei gefast upp.“
Fólk á besta aldri eftirsóknarvert
Elín Björg Jónsdóttir er formaður BSRB, langstærstu samtaka opinberra starfsmanna á Íslandi, þar sem 70 prósent félagsmanna eru
konur. Elín er Sunnlendingur, fædd og uppalin á bænum Læk í Ölfusi, og býr í Þorlákshöfn þar sem hún ræktar fjölskylduna og tré.
Elín er sveitastúlka sem bjó í Breiðholtinu í nokkur ár en fluttist aftur í átt að heima högum
þegar svalirnar urðu of litlar fyrir tvo hressa snáða. Síðan hefur hún búið í Þorlákshöfn og
ákvað að hrófla ekki við heimilinu þegar hún gaf kost á sér sem formaður BSRB. MYND/VALLI
Kynlíf, lífshamingja og ástarsambönd kvenna yfir fimmtugu
blómstra nú á tímum. Þetta sýnir nýleg könnun Playtex sem gerð
var á meðal 1.500 breskra kvenna á aldrinum 20 til 65 ára. Niður-
stöður sýndu að konur yfir fimmtugu eru nú hamingjusamari,
ævintýra gjarnari og leikfúsari en nokkru sinni fyrr. Nær helming-
ur þeirra (49%) sagðist fagna sextugsaldrinum og að kynlíf þeirra
og ástarsambönd væru betri en áður. Konur í föstu ástarsambandi
sögðu það langt í frá staðnað þar sem parið nyti samvista og sam-
lífis enn betur eftir fimmtugt.
Könnunin leiddi einnig í ljós að ein af hverjum fimm konum á
sextugsaldri stundar kynlíf einu sinni í viku eða oftar, sem er jafn
oft og kynsystur þeirra á þrítugsaldri. Þá viðurkenndi þriðjungur
kvenna að þær hefðu aldrei notið kynlífs jafn ríkulega og eftir
fimmtugt og helmingur þeirra sagðist enn klæðast kynæsandi
undirfötum og hafa sig til fyrir elskhuga sinn.
Meirihluti eldri kvenna í könnunni (93%) sagðist hafa horfið
frá siðum og hefðum mæðra sinna og eiga meira sammerkt með
dætrum sínum sem þær töldu á meðal vinkvenna sinna. Þá leiddist
þeim misskilningur yngra fólks sem héldi að um leið og fimmtugs-
afmælinu væri náð hætti konum að finnast þær sexí og njóta kyn-
lífs. Þvert á móti væru þær spenntari fyrir lífinu en nokkru sinni og í
raun vera aldurslaus kynslóð kvenna.
Lífið byrjar
um fimmtugt
Ástin blómstrar sem aldrei fyrr eftir fimmtugt.