Fréttablaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 26
Fyrsta myndin af átta í einum flottasta ævin-
týrabálki síðari ára verður sýnd á Stöð 2 næst-
komandi föstudagsvöld.
Harry Potter er ellefu ára munaðarlaus
drengur sem missti foreldra sína á voveifleg-
an hátt. Hann elst upp hjá frændfólki sínu og
á ekki sjö dagana sæla. Þegar Harry kemst
að því að hann er göldróttur og fær inngöngu í
Hogwarts-galdraskólann, tekur líf hans óvænta
og ævintýralega stefnu. Það verður þó enginn
dans á rósum. Harry á sér öfluga og stórhættu-
lega óvini sem tengjast dauða foreldra hans.
Ásamt vinum sínum Hermione og Ron tekst
Harry á við áskoranir sem virðast óyfirstígan-
legar ellefu ára dreng.
Sagan um Harry Potter hefur farið sigurför
um heiminn síðan fyrsta bók J.K Rowling kom
út árið 1997. Alls urðu bækurnar sjö og hafa
allar verið kvikmyndaðar.
Daniel Radcliffe fer á kostum í hlutverki
Harrys. Hann hafði áður leikið í sjónvarps-
þáttum um töframanninn David Copperfield en
vakti athygli framleiðanda Harry Potter þegar
þeir voru báðir gestir í leikhúsi og Daniel heill-
aði nærstadda með einlægri forvitni sinni.
Emma Watson og Rupert Grint, sem fara
með hlutverk Hermione og Ron, höfðu
enga reynslu af kvikmyndaleik en
voru valin úr hópi þúsunda barna.
Þau unnu hug og hjörtu áhorf-
enda með einlægum leik, einung-
is tíu og ellefu ára.
„Ég ætlaði mér reyndar bara að verða sér-
fræðingur í kaffi en eftir 23 ár í brans-
anum vildi ég gera það sama við matinn,“
segir Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi og
stofnandi Kaffitárs, sem nú hefur fært
út kvíarnar og opnað matvælafyrirtækið
Kruðerí Kaffitárs.
„Við höfum ætíð státað okkur af kaffi
án krókaleiða og 75 prósent kaffis sem við
framleiðum kemur frá bændum sem við
þekkjum og eru með afbragðsvöru. Fyrir
það greiðum við um 30 prósent hærra verð
en Fair Trade-verðið en fáum í staðinn frá-
bært hráefni,“ útskýrir Aðalheiður.
Kaffihús Kaffitárs eru opin flesta daga
ársins og að sögn Aðalheiðar hefur verið
vandkvæðum bundið að fá ferskt brauð
og kökur send á átta kaffihús frá bökur-
um. Því ákvað hún að stofna Kruðerí sem
framleiðir matvöru Kaffitárs frá grunni
úr besta fáanlega hráefni.
„Við þurfum daglega ferska matvöru á
kaffihúsin og höfðum áður bakað kökur
en keypt inn frosin, forbökuð brauð, eins
og margir. Hugmyndafræðin er að fram-
leiða matvæli sem eru frábærlega góð eins
og kaffið okkar en einnig rekjanleg því
æ fleiri verða meðvitaðir um hvað þeir
borða. Við forðumst því skyndilausnir til
að vera fljótari eða láta kökurnar endast
lengur,“ segir Aðalheiður um góðgætið
sem þegar býðst gestum.
„Beyglurnar fást nú nýbakaðar frá
grunni í Kruðeríi og í krósantið notum við
einungis íslenskt smjör sem gerir þau ein-
staklega stökk og ljúffeng.“
Meðlimir Stöðvar 2 Vildar fá 15%
afslátt af öllum vörum Kaffi társ
fyrsta mánuðinn en eftir það tekur
við 20% afsláttur af öllum kaffi pökk-
um. Sjá nánar á www.kaffi tar.is.
EKTA KRUÐERÍ
OG KAFFITÁR
Meðlimir í Stöð 2 Vild fá framvegis frábær afsláttarkjör
af kaffipökkum Kaffitárs. Nú er bakað ekta krósant,
íslenskar beyglur og gómsætt kruðerí fyrir kaffihús þess.
HARRY POTTER
Í NÓVEMBER
Myndirnar um Harry Potter verða sýndar á Stöð 2
á föstudagskvöldum í nóvember.
Aðalheiður Héðinsdóttir,
eigandi Kaffi társ.
MYND/STEFÁN
Daniel Radcliffe
● Lék á sviði bæði í London og New York
eftir að Harry Potter lauk. Fyrsta kvik-
myndahlutverk hans þar á eftir var The
Woman in Black árið 2012.
● Daniel var einn af sex launahæstu Holly-
wood-leikurunum árið 2010.
Emma Watson
● Sagðist „aldrei þurfa að vinna launaða
vinnu framar“ eftir að síðasta myndin
um Harry Potter kom út árið 2007.
● Árið 2010 var hún launahæsta leikkonan
í Hollywood en það ár þénaði hún 19
milljónir dollara.
Rupert Grint
● Segir vináttu þeirra
þriggja eins og systk-
inasamband.
● Rupert lét æskudraum
sinn rætast þegar
hann fékk launatékk-
ann sinn í Harry Pott-
er og keypti sér ísbíl.
● Kvikmyndaferill
Ruperts fór rólega af
stað. Næsta kvikmynd
hans verður Enemy of
Man en tökur hefjast
eftir áramótin.
1. nóvember 2013 Harry Potter and the Philosopher‘s Stone (2001)
8. nóvember 2013 Harry Potter and the Chamber of Secrets (2002)
15. nóvember 2013 Harry Potter and the Prisoner of Azkaban (2004)
22. nóvember 2013 Harry Potter and the Goblet of Fire (2005)
29. nóvember 2013 Harry Potter and the Order of the Phoenix (2007)
KOLLA
Miðvikudag
kl. 20.25
SÆLKERAFERÐIN
Fimmtudag
kl. 20.05
LOGI Í BEINNI
Föstudag
kl. 19.45
SPAUGSTOFAN
Laugardag
kl. 19.30
ÁSTRÍÐUR
Sunnudag
kl. 20.40
UM LAND ALLT
Mánudag
kl. 20.05
BONES
Þriðjudag kl. 21.15
LÍFIÐ EFTIR HARRY POTTER
2 MIÐVIKUDAGUR 30. október 2013
ÓMISSANDI
Í VIKUNNI
HARRY POTTER AND THE PHILOSPHER’S STONE
Föstudag 1. nóvember kl. 21