Fréttablaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 6
30. október 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Á hvaða ferðamannastað hafa rekstr-
araðilar ákveðið að hefja gjaldtöku?
2. Hversu margar leiguíbúðir vantar í
Reykjavík að mati Samtaka leigjenda?
3. Hvaða íslensku hljómsveitir eru
tilnefndar til Tónlistarverðlauna
Norðurlandaráðs?
SVÖR:
1. Geysissvæðinu. 2. Um 3500. 3. Mezzo-
forte og Nordic Aff ect.
DÓMSMÁL Sjálfseignarstofnunin
Sólvellir krefst þess að Hafnar-
fjarðarbær greiði 15 milljónir
króna vegna kostnaðar við útboð
á hjúkrunarheimili á Völlunum.
Sólvellir ses. tóku þátt í útboði
um byggingu hjúkrunarheimilis-
ins á árinu 2010. Það gerði sömu-
leiðis Umönnun ses. sem einn-
ig var metin hæfur bjóðandi.
Eftir kæru Sólvalla var ákvörð-
un bæjarins um hæfi Umönnun-
ar úrskurðuð ógild í febrúar 2011
því aðilar þar tengdust þeim sem
gerðu útboðsgögnin.
„Þá var bara einn eftir og sjálf-
gefið að við færum ekki í alútboð
með einn aðila,“ segir Guðrún
Ágústa Guðmundsdóttir, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar. Guðrún
segir að bærinn hafi í kjölfarið
ákveðið að endurskoða ferlið. Sól-
vellir hafi þá krafist bóta en því
verið hafnað.
Upphaflega útboðið var svokall-
að alútboð; það er bjóðendur áttu
að annast allt verkið, að hönnun
meðtalinni. Guðrún segir að nú
hafi farið fram útboð og samið
hafi verið um hönnunina eina.
Aðrir þættir séu boðnir út sérstak-
lega. Gert sé ráð fyrir að hjúkrun-
arheimilið sem er með sextíu rými
og standi í Skarðshlíð, innst á Völl-
unum, verði tekið í notkun um þar
næstu áramót.
Að Sólvöllum stendur hópur
tengdur hjúkrunarheimilinu Sól-
vangi. Í honum eru Sigþrúður
Ingimundardóttir hjúkrunarfor-
stjóri, Helgi Númason, endur-
skoðandi Sólvangs, og Erna Fríða
Berg, fyrrverandi forstjóri Sól-
vangs, sem jafnframt sat í stjórn
Félags eldri borgara í Hafnarfirði
þegar félagið gerðist stofnaðili að
Sólvöllum.
Í bréfi lögmanns Sólvalla til
Hafnarfjarðarbæjar er sett fram
sundurliðuð ríflega 15 milljóna
króna krafa sem „innborgun“ bæj-
arins vegna kostnaðar sem lagt
hafi verið í. Þá er ítrekað að bær-
inn skuldi Sólvöllum 350 þúsund
krónur í málskostnað vegna kæru
í upphaflega útboðinu.
„Það var ekki tekin formleg
afstaða en ég geri ráð fyrir að
svarið verði með sama hætti og
síðast, að bótakröfu sé hafnað,“
segir bæjarstjórinn sem falið var
af bæjarráði að svara kröfu Sól-
valla.
Guðrún tekur þó fram að til
standi að greiða Sólvöllum fyrr-
nefndan 350 þúsund króna kostn-
að úr kærumálinu. „Að sjálfsögðu
er velkomið að greiða það.“
gar@frettabladid.is
Krefst milljóna fyrir
útboð sem fjaraði út
Hafnarfjarðarbær er krafinn um 15 milljóna króna „innborgun“ upp í bætur vegna
kostnaðar við alútboð á hjúkrunarheimili. Eftir kæru stóðu Sólvellir ses. eftir sem
eini hæfi bjóðandinn. Þá var hætt við útboðið. Borgum ekki, segir bæjarstjórinn.
Þá var
bara einn
eftir og
sjálfgefið að
við værum
ekki að fara í
alútboð með
einn aðila.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar
VALLAHVERFIÐ Nýtt hjúkrunarheimili á að rísa í Skarðshlíð innst í Vallahverfinu í
Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TYRKLAND Tyrkir opnuðu í gær
göng undir Bosporussund, sem ligg-
ur á milli Asíu- og Evrópuhluta stór-
borgarinnar Istanbúl, fjölmennustu
borgar Tyrklands.
Reiknað er með að 1,5 milljónir
farþega fari um göngin daglega með
lest. Það gæti dregið úr umferðar-
teppum sem hafa lengi verið vanda-
mál í Istanbúl vegna þess að brýrn-
ar tvær yfir Bosporussund anna
ekki umferðinni.
Recep Tayyip Erdogan, forsæt-
isráðherra Tyrklands, hefur lagt
mikla áherslu á þessa framkvæmd,
en hann hefur verið gagnrýndur
fyrir bruðl og flottræfilshátt.
Göngin eru alls 13,8 kílómetra
löng, en 1,4 kílómetrar eru undir
sundinu sjálfu.
Erdogan hefur frekari áform um
stórframkvæmdir, meðal annars
um önnur göng til hliðar við þessi
fyrir bílaumferð og þriðju brúna
yfir sundið. Þá vill hann láta gera
nýjan flugvöll í Istanbúl og grafa
stóran skurð fyrir skipaumferð
framhjá Bosporussundi. - gb
Tyrkir opna með viðhöfn lestargöng undir Bosporussund og undirbúa frekari framkvæmdir við sundið:
Neðansjávargöng tengja Evrópu við Asíu
FRAMKVÆMDIR Félagið Þing-
vangur hefur fengið byggingar-
leyfi fyrir tveggja til níu hæða
fjölbýlishúsi með 141 íbúð á
Grandavegi 42 til 44.
Undir húsinu verður bíla-
kjallari á tveimur hæðum með
stæði fyrir 173 bíla. Um er að
ræða svokallað Lýsislóð sem
Þingvangur keypti af Landey
hf., dótturfélagi Arion banka.
Sjávarlóðin hefur verið auð frá
því Lýsishúsið var rifið fyrir sjö
árum. Að því er fram kom á Vísi
í nóvember í fyrra gerir skipu-
lag ráð fyrir hjúkrunarheimili í
hinum enda lóðarinnar. - gar
Byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á Grandavegi 42 til 44:
Leyfa háhýsi með 141 íbúð
GRANDAVEGUR Hús Lýsis var rifið
2006. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
➜ Göngin undir Bosporus
Gullna hornið
Istanbúl
Sirkeci
Evrópa
Yenikapi
Höfn
Bosporussund
Topkapi-höllin
Sofíukirkjan
Bláa moskan
Üsküdar
Asía
1 km
H
ei
m
ild
: M
ar
m
ar
ay
VEISTU SVARIÐ?
Á morgun 31. október gefur Íslandspóstur út jólafrímerkin
2013 og frímerkjaröð tileinkaða íslenskri myndlist auk
frímerkis til að minnast 100 ára afmælis Morgunblaðsins.
Jólaprýði Póstsins 2013 er tileinkuð þremur kirkjum.
Myndefni jólafrímerkjanna er fengið úr steindum glugga
yfir dyrum Hallgrímskirkju eftir Leif Breiðfjörð. Svonefndur
AR-kóði er byggður inn í jólafrímerkin. Með því að hlaða
niður sepac stamps-appinu í snjallsíma eða spjaldtölvu
má skoða gluggann í heild sinni og Hallgrímskirkju frá
ýmsum sjónarhornum og jafnframt njóta orgelleiks
Harðar Áskelssonar.
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á
pósthúsum um land allt. Einnig er
hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni.
Sími: 580 1050 Fax: 580 1059
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
Safnaðu litlum lis taverkum
FERÐAÞJÓNUSTA Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, telur að það verði flók-
ið fyrir landeigendur á Geysi að innheimta sjálfir
gjald af ferðamönnum þar sem ríkið eigi hluta af
landinu í Haukadal.
Hún telur best að allir ferðamannastaðir verði
með í náttúrupassa sem hún vonar að verði lögfest-
ur snemma á næsta ári.
Eins og fram hefur komið ætla landeigendur á
svæðinu að innheimta gjald af ferðamönnum fyrir
að skoða svæðið. Gjaldið á að standa undir upp-
byggingu á svæðinu. Málið er flókið þar sem ríkið
á 35 prósent lands á svæðinu, þar með talið þann
hluta landsins þar sem hverirnir Geysir og Strokk-
ur eru.
Ragnheiður vill ekki útiloka fyrr en á reyni að
ekki verði hægt að ná samkomulagi við landeigend-
ur. Það sé mjög aðkallandi að bæta aðstöðu á ferða-
mannastöðum um allt land, en eftir sé að útfæra
hvernig fjármagni verði deilt á milli staða.
„Ég get ekki lofað á þessu stigi máls hversu
mikið hver fær. Það er seinni tíma mál. En mark-
miðið er klárlega að tryggja fjármagn,“ segir
Ragnheiður.
Í yfirlýsingu frá Samtökum ferðaþjónustunnar
er áformum um gjaldtöku á Geysissvæðinu mót-
mælt harðlega. Þar segir að samtökin séu reiðu-
búin til viðræðna við stjórnvöld um útfærslu á
náttúrupassanum. - bj, hmp
Ráðherra áformar að náttúrupassinn verði lögfestur snemma á næsta ári:
Flókið að rukka inn við Geysi
GOSHVERIR Bæði Geysir og Strokkur eru á landi sem tilheyrir
ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM