Fréttablaðið - 09.08.2013, Page 18
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Þetta ætti að verða gott partí,“ seg-ir Daníel Starrason ljósmyndari. Hann opnar á morgun ljósmynda-
sýningu í Populus Tremula á Akureyri
ásamt félaga sínum Magnúsi Andersen.
Myndirnar á sýningunni eru allar af ís-
lensku tónlistarfólki sem Magnús og
Daníel hafa tekið, ýmist sem kynningar-
efni fyrir tónlistarfólkið eða að eigin
frumkvæði. Um kvöldið verður slegið
upp tónleikum.
„Maggi hefur myndað tónlistarfólk
og hljómsveitir í Reykjavík og ég fyrir
norðan. Við áttum orðið gott safn og
höfðum lengi ætlað okkur að blanda
því saman og sýna. Við stukkum því
til þegar tækifærið gafst hjá Popu-
lus Tremula,“ segir Daníel. „Sýningin
stendur einungis yfir þessa helgi en við
stefnum á að setja hana einnig upp í
Reykjavík á menningarnótt.“
Opnun sýningarinnar er klukkan 14
á laugardaginn og þar munu Daníel og
Inga Eydal flytja nokkur lög. Klukkan 21
hefjast svo tónleikar þar sem hljóm-
sveitirnar Pitenz, Hindurvættir, Buxna-
skjónar og Naught spila ásamt Þor-
steini Kára. „Þetta eru allt norðlenskar
hljómsveitir. Hindurvættir spiluðu á
Eistnaflugi fyrir austan og eru í harðari
kantinum, Buxnaskjónar eru svolítið
pönkaðir og þá er Þorsteinn Kári ungur
og efnilegur tónlistarmaður sem gaman
er að fylgjast með. Þetta er í fyrsta sinn
sem við Magnús sýnum saman. Við
erum báðir í Mediaskolen í Danmörku
og höfum oft verið aðstoðarmenn hvor
annars í verkefnum,“ segir Daníel og
bætir við að stíll þeirra félaga sé ólíkur.
„Myndirnar mínar eru grófari og ég
sýni mikið af svarthvítum myndum.
Magnús er með fíngerðari myndir í fal-
legum litum þar sem nostrað er við
smáatriðin.“
Daníel og Magnús stefna á að ljúka
náminu í Danmörku eftir rúmt ár. Hvað
þá tekur við er óráðið en Daníel segir
þó líklegt að þeir eigi eftir að vinna aftur
saman. Daníel heldur úti ljós myndasíðu
á Facebook, Augnablik á Akureyri, en
nánar má forvitnast um myndir þeirra
félaga á www.danielstarrason.com og
magnusandersen.com.
■ heida@365.is
ROKKAÐ Í TREMULA
LJÓSMYNDASÝNING Daníel Starrason og Magnús Andersen opna
ljósmyndasýningu í Populus Tremula á Akureyri á laugardag. Myndirnar eru
af íslensku tónlistarfólki og um kvöldið verður slegið upp rokktónleikum.
BJÖRN JÖRUNDUR
MYND/DANÍEL STARRASON
RETRO STEFSON RETRO STEFSON
MYND/MAGNÚS ANDERSEN
HEFLARNIR
MYND/DANÍEL STARRASON
SÝNIR Í POPULUS
TREMULA Daníel
Starrason opnar á
morgun sýningu ásamt
Magnúsi Andersen.
MYND/ÁGÚST ATLASON
BOOGIE TROUBLE
MYND/MAGNÚS ANDERSEN
Lengi getur
nýju fólki
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Save the Children á Íslandi