Fréttablaðið - 27.06.2013, Page 52
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
TÓNNINN
GEFINN
Freyr Bjarnason
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Plata
1 Robin Thicke / T.I. / Pharrell Blurred Lines
2 Daft Punk / Pharrell Get Lucky
3 Emmelie de Forest Only Teardrops
4 Capital Cities Safe and Sound
5 Botnleðja Panikkast
6 Margaret Berger I Feed You My Love
7 Muse Panic Station
8 Imagine Dragons Demons
9 Maroon5 Love Somebody
10 Macklemore & Ryan Lewis Can’t Hold Us
Sæti Flytjandi Plata
1 Sigur Rós Kveikur
2 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
3 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
4 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
5 Ljótu hálfvitarnir Ljótu hálfvitarnir (2013)
6 Ýmsir Pottþétt 59
7 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
8 KK & Maggi Eiríks Úti á sjó
9 Daft Punk Random Access Memories
10 Retro Stefson Retro Stefson
20.6.2013 ➜ 26.6.2013
Tvær ungar norrænar söng-
konur keppa um hylli landsmanna
þessa dagana með lögum sem þær
sungu í Eurovision-keppninni.
Hin norska Margaret Berger,
sem náði fjórða sætinu með I
Feed You My Love, er í sjötta sæti
íslenska Tónlistans en Emme-
lie de Forest, sigurvegari Euro-
vision, situr í þriðja sætinu með
Only Teardrops.
Emmelie De Forest er tvítug-
ur danskur söngvari og laga-
höfundur sem fæddist í borginni
Randers. Aðeins fjórtán ára
byrjaði hún að
koma fram á
tónleikum
með skoska
þjóðlaga-
tónlistar-
mann-
inum
Fraser Nell. Fjórum árum síðar
flutti hún til Kaupmannahafnar
og fór í söngnám.
De Forest fékk algjöra óska-
byrjun með Only Teardrops og
eru henni núna allir vegir færir.
Lagið verður að teljast nokkuð
hefðbundið Eurovision-lag með
flautu og trommum í stórum hlut-
verkum. Það var samið af hinni
reyndu tónlistarkonu Lise Cabble
og þeim Julie Fabrin Jakobsen
og Thomas Stengaard. Lagið var
gefið út í janúar sem fyrsta smá-
skífa samnefndrar breiðskífu
sem kom út á vegum Universal
Music í Danmörku og náði
það hæst öðru sætinu
þar í landi.
Margaret
Berger hóf
feri l sinn
árið 2004
þegar
hún var
átján ára. Hún hefur gefið út tvær
plötur á vegum stórfyrirtækis-
ins Sony BMG og hlaut norsku
Grammy-verðlaunin 2004 fyrir
besta tónlistarmyndbandið og
fékk tilnefningu sem besti nýlið-
inn. Smáskífulag hennar Pretty
Scary Silver Faire náði vinsæld-
um á dansklúbbum víða um heim.
Berger fékk upptökustjórann
MachoPsycho til liðs við sig við
gerð I Feed You My Love, en hann
hefur unnið með Pink, Kelly Row-
land, Backstreet Boys og Justin
Timberlake. Útkoman er nútíma-
legt popplag með grípandi
takti. Höfundar voru
Karin Park, Robin
Mortensen Lynch
og Niklas Olovsen.
Lynch og Olovsen
sem hafa samið lög
fyrir Pink, Cher
og fleiri þekkta
tónlistar menn.
Eurovision-stjörnur
keppa um vinsældir
Söngkonurnar Emmelie de Forest og Margaret Berger náðu efsta og fj órða
sætinu í Eurovision. Núna keppa þær um hylli íslenskra útvarpshlustenda.
Kanye West er í fremstu röð rapptónlistarmanna eins og sannast á nýjustu plötu
hans Yeezus. Undirtónninn á henni er myrkur og greinilegt að hann er prufa sig
áfram með nýja takta, tóna og hugmyndir.
West er framsækinn rappari, ekki hræddur við nokkurn skapaðan hlut, og
það skilar sér í áhugaverðri tónlist og textum sem halda manni sífellt á sætis-
brúninni.
Ég komst fyrst í kynni við Kanye West þegar ég eignaðist aðra plötu hans,
Late Registration, sem kom út 2005. Þar voru sálaráhrifin áberandi eins og á
fleiri plötum hans. Melódíurnar voru góðar og textar í lögum á borð við Gold
Digger skemmtilegir. Þrátt fyrir að hafa heillast af Late Registration hætti ég ein-
hverra hluta vegna að fylgjast með West, eða þangað til hann sendi frá sér hina
mögnuðu My Beautiful Dark Twisted Fantasy fimm árum síðar.
Á þessu „týnda“ tímabili gaf hann út tvær plötur, fyrst Graduation. Af því sem
ég heyrði af henni í útvarpinu hreifst ég af langmest af Homecoming
með Chris Martin úr Coldplay í gestahlutverki og hugsaði með mér
að West væri bara á fínu róli. Næst gaf hann út hina auto-tjúnuðu
808s & Heartbreak, sem fór einnig fram hjá mér, en ef maður
hlustar á hana núna eru lög á borð við Amazing þrælskemmtileg.
Með My Beautiful Dark Twisted Fantasy má segja að West
hafi snúið aftur af fullum krafti og hann lét ekki þar við sitja,
heldur gaf út, innan við ári síðar, aðra framúrskarandi plötu
með vini sínum Jay-Z, Watch the Throne.
Núna er Yeezus svo komin út og sem fyrr naut rapparinn
aðstoðar góðra manna, þar á meðal Justins Vernon úr Bon
Iver og upptökustjórans Ricks Rubin, og allir hjálpuðust að
við að búa til heilsteypt og skemmtilegt verk.
West er einfaldlega í hörkuformi um þessar mundir og það
verður að teljast harla ólíklegt að ég gefi honum aðra fimm
ára hvíld í framtíðinni.
Framsækinn í fantaformi
Samaris - Samaris
Jeff Beck - Blow by Blow
Bellstop - Karma
Í spilaranum
EMMELIE DE FOREST Danska söng-
konan vann Eurovision-keppnina með
laginu Only Teardrops.
NORDICPHOTOS/GETTY
Stigafj öldi Only
Teardrops í
Eurovision.
281
MARGARET BERGER Á
sjötta vinsælasta lag Íslands
um þessar mundir.
NORDICPHOTOS/GETTY
Stigafj öldi I
Feed You My
Love í Eurovision.
191
HRÍFANDI
OG HLÝ
Hröð og spennandi
saga um Indland
nútímans