Fréttablaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 27.06.2013, Blaðsíða 66
27. júní 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50 Inbee Park frá Suður-Kóreu getur skrifað nafn sitt í sögu bækurnar um helgina með sigri á Opna bandaríska meistaramótinu, þriðja risamóti ársins í kvennagolfinu. Ekki nóg með að hún geti með því orðið fyrst kvenna í rúm 60 ár til að landa fyrstu þremur risatitlum árs- ins, heldur kemur hún sjóðheit inn í þetta mót og hefur unnið síðustu tvö mót á mótaröðinni. Park, sem er 24 ára og komst á topp heimslistans í vor, hefur ann- ars verið á ótrúlegu skriði síðasta árið, þar sem hún hefur sigrað sjö sinnum á síðustu 23 mótum og alls endað 15 sinnum á topp-tíu listan- um. Hún hefur áður unnið á Opna bandaríska, en árið 2008 varð hún yngst allra til að happa þeim titli, einungis 19 ára gömul. Beri hún sigur úr býtum á Sebonack-vellinum í New York- ríki verður hún fyrst kvenna til að vinna þrjú LPGA-mót í röð síðan Lorena Ochoa lék þann leik árið 2008. Hefur gengi hennar undan- farið einmitt verið líkt við þá yfirburði sem Ochoa og Annika Sörenstam á undan henni höfðu í kvennagolfinu á sínum tíma. Park reynir þó sjálf að halda fót- unum á jörðinni. „Ég hef aldrei leikið eins vel á ferlinum og ég er að gera núna,“ segir Park. „Ég ætla bara að reyna að halda þessu áfram.“ Keppnin mun þó reynast Park erfið, þar sem hin bandaríska Stacy Lewis er sennilega efst á blaði, en Lewis missti einmitt toppsæti heimslistans til Park. Lewis segir gengi Park að undan- förnu hafa verið ótrúlegt. „Alltaf þegar mér finnst hún vera spila í meðallagi vel kemur hún strax til baka næsta dag og er alltaf við toppinn. Hún er alltaf þar og alltaf með möguleika á sigri og lætur ekkert á sig fá.“ Bandarískir kylfingar eru ann- ars orðnir langeygir eftir risatitli, þar sem enginn þeirra hefur unnið slíkan titil í níu risamótum í röð, allt frá því að Lewis gerði það sjálf á Kraft Nabisco-meistaramótinu árið 2011. Önnur kona sem gæti komið sterk inn er Skotinn Catriona Matthews, sem tapaði fyrir Park í umspili á síðasta risamóti, LPGA- meistaramótinu. Fjórða risamótið í kvennagolfinu, Opna breska, fer svo fram í ágúst, en í ár ber svo við að fimmta mótið, Evian-meistaramótið í Frakklandi, hefur verið samþykkt sem fimmta risamótið. thorgils@frettabladid.is Sögubækurnar bíða eft ir Inbee Park Inbee Park freistar þess um helgina að vinna þriðja risamótið í röð. Topp- konan á heimslistanum hefur líka unnið síðustu tvö mótin á LPGA-mótaröðinni. Bandaríkja menn freista þess að vinna risamót í fyrsta sinn í síðustu tíu tilraunum. Á FLJÚGANDI SIGLINGU Inbee Park hefur unnið fyrstu tvö risamót ársins og fær tækifæri til að bæta því þriðja við um helgina, en Opna bandaríska meistaramótið hefst á Sebonack-vellinum í dag. NORDICPHOTOS/AFP GOLF Fjórða mótið í Íslands- bankamótaröðinni fyrir börn og unglinga fer fram á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ um helgina hjá golf- klúbbnum Kili. Þetta er fyrsta stóra mótið sem haldið er á vellin- um síðan hann var gerður að átján holu velli. Tólf sterkir kylfingar verða þó fjarverandi um helgina þar sem að þeir taka nú þátt í sterku alþjóð- legu móti í Finnlandi sam tímis. Engu að síður er fullt á mótið enda gríðarlega mikill golfáhugi á meðal barna og unglinga hér á landi. Keppendum er aðeins leyft að vera með kylfubera með sér í yngstu aldursflokkunum. Hins vegar er það í staðarreglunum hjá Kjalarmönnum að leyfilegt verður að vera með aðstoðarmenn á 6., 7., og 8. holu. Ástæðan er sú að krían er með varp þar í kring og getur verið mjög ágeng á kylfinga sem slá utan brautarinnar. Barist við kríuna Fjórða mótið í Íslandsbankamótaröðinni um helgina. HLÍÐARVÖLLUR Mótið um helgina er fyrsta stórmótið sem GKj heldur síðan að Hlíðarvöllur var stækkaður. *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.