Fréttablaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 1
MARKAÐURINN
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
14
4 SÉRBLÖÐ
Markaðurinn | Stöð 2 | Bílaleigur |
Fólk
Sími: 512 5000
30. október 2013
255. tölublað 13. árgangur
MENNING Sigurvegarar í street dans-
keppni vita fátt skemmtilegra en að
dansa. 30
SPORT Keflvíkingar tala nú um
himnasendingu frá Bandaríkjunum
þegar þeir lýsa Andy Johnston. 26
ÖRYGGI Í ÓBYGGÐUMKatla jarðvangur stendur fyrir námskeiði um helstu atriði í fjallamennsku og rötun í byrjun nóvember. Námskeiðið heitir Öryggi í óbyggðum.
Nánari upplýsingar á www.katlageopark.is.
EyeSlices gelpúðarnir komu á markað hér
á landi í byrjun árs. Þeir kæla og endur-
næra augnsvæðið og gefa bjartari augn-
svip á einungis fimm mínútum. Varan byggir á suður-afrísku hugviti. Hug-myndasmiður þeirra, Kerryne Neufeldt,
hefur verið að heimsækja markaðssvæði
EyeSlices í Evrópu og er nú stödd hér á
landi.
„Í heimalandi mínu er algengara að hugvit sé flutt inn en út. Það er því enn
ánægjulegra að sjá púðana ná útbreiðslu
um allan heim,“ segir Kerryne. En hvernig kviknaði hugmyndin? „Mér
fannst vanta skjótvirka vöru til að lina þrota og þreytueinkenni í kringum augu.
Ég sá glufu á markaðnum sem ég vildi fylla. Árið 1997 kynntist ég vöru sem var sögð meðhöndla þessi vandamál á örskotsstundu. Í fyrstu hugðist ég flytja
hana inn en við nánari skoðun kom í ljós
að gæðin voru af skornum skammti. Ég
ákvað því að þróa vöru með samskonar
eiginleika sjálf í samstarfi við fjölda sér-
fræðinga. Sú vinna tók tíu ár og ég er virkilega ánægð með útkomuna, en klín-
ískar rannsóknir hafa sýnt að varan vinn-
ur á hrukkum, þrota, baugum, þreytuein-
kennum og rauðum augum.“EyeSlices augnayndi sam iöfl
mun. Púðarnir eru seldir tveir saman og
er hvert par nothæft allt að tíu sinnum
séu púðarnir varðveittir í upprunalegum
umbúðum.
Púðarnir eru af tvennum grunn-gerðum; Professional og Biotanix. Síðari
gerðin er af fjórum gerðum og er hver með sínum lit. Grænu Biotanix púðarnir
virka alhliða en vinna helst á þrotbaugum blá
FERSKARI AUGU Á FIMM MÍNÚTUMMAGNUS EHF KYNNIR EyeSlices® gelpúðar lina þrota og bauga og gefa bjartari augnsvip á fimm mínútum. Púðarnir byggja á suður-afrísku hugviti.
Hugmyndasmiður þeirra Kerryne Neufeldt er hér á landi og var hún tekin tali.
VEL TEKIÐ Á ÍSLANDIKerryne, eigandi Eye-Slices, ásamt tæknistjór-anum Toby Neufeldt.
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING!AF VINSÆLU KULDASKÓNUMMEÐ MANNBRODDUNUM
FYRIR
DÖMU
R
OG HE
RRA
Verð:2
4.000.-
DUO silki/merino garnið er komið
Laugavegur 18, 101 Reykjavik Opið mán – fös 11-20 lau 11-17 -sun 12-17sími 511 3399
Ármúla 18, 108 ReykjavikOpið mán – fös 9-18 og lau 11-15 sími 511 3388
www.visir.is
Sími: 512 5000 |
Miðvikudagur 30. október 2013 | 30. tölublað | 9. árgangur
OYSTER PERPETUAL DATEJUST
Prentgripur
STAFRÆN
PRENTUN!
Íslenskir neytendur svartsýnniSvartsýni íslenskra neytenda gagnvart stöðu og
horfum í efnahagslífinu jókst í október í saman-
burði við mánuðinn á undan. Þetta kemur fram í nýbirtri mælingu Vænt-
ingavísitölu Gallup fyrir októbermánuð.
Vísitalan mældist 67,5 stig í október og lækk-
aði um tæp sex stig frá septembermánuði.
Þegar vísitalan er borin saman við sama mánuð
í fyrra sést að hún mældist nú 10,5 stigum
lægri en í október 2012.Þegar þróun vísitölunnar er skoðuð eftir kyni
svarenda sést að konur voru svartsýnni en karl-
ar, bæði í október og september. Munurinn var
37 stig í september og hafði hann þá ekki verið
meiri síðan í maí árið 2004.
Dregur úr tap ekstri NokiaFinnski farsímaframleiðandinn Nokia t paði 91
milljón evra, eða um fimmtán ill
lenskra k ó
MILLJARÐA UPPBYGGING Á SIGLUFIRÐI➜ Viðtal við Róbert Guðfinnsson, athafna-mann frá Siglufirði.
➜ Framkvæmdir við 68 herbergja hótel hefjast
á næstu mánuðum.
➜ Ólík verkefni í ferðaþjónustu og líftækni sam-
einast við smábátahöfnina.
SÍÐA 4
BÍLALEIGURMIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Kynningarblað L ngtímaleiga, þjónusta og góð ráð.
H k i
Langtímaleiga er góður valkostur sem býður upp á hagkvæmari og einfaldari rekstur einkabílsins, segja Ólöf Sif Þráinsdóttir og Ófeigur Friðriksson, viðskiptastjórar hjá Avis bílaleigu.
MYND/DANÍEL
HASAR
Í VÆNDUM
MIÐVIKUDAGUR 3
0. OKTÓBER
22. TÖLUBLAÐ 1. Á
RGANGUR
DAGSKRÁRBLAÐ STÖÐ
VAR 2
SKOÐUN Eiríkur Smári Sigurðarson
skrifar um afköst vísindamanna og
ómarktækan samanburð. 15
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
Paratabs®
Bolungarvík 0° A 13
Akureyri -1° A 7
Egilsstaðir -1° A 8
Kirkjubæjarkl. 2° A 13
Reykjavík 2° A 15
STORMUR eða hvassviðri víða á landinu
í dag. Dregur úr vindi og úrkomu syðra
er líður á daginn en hvessir NV til með
ofankomu síðdegis. 4
FÓTBOLTI Þórir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bands Íslands (KSÍ), ákvað seint í
fyrrakvöld að setja miða á lands-
leik Íslands og Króatíu í sölu
klukkan fjögur í gærmorgun. Mið-
arnir voru upp-
seldir um klukk-
an átta í gær.
Alls voru
5.000 miðar
seldir, en Laug-
ardalsvöllur
tekur 9.700 í
sæti. Stuðnings-
menn Króatíu
fá 1.000 miða,
samstarfsaðilar
KSÍ 1.500 og boðsgestir, stuðnings-
mannahópur landsliðsins og fleiri
aðra 1.500. Ekki hefur fengist gefið
upp hverjir fá 700 miða.
Mögulegt er að einhver miða-
kaup verði bakfærð sé grunur um
að miðar hafi verið keyptir með
endursölu í huga. - ktd / sjá síðu 8
KSÍ seldi miða í nætursölu:
Um helmingur
miða til sölu
MEÐ MAGNÚSI GEIR ÞÓRÐARSYNI
LEIKHÚSFERÐ
TIL
LONDON
Sorphirðugjaldið hækkar um nær 10%
MIKILL VIÐBÚNAÐUR Eiturefnadeild slökkviliðsins fékk föt mannanna til meðhöndlunar á slökkvistöðinni í Skógarhlíð í gær
og fór að öllu með gát eins og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUMÁL Öryggismál í Leifs-
stöð verða endurskoðuð í kjölfar
þess að flytja þurfti fjóra toll-
verði og rannsóknarlögreglumann
á bráðamóttöku í gær með eitrun-
aráhrif vegna amfetamínbasa.
„Það er gefið mál að það verður
gert í framhaldinu af þessu atviki,“
segir Kári Gunnlaugsson yfirtoll-
vörður, sem var ekki einn þeirra
sem þurftu að leita á spítala í gær.
Litháískur karlmaður sem var að
koma frá Ósló hafði verið beðinn
að koma inn á leitarsvæði þar sem
grunur lék á að eitthvað misjafnt
væri að finna í rauðvínsflösku sem
hann hafði í farangrinum. Maður-
inn grýtti flöskunni hins vegar í
gólfið þannig að
hún brotnaði.
„Þetta slett-
ist upp á veggi,
á gólfið og út
um allt. Það er
óhemjuleg lykt
af þessu þann-
ig að við rýmd-
um svæðið og
eitrunardeild
slökkviliðsins
skoðaði það og hreinsaði,“ segir
Kári.
Fimmmenningarnir voru fluttir
í skyndi á bráðamóttöku þar sem
vökvinn var skolaður af þeim. Þeir
fengu höfuðverk, svima og köstuðu
upp, en reyndust þó ekki alvarlega
veikir.
„Maður getur svo sem ekki úti-
lokað neitt, en ég hefði nú ekki
haldið að þetta væri neitt voða-
lega hættulegt,“ segir Kristín
Ólafsdóttir, deildarstjóri hjá
Rannsóknarstofu í lyfja- og eitur-
efnafræðum um amfetamínbas-
ann. Hins vegar sé þung lykt af
basa sem þessum og því sé ekki
óeðlilegt að menn fái eitrunar-
einkenni þótt efnið sé ekki lífs-
hættulegt.
Maðurinn er nú í haldi lögreglu.
Ákveðið verður í dag hvort krafist
verði gæsluvarðhalds yfir honum.
- sh
Fimm á bráðamóttöku eftir að amfetamínbasi slettist um allt við tolleftirlit:
Öryggismál verða endurskoðuð
KÁRI
GUNNLAUGSSON
ÞÓRIR
HÁKONARSON
Leiklistarnám í uppnámi Íslenskur
leiklistarnemi í Danmörku lét ekki
fjármálamisferli stöðva sig. 2
Pólitísk bókajól Stjórnmálamenn
eru iðnir við að gefa út bækur fyrir
jólin. Íslenskum barna- og unglinga-
bókum fjölgar verulega milli ára. 4
Vilja milljónir frá bænum Félag
krefur Hafnarfjarðarbæ um 15 millj-
ónir vegna kostnaðar við útboð. 6
FRÉTTIR
Uppbygging á Siglufirði
Athafnamaðurinn Róbert Guð-
finnsson hefur fjárfest fyrir um þrjá
milljarða króna á Siglufirði.
REYKJAVÍKURBORG Allar gjaldskrár
Reykjavíkurborgar hækka sam-
kvæmt fjárhagsáætlun Reykjavík-
urborgar, en af sviðum borgarinnar
hækka gjöld mest hjá skóla- og frí-
stundasviði.
Flestar gjaldskrár eru sagðar
munu hækka sem nemur verðbólgu,
sem áætluð er 3,4 prósent. Foreldr-
ar leikskólabarna munu hins vegar
þurfa að taka á sig meiri hækkun.
Þannig hækkar mánaðargjald fyrir
barn einstæðra foreldra eða barn
öryrkja í átta tíma vistun um 1.675
krónur, eða sem nemur 10,9 pró-
sentum. Hækkunin er 11,5 prósent
fyrir barn í fimm tíma dagvistun.
Leikskólagjald fyrir barn hjóna
og sambúðarfólks í átta tíma vistun
hækkar úr 25.800 krónum í 28.181
krónu. Hækkunin er 2.301 króna,
eða 8,9 prósent.
Þá hækkar gjald vegna barns
hjá dagforeldri um 9 prósent.
Máltíðir í grunnskólum hækka úr
6.600 krónum í 7.600 á mánuði. Sú
hækkun, sem nemur 15,2 prósent-
um, er sögð vera til að bæta gæði
matarins.
„Það varð ákveðin vísitöluhækk-
un,“ segir S. Björn Blöndal, aðstoð-
armaður Jóns Gnarr borgarstjóra.
Í máli Jóns Gnarr á fundi borg-
arstjórnar í gær kom fram að þrátt
fyrir hækkanir yrðu gjaldskrár
fyrir skóla- og frístundaþjónustu
áfram með þeim allra lægstu á
landinu.
Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
segir gjaldskrár- og skattahækk-
anir á núverandi kjörtímabili
þýða að meðalfjölskyldan greiði
440 þúsund krónum meira á ári.
„Auðvitað finnur fólk fyrir þessu.
Þetta kemur harðast niður á ungu
fjölskyldufólki,“ segir Júlíus Víf-
ill.
Í fjárhagsáætluninni kemur
fram að í útkomuspá fyrir rekstur
borgarinnar og fyrirtækja í eigu
hennar er áætlað að staðan verði
neikvæð um tvo og hálfan millj-
arð króna í lok þessa árs. Gert
er ráð fyrir að þessu verði snúið
rækilega við og að rekstur borg-
arinnar verði jákvæður um rúma
átta milljarða í lok næsta árs. Þar
á Orkuveitan að spila lykilhlut-
verk. - gar, - vg
Gjöld á barnafólk hækkuð
Leikskólagjöld hækka um allt að 11,5 prósent samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár.
Mesta hækka gjöldin á einstæða foreldra og öryrkja. Skólamáltíðir hækka um eitt þúsund krónur, 15,2 prósent.
■ Sorphirðugjald fyrir svarta tunnu við íbúðarhús í tíu daga
hækkar úr 18.600 upp í 20.400 krónur. Hækkunin er 9,7
prósent.
■ Gjöld hækka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Stakt gjald
fyrir börn 5-12 ára hækkar um 50 krónur, eða úr 550
krónum upp í 600. Það gera 9,1 prósents hækkun.
■ Bókasafnskortið hækkar hjá Borgarbókasafninu
um 200 krónur. Fer úr 1.700 krónum upp í 1.900.
Hækkunin nemur 11,8 prósentum.