Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 50
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
BÆKUR ★★★★★
Bautasteinn Borgesar
Jón Hallur Stefánsson
Bréf frá borg dulbúinna
storma
Sigurbjörg Þrastardóttir
Hælið
Hermann Stefánsson
KIND
Á tímum rafbóka og hraðsoðinna
bestsellara bindast skáld og rit-
höfundar samtökum og gefa út
veglega tímaritröð sem hlotið
hefur nafnið 1005. Áætlað er að
árgangarnir verði þrír og leit sá
fyrsti dagsins ljós þann 10.05 í ár.
Í árganginum eru þrjú verk, hvert
um sig innbundið en kápulaust
en þau deila veglegri kápu sem
minnir helst á kassa og hönnuð er
af Ragnari Helga Ólafssyni. Hann
á líka heiðurinn af lausu saurblöð-
unum tveimur sem eru sjálfstæð
listaverk og ekkert því til fyrir-
stöðu að ramma inn. Glæsileg
umgjörð sem strax vekur áhuga á
innihaldinu.
Bautasteinn Borgesar
Fyrsta verkið er grein Jóns Halls
Stefánssonar, Bautasteinn Borges-
ar, þar sem hann rekur ferð sína
og fleiri andans manna í kirkju-
garðinn í Genf þar sem jarðnesk-
ar leifar Jorge Luis Borges hvíla
undir mögnuðum legsteini. Ferðin
sú er þó aðeins rammi greiningar
á ýmsum æviþáttum Borgesar og
verkum sem tengjast myndskreyt-
ingum legsteinsins. Jón Hallur
tengir aðdáunarlega vel saman
líf og list skáldsins út frá þessum
myndverkum og frásögnin öll er
lifandi og spennandi svo úr verð-
ur nánast spennusaga sem lesand-
inn getur ekki hætt að lesa. Bæði
efnis tök og stíll eru heillandi og
ljóst að viðfangsefnið hefur náð
heljartökum á höfundinum, sem
reyndar segir sjálfur að Borges
hafi flækt hann í net sitt í sjálfu
Genfarvatni.
Bréf frá borg dulbúinna storma
Verk númer tvö er ljóða bálkur
Sigur bjargar Þrastardóttur, Bréf
frá borg dulbúinna storma. Bálkur-
inn samanstendur af 62 ljóðum sem
saman mynda heildstætt ljóðabréf
frá ljóðmælanda í Argentínu til
viðtakanda í Svíþjóð. Hvort viðtak-
andinn er einn eða fleiri er þó ekki
ljóst því ljóðmælandinn ávarpar
hann með ýmsum nöfnum, enda
segist hún gleymin á nöfn.
Ljóðmál Sigurbjargar er sér-
stætt og persónulegt eins og jafn-
an fyrr en sterkust áhrif hefur þó
hrynjandin í ljóðunum sem magn-
ar stemninguna til muna og sogar
lesandann inn í tangódans sem á
yfirborðinu virðist nokkuð sléttur
og felldur. Undir krauma þó ástríð-
ur, ótti, einmanaleiki og þrá sem
hrífa lesandann með sér inn í heim
sem í senn er framandi og kunnug-
legur. Sannarlega seiðandi lesning.
Hælið
Þriðja verkið er skáldsagan Hælið
eftir Hermann Stefánsson. Ekki
heldur í því er allt sem sýnist
því það sem á yfirborðinu virðist
vera nokkuð hefðbundin glæpa-
saga reynist allt í senn paródía á
glæpasöguna eins og við þekkjum
hana, lykilskáldsaga og heimspeki-
leg pæling um mörk andlegs heil-
brigðis og geðveiki.
Rammi sögunnar er sá að morð
er framið í kjallara Klepps spítala
og tveir lögreglumenn, Reynir
og Aðalsteinn, eru kallaðir til að
rannsaka málið. Þeir eru í upphafi
dregnir sömu dráttum og algeng-
ast er um lögreglumenn í slíkum
sögum en reynast auð vitað mun
flóknari og sam settari persónur,
sem safna saman í eina mann-
lýsingu ýmsum klisjum slíkra
sögupersóna úr ólíkum áttum.
Kleppur er líka óvanalegur vett-
vangur morðs og þegar í ljós
kemur að rithöfundurinn Her-
mann Stefánsson er þar vist maður
sem situr við skriftir á skáldsög-
unni Hælinu þar sem Eggert feld-
skeri er meðal grunaðra morð-
ingja fara að renna fleiri en ein og
fleiri en tvær grímur á lesandann.
Hermann leikur sér geysi-
vel með þetta staðnaða form og
lausn gátunnar er í senn frum-
leg og klisjukennd, eins og raun-
ar allt annað í sögunni. Hrikalega
skemmtileg og frískandi saga.
Að framansögðu ætti að vera
ljóst að 1005 er einhver mest
gefandi og ferskasta lesning sem
völ er á um þessar mundir og það
er mikið tilhlökkunarefni að eiga
von á öðrum eins gleðiskammti að
ári. Verst bara hvað það er langt
þangað til. Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Þrjú ólík verk
sem saman mynda ferskustu og
hressilegustu lesningu sem í boði er
á íslenskum bókamarkaði um þessar
mundir.
Þrír eðalpennar í sínu elementi
JÓN HALLUR STEFÁNSSON SIGURBJÖRG ÞRASTARDÓTTIR
HERMANN STEFÁNSSON
Popol Vúh, eða Bók fólksins, er
komin út í íslenskri þýðingu Guð-
bergs Bergssonar. Bókin fjallar
um eina af forn-
um sköpunar-
sögum veraldar
og er upphafs-
saga Maya-þjóð-
arinnar. JPV-
útgáfa gefur
bókina út og
Vigdís Finn-
bogadóttir ritar
formálsorð.
Í formálanum
segir Vigdís meðal annars: „Bókin
var skráð í lok sautjándu aldar eða
byrjun þeirrar átjándu, en týnd-
ist svo um tveggja alda skeið og
fannst ekki fyrr en á fyrstu árum
tuttug ustu aldarinnar. Hugarflug
höfunda ritsins fer með himin-
skautum, hver kynjasagan tekur
við af annarri og af allt öðrum
toga en sú sköpunarsaga sem við
þekkjum best. Það tók til að mynda
guði Kítse-kynstofnsins langan
tíma að skapa manninn.
Skaparanum og Mótaranum
voru mislagðar hendur og fjarri
því að vera eins leiknir í að koma
veröldinni á kjöl og Guð kristinna
manna. Í þessari merkilegu bók
eru frásagnirnar oft afar ljóðræn-
ar og stundum bregður fyrir háði
og barnslegri kæti. Ritið veitir
innsýn í óþekkta heima frum-
byggja Gvatemala og Maya sem
okkur er vissulega hollt að kynn-
ast.“
Upphaf Maya-
þjóðarinnar
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Fræðsla
20.00 Ljósmyndasafn Reykjavíkur
upp á ljósmyndagöngu um Gömlu
höfnina í Reykjavík. Í göngunni, sem
Gísli Helgason verkefnisstjóri hjá Ljós-
myndasafni Reykjavíkur, leiðir, verður
þróunarsaga hafnarsvæðisins á um 100
ára tímabili rakin með hjálp gamalla
ljósmynda. Lagt er af stað úr Grófinni,
milli Tryggvagötu 15 og 17.
Birgir Gilbertsson
járnkarl
OPTICAL STUDIO/OAKLEY-umboðið á Íslandi
Í tilefni Tour de Hvolsvöllur bjóðum við
AFSLÁTT AF
GLERAUGUM
til mánaðamóta
GUÐBERGUR
BERGSSON
MENNING