Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.06.2013, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 27.06.2013, Qupperneq 38
KYNNING − AUGLÝSINGKonur á besta aldri FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 20136 Samkvæmt breskri könnun eiga konur sem eru 47 ára eða eldri ekki að vera í bikiníi. Á það er þó bent í breskum blöðum að þeir sem hafa séð Helen Mirren og Jerry Hall á strönd gætu tæpast verið sammála þessu. Könnunin var gerð meðal 2.000 kvenna í Bretlandi en þær voru spurðar um klæðnað kvenna á besta aldri. Samkvæmt könnuninni eiga konur ekki að ganga í mínípilsum eða kjólum séu þær orðnar 35 ára eða eldri og háhælaðir skór eru bara fyrir 51 árs og yngri. Fyrirtækið Diet Chef sem framkvæmdi könnunina hefur verið gagnrýnt af konum á besta aldri sem finnast svörin fjarri öllum raunveruleika. Konur yfir fimmtugt séu yfirleitt glæsi- legar og unglegar og geta klæðst hverju sem er svo framarlega sem vöxtur þeirra beri f líkina. Könnunin sýndi hins vegar að 44% kvenna á þessum aldri hefur áhyggjur af því að þær séu of gamlar fyrir ákveðinn fatnað. Fyrir utan þetta ættu konur sem eru orðnar 53 ára eða eldri hvorki að vera með sítt hár né tagl. Þá kom fram að um 5% kvennanna höfðu lent í því í verslun að afgreiðslustúlka sagði f lík ekki henta þeirra aldri. Íslenskar konur eru yfirleitt vel klæddar eftir aldri. Rétt er þó að hafa í huga að kona sem er komin yfir fimmtugt ætti ekki að klæða sig eins og tvítug dóttir hennar. Hins vegar er frjálsræðið mun meira í klæðaburði í dag en var áður fyrr. Einfaldur en elegant stíll klæðir eldri konur best. Madonna er gott dæmi um konu sem fer eigin leiðir í klæðaburði. Hins vegar má segja að Dorrit Moussaieff forsetafrú sé kona sem klæðir sig á einfaldan en smekklegan hátt miðað við aldur. Að klæða sig eftir aldri Eftir því er tekið hversu smekklega klædd forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, er ávallt. Bryndís Emilsdóttir tók verslunarpróf árið 1977, þá 18 ára gömul. Fimm árum síðar gerðist hún bóndi. „Ég flutti ásamt manninum mínum, Sigur- sveini Eggertssyni, á býli tengdaforeldra minna. Síðan fluttum við á annan bæ sem heitir Ás og er í Mýrdalshreppi. Þar bjuggum við í tólf ár, fram til ársins 1998,“ segir Bryndís. „Þá tóku við hin ýmsu störf, ég fór aftur í verslunarstörf og var dagmamma um tíma.“ Aftur í nám Í nokkur ár undi hún sér ágætlega á vinnu- markaðinum en svo fór menntaþorstinn að segja til sín. „Ég sá auglýst nám til stúdents- prófs á listabraut í FB og sló til. Þá var ég 43 ára. Ég kláraði stúdentinn með vinnu, aðallega í kvöldskóla.“ Þetta var fyrsta skrefið í átt að draum sem hafði blundað í Bryndísi frá blautu barnsbeini. „Ég hef alltaf verið bæði skrifandi og teiknandi svo þegar ég sá nám til stúdentspróf á listabraut var ég ekki lengi að hugsa mig um.“ Önnur auglýsing Eftir stúdentsprófið liðu þrjú ár þar sem hún var tvístígandi, en aftur kom auglýsing henni til bjargar. „Ég vissi að það væri erfitt að komast inn í Listaháskólann, ekki síst af því maður var kominn á aldur. Svo sá ég auglýst BA-nám í ritlist við Háskóla Íslands. Þá kviknaði eitthvað,“ segir Bryndís og bætir við að hún hafi alla tíð verið hálfgerð alæta á skrifaðan texta. „Svo ég dreif mig í þetta nám og það var mikið gæfuspor.“ Námið er í bland fræðilegt og verklegt nám. „Mig þyrsti í fræðslu, ég var eiginlega eins og svampur þarna. Mig langaði alltaf að læra en mér gafst ekki tækifæri til þess fyrr. Það var erfitt að ætla í nám frá búskap og fjórum börn- um,“ segir Bryndís og segir tilfinninguna hafa verið góða að setjast loks á skólabekk á ný. „Ég reyndi fyrst að muna allt sem ég lærði, vera eins og tölva og vista þetta. Ég upplifði vissa þrá eftir þekkingu.“ Fólk á öllum aldri Í náminu með Bryndísi var fólk á öllum aldri, bæði ungt fólk sem var nýskriðið úr mennta- skóla og svo eldra fólk sem var á leið aftur í nám. „Það var vissulega munur á aldurshópunum, en hann felst aðallega í því að þessir eldri hafa upplifað hluti, hafa meiri þroska og reynslu sem nýtist í náminu. Þeir hafa meiri innsýn í mann- legar tilfinningar og það skilar sér í skrifunum.“ Nú er Bryndís útskrifuð með meistaragráðu í ritlist og segist hafa mörg járn í eldinum. „Ég ætla að halda áfram að skrifa, en ég er með fjórar sögur í smíðum um þessar mundir. Þær eru mislangt komnar, eins og gengur, en ég vonast til að koma þessu frá mér. Mig langar til þess að gefa þær út og stefni að því.“ Lífið er lærdómur Bryndís segist að vissu leyti hafa kynnst sjálfri sér upp á nýtt eftir að hafa sest aftur á skóla- bekk. „Já, maður lærir á meðan maður lifir. Aldur skiptir engu máli þar. Það er kannski ekkert svo mikill munur á manneskjunni, þó aldurinn sé ólíkur, nema að önnur hefur reynt meira.“ - hþó Skilningur eykst með aldrinum Bryndís Emilsdóttir útskrifaðist á dögunum með meistaragráðu í ritlist. Áður hafði hún stundað landbúnað og verslunarstörf og passað börn. Hana þyrsti í þekkingu, að eigin sögn, þegar hún ákvað að setjast á skólabekk fyrir rúmum áratug, þá 43 ára gömul. Bryndís segist að vissu leyti hafa kynnst sjálfri sér upp á nýtt eftir að hafa sest aftur á skólabekk. MYND/ARNÞÓR UNDARLEGAR NIÐURSTÖÐUR Samkvæmt könnuninni eiga konur ekki að klæðast eftirfarandi flíkum eftir vissan aldur: ■ Bikiní, 47 ára ■ Mínípils, 35 ára ■ Stuttir toppar, 33 ára ■ Hælaháir skór, 51 árs ■ Skartgripir í naflann, 35 ára ■ Há stígvél, 47 ára ■ Íþróttagallar, 44 ára ■ Leðurbuxur, 34 ára ■ Leggings, 45 ára ■ Þröng vesti, 44 ára ■ Gegnsæ blússa, 40 ára NÁTTÚRULEGT FYRIR LIÐINA NUTRILENK NÝTT NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN Láttu ekki liðverki aftra árangri þínum í golfinu. Minnkaðu liðverkina og vonandi forgjöfina í kjölfarið með hjálp Nutrilenk. Nutrilenk er náttúrulegt byggingarefni fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Nutrilenk hefur hjálpað þúsundum Íslendinga að öðlast betri liðheilsu. NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum, Fræinu Fjarðarkaupum, stærri Hagkaupsverslunum, Þín verslun Seljabraut og Vöruvali Vestmanneyjum Eru liðverkir að hækka forgjöfina?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.