Fréttablaðið - 17.08.2013, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 17.08.2013, Blaðsíða 74
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 20138 Kjartan hefur verið virkur í félagslífinu í Verzlunarskólanum. Kjartan Þórisson er að hefja sitt þriðja ár í Verzlunar-skóla Íslands í næstu viku. „Ég er mjög spenntur að byrja í skólanum. Verzló er eins og stig- magnandi rússíbani. Það verð- ur allt áhugaverðara og skemmti- legra með hverju ári sem líður. Ég byrjaði skólagönguna á að þekkja ekki neinn en í dag get ég labb- að um gangana og heilsað flest- um með nafni. Í ár hef ég sett mér það markmið að prófa eins margt og ég get sem kemur að félagslíf- inu, enda svo margt hægt að gera í Verzló,“ segir Kjartan. „Ég er spenntur fyrir að byrja í skólanum í næstu viku. Það verð- ur gaman að hitta bekkinn og sjá gömul andlit eftir sumarið. Ég hef alltaf nýtt sumarfríin í að hitta gömlu vinina úr grunnskóla til þess að missa ekki tengslin,“ segir Kjartan. Hann stundar nám á hagfræðibraut. „Ég læri heima í þeim fögum sem mér finnst skipta máli. Ég hef til dæmis aldrei tekið upp dönskubók heima hjá mér en ég stend mig ágætlega vel í skóla þrátt fyrir það,“ segir Kjartan. Félagslífið í Verzlunarskólan- um er með því öflugasta á landinu og er góður vettvangur fyrir ung- linga að láta ljós sitt skína. Í fyrra starfaði Kjartan í Málfundafé- laginu og í ár situr hann í ritstjórn Verzlunarskólablaðsins sem verð- ur gefið út í áttugasta skiptið þetta skólaár. „Það verður nóg að gera hjá mér í ár en ásamt því að sinna náminu verður vinnan í blaðinu mikil. Það er varla hægt að kalla þetta annað en bók enda harð- spjalda, nokkur hundruð blað- síður og níðþung,“ segir Kjartan. Í sumar hefur Kjartan verið að vinna hjá sjálfum sér en hann er ásamt vinum sínum að setja upp vefsíðu. „Í byrjun sumars varð ég ástfanginn af vefsíðuhönnun og forritun og ég hef verið að vinna í nokkrum verkefnum í tengslum við það. Núna erum við vinirnir að hanna vefsíðu sem mun von- andi verða opnuð í nóvember,“ útskýrir hann. Það hefur þó sína ókosti að vinna hjá sjálfum sér en Kjartan hefur þurft að velja á milli þess að kaupa sér ný föt fyrir skól- ann og kaupa sér mat í vinnunni. „Það eina sem ég raunverulega þarf fyrir skólann er skólatask- an og tölvan. Bækurnar tínast inn á fyrstu tveimur vikunum. Ég er bara spenntur fyrir að byrja aftur,“ segir Kjartan. Félagslífið skiptir máli Flestir menntaskólar landsins hefjast í næstu viku. Fátækir námsmenn þurfa að vera útsjónarsamir í innkaupum og kunna að lifa spart. Á krepputímum er enn meiri kúnst að lifa af, en hafa ber í huga að oftast er ódýrara og heilnæmara að útbúa máltíðina heima. Hér er uppskrift að ljúffengri enskri „námsmannasteik“ sem er mjög auðvelt að útbúa og bragðast einstaklega vel. Pylsur bakaðar í deigi (Toad in the hole) 2 egg 125 g hveiti 150 ml mjólk, blönduð með 150 ml af köldu vatni 1 msk. grófkorna sinnep Salt og nýmalaður pipar 6 pylsur í dálæti 100 g beikon eða bragðgóð skinka 3 tsk. olía Hrærið saman eggjum, hveiti, mjólk, sinnepi og kryddi þar til deigið er mjúkt og kekkjalaust. Vefjið pylsur inn í beikon eða skinku. Smyrjið bökunarform með olíu, hellið deigi í formið og raðið pylsum ofan á. Bakið í 220°C heitum ofni í 25-30 mínútur, eða þar til bústið og gyllt. Berið fram með brúnni lauksósu eða grófu sinnepi. ÓDÝR NÁMSMANNASTEIK KENNSLA Á NETINU Khan Academy er kennslusíða á netinu sem bandaríski frumkvöðull- inn Salman Khan stofnaði árið 2006. Hann er með þrjár gráður frá MIT; BS-gráðu í stærðfræði og BS- og MEng-gráðu í tölvunar- og rafmagns- verkfræði. Auk þess er hann með MBA-gráðu frá Harvard. Hann stofnaði kennslusíðuna upphaflega fyrir frændsystkini sín, til að geta hjálpað þeim með heimanámið úr fjarlægð. Khan Academy hentar bæði kennurum sem undirbúa nám á ýmsum skólastigum og nemum sem vilja dýpka þekkingu sína heima. Hug- myndin byggir á kennslumyndböndum og verkefnum. Khan Academy er ókeypis og allir geta skráð sig. Hotel and Tourism Management Studies in Iceland & Switzerland Umsóknarfrestur er til 15. ágúst Hótel og Veitingaskóli Íslands Menntaskólanum í Kópavogi Umsókn sendist til baldur.saemundsson@mk.is Fyrsta ár: Joint Certificate programme Hospitality and Culinary School of Iceland Annað & Þriðja ár: Bachelor of International Business in Hotel and Tourism Management César Ritz Colleges Switzerland Skólinn hefst á eftirfarandi dags. Fyrsta ár: 22. águst 2013 Nánari upplýsingar eru veittar hjá: Árni Valur Sólonsson, Sími: 896-2204 eða Baldur Sæmundsson, Sími: 594-4000 WWW.RITZ.EDU YOUR KEY TO A SUCCESSFUL HOSPITALITY CAREER CULINARY PASSION AND EXCELLENCE WWW.CULINARYARTS.CH Choose the Culinary Arts Academy Switzerland. Make your dream of becoming a chef a reality and qualify with a Bachelor degree in Culinary Arts. The finest culinary traditions State-of-the-art training facilities Paid internships In the heart of Europe Icelandic chefs are exempt from Year 1 and qualifi- cations are accredited towards the Icelandic Master Chefs Certificate. Further information please contact Árni Sólonsson Tel: 896-2204 Skrifstofubraut I – staðbundið nám og fjarnám Tveggja anna hagnýt braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar. Kennslutími: Kl. 8:20 – 13:00. Kennsla hefst 22. ágúst Brautin er einnig kennd í fjarnámi – sjá mk.is Upplýsingar veitir fagstjóri hagnýtra viðskipta- og fjármálagreina í síma 594 4000/824 4114. Netfang inga.karlsdottir@mk.is Nám sem nýtist þér! Skrifstofubraut II - rekstrarfulltrúi Tveggja anna framhaldsnám á skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi. Mikil áhersla er lögð á tölvunám, viðskipta- og samskiptagreinar. Inntökuskilyrði: Krafist er þekkingar í ensku, bókfærslu og tölvunotkun. Kennslutími: Kl. 8:20 – 13:00. Kennsla hefst 22. ágúst Brautin er einnig kennd í fjarnámi – sjá mk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.