Fréttablaðið - 26.09.2013, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 26.09.2013, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 26. september 2013 | SKOÐUN | 23 Í dag innheimtir ríkissjóður ekki virðisaukaskatt af raf- magnsbílum sem kosta minna en sex milljónir króna. Auk þess eru hvorki innheimtir tollar af slíkum bílum né vetnisbílum. Ástæðan er einföld. Enn sem komið er kosta rafmagnsbílar töluvert meira en sambærilegir bensín- eða díselbílar og því var talið æskilegt að fella niður tolla og skatta af rafmagnsbílum, a.m.k. tímabundið. Markmiðið er að fleiri sjái sér hag í því að kaupa rafmagnsbíla. Um næstu áramót verður aftur byrjað að innheimta virðis- aukaskatt af rafmagns bílum nema lögin verði framlengd. Ríkisstjórn Íslands þarf því að ákveða hvort betra sé fyrir ríkið að innheimta fullan virðisauka- skatt af rafmagnsbílum eða ekki. Það þarf því að meta hvort fjölgun rafmagnsbíla á Íslandi sé æskileg þróun og raunhæf, eða ekki. Að missa tekjustofn? Vasklausir rafmagnsbílar seljast betur. Ef margir taka upp á því að aka um á slíkum bílum mun þeim mun minna seljast af bensíni og díselolíu á Íslandi. Það er einmitt þetta sem ein- hverjir virðast óttast sem hugsa um hag ríkisins. Ástæðan fyrir óttanum er sú að ríkið fær nokkra milljarða á ári í tekjur af virðisaukaskatti af sölu elds- neytis. Sá skattur stendur undir kostnaði við vegaframkvæmdir og fleira. Þetta hefur heyrst sem ein röksemdafærslan fyrir því að ekki væri gott fyrir ríkið að halda áfram að stuðla að frekari sölu rafmagnsbíla á Íslandi með skattaafslætti. Þetta er sjónarmið út af fyrir sig. Sala á eldsneyti gefur rík- inu jú tækifæri til að innheimta gríðarlegan skatt af bensínsölu sem nýttur er til að fjármagna alls kyns hluti. Þegar nánar er að gáð hljómar þó slíkt tal eins og að betra sé að eiga eyrinn og kasta krónunni. Ef Ísland væri fyrirtæki myndu rök um hversu vont væri fyrir ríkið að missa af innheimtu skatts af eldsneyti hljóma eins og rifrildi milli deilda í fyrir- tækinu. Ríkið er nefnilega eign okkar allra og skattarnir fjár- munir frá eigendum ríkisins. Innheimta skatts af eldsneyti er einungis tilfærsla fjármuna frá einum hópi til annars. Þeir sem kaupa bensínið borga skatt sem er dreift til okkar allra, bæði þeirra sem nota bílana í formi vega og brúa en einnig til annarra hópa ef peningurinn er notaður í eitthvað annað, ótengt bílum. Það að stuðla ekki að fjölgun rafmagnsbíla á þessum for- sendum er því krafa um að þessi millifærsla geti haldið áfram. Eftir sem áður þyrfti fyrir tækið Ísland að kaupa inn eldsneyti fyrir tugi milljarða króna á ári, í erlendum gjaldeyri. Hvatinn til kaupa á rafmagnsbílum væri tekinn burt þegar mikil þörf er á endurnýjun bílaflota lands- manna. Og þetta er kjarni máls- ins. Í stað þess að flytja inn elds- neyti sem mun einungis hækka í verði á komandi árum gætum við notað rafmagn sem við eigum til í miklu magni. Starfsmenn Orku- veitu Reykjavíkur telja að fyrir- tækið geti útvegað orku fyrir allt að 50.000 rafmagnsbíla án þess að þurfa að gera nánast nokkrar ráðstafanir á sínu veitukerfi. Þarf mikið að reikna til að sjá hvor leiðin sé betri? Önnur felur í sér betri nýtingu á hreinni orku sem við eigum sjálf til og kostar lítið sem ekki neitt og hin felur í sér innkaup á gríðar- legu magni af mengandi orku sem við þurfum að borga fyrir með erlendum gjaldeyri sem við eigum ekki til. Nei, það þarf ekki reiknikunnáttu til að sjá hvor leiðin er betri fyrir okkur. Raunhæfir valkostir Fyrir örfáum árum hefði þessi umræða annars öll verið til einskis ef ekki hefði orðið þróun síðustu örfáu misserin sem gjör- breytir stöðunni varðandi fram- boð á rafmagnsbílum. Bæði eru hefðbundnir bílaframleiðendur farnir að bjóða upp á fullkom- lega raunhæfa valkosti eins og þeir vita sem hafa skoðað t.d. Nissan Leaf. Mesta breytingin á þessu sviði er þó vafalaust framleiðsla nýrra rafmagns- bíla á vegum fyrirtækis sem heitir Tesla. Fyrirtækið býður upp á raunverulegan valkost við bensín bíla, m.a. í kjölfar öflugrar stefnumörkunar og hvatakerfis Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum. Fyrir einungis 15 mánuðum höfðu fáir trú á að Tesla tæk- ist það sem það hefur nú gert, sem er að bjóða upp á frábæran bíl sem gengur fyrir rafmagni. Í Bandaríkjunum hefur sá bíll verið valinn besti bíll ársins af nær öllum sem fjalla um bíla auk þess sem hann hefur sprengt öll viðmið hvað varðar öryggi í umferðinni. Allar líkur eru á að bíllinn muni hafa afgerandi áhrif á hraða þróunar í framleiðslu á rafmagnsbílum og draga úr óvissu um hvaða orkugjafi verður ofan á í þessum efnum. Ísland einstakt Viðskiptamódel Tesla gengur hins vegar ekki út á að selja dýra bíla í tiltölulega litlu magni heldur framleiðslu á samkeppnis hæfum bíl sem kostar lítið og á að seljast í miklu magni. Eftir árangur Model S sem selst nú betur en nær allir aðrir bílar í sama gæðaflokki í t.d. Kaliforníu, efast fáir um að Tesla takist ekki þetta ætlunar- verk sitt. Afleiðing þessa er að aðrir bílaframleiðendur gætu nú loksins þurft að spýta í lófana varðandi framboð rafmagnsbíla ef þeir vilja ekki að fari fyrir þeim eins og Nokia og Black- berry eftir að Apple hóf fram- leiðslu á farsímum með nýju sniði fyrir örfáum árum. Við Íslendingar erum í ein- stakri stöðu og getum með vist- vænni orku tekið stærri skref og hraðari en flestir aðrir. Ríkis- stjórnin á að senda þau skilaboð til bíleigenda að við ættum að stefna markvisst að vistvænum bílaflota. Forðumst að ákveða að skola fjármunum niður um eld- húsvaskinn með því að treysta á áframhaldandi skattheimtu af eldsneyti sem við þurfum ekki að flytja inn fyrir erlendan gjaldeyri sem við eigum ekki til. Fullur vaskur af orku Í DAG Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Ef Ísland væri fyrir- tæki myndu rök um hversu vont væri fyrir ríkið að missa af innheimtu skatts af eldsneyti hljóma eins og rifrildi milli deilda í fyrirtækinu. Ríkið er nefnilega eign okkar allra og skattarnir fjármunir frá eigendum ríkisins. Mannréttindi hversdagsins föstudaginn 27. september kl. 13.00 – 16.30 á Grand Hóteli Dagskrá: 13.00 – 13.10 Setning: Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands 13.10 – 13.20 Ávarp: Stefán Thors, ráðuneytisstjóri umhverfis- og auðlindaráðuneytisins 13.20 – 13.40 Aðgengi er forsenda þátttöku – Ný íslensk rannsókn: Steinunn Þóra Árnadóttir, MA í fötlunarfræði 13.40 – 14.00 Algild hönnun: Snæfríður Þóra Egilson, prófessor í fötlunarfræði 14.00 – 14.20 Ný byggingarreglugerð: Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar 14.20 – 14.30 Umræður 14.30 – 15.00 Kaffihlé 15.00 – 15.20 Aðgengi: Upplýsingar og úrbætur: Harpa Cilia Ingólfsdóttir, ráðgjafi og ferlihönnuður 15.20 – 15.40 Aðgengi að alnetinu: Birkir Rúnar Gunnarsson, vefhönnuður hjá Advania 15.40 – 16.00 Hugleiðingar • Aðgengi að náttúrunni: Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar • Aðgengi að menningu: Eva Þórdís Ebenezersdóttir, þjóðfræðingur • Aðgengi að vörum og þjónustu: Ágústa Gunnarsdóttir, ráðgjafi hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga Málþingsstjóri: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Nýprents Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald Síðasti skráningardagur er 26. september Skráning, upplýsingar um túlkun og fleira á vef Öryrkjabandalags Íslands www.obi.is MÁLÞING Aðgengi og algild hönnun ÞÝSK GÆÐAVARA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.