Fréttablaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 23
BÍLALEIGUR
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Kynningarblað Langtímaleiga, þjónusta og góð ráð.
Bílamarkaður hérlendis hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár. Bæði almenningur og fyrirtæki eru sí-
fellt meira að átta sig á því að lítið vit er að
fjárfesta í dýrum bílum sem auk þess eyða
miklu og menga mikið. Ófeigur Friðriksson
og Ólöf Sif Þráinsdóttir, sem bæði starfa sem
viðskiptastjórar hjá Avis bílaleigu, benda á
að á flestum heimilum landsins er bíllinn
stærsti útgjaldaliðurinn á eftir húsnæðis-
kostnaði. „Það er ekki nóg með að bíllinn sé
dýr í rekstri heldur hafa sviptingar á gengis-
og lánamörkuðum síðustu árin kennt mörg-
um að bílakaupum getur fylgt mikil áhætta
og veruleg fjárhagsleg ábyrgð,“ segir Ófeig-
ur. Aðrir bíleigendur hafa lært þá dýru lexíu
að flókið sé að reikna dæmið til enda þegar
kemur að bílakaupum; afborganir af lánum
eru bara hluti af kostnaðinum og á þá eftir að
gera ráð fyrir verðrýrnun, viðhaldi, bifreiða-
tryggingum, opinberum gjöldum og endur-
söluáhættunni.
Mikil hagkvæmni
Að sögn Ólafar er því langtímaleiga góður
valkostur sem hjálpar til við að gera rekst-
ur einkabílsins bæði hagkvæmari, fyrirsjá-
anlegri og jafnvel einfaldari. „Langtímaleig-
an sækir á með hverju árinu. Þessi valkostur
hentar stórum hópi fólks, hvort sem það getur
ekki eða vill ekki taka bílalán og svo hins
vegar þeim sem ekki vilja leggja út fyrir stórri
innborgun eða greiða nýjan bíl út í hönd.“
Þau benda á að langtímaleiga sé í raun
hugarfarsbreyting hjá fólki. „Langtímaleiga
er ákjósanlegur kostur fyrir marga og gerir
það mögulegt að fá bíl á heimilið án nokk-
urrar fjárfestingar. Einungis er greidd leiga
mánaðar lega. Auk þess hafa margir slæma
reynslu af kaupleigusamningum þar sem
þeir hafa fengið óvænta og háa bakreikninga
vegna minniháttar skemmda.“
Ef viðskiptavinir vilja hætta í viðskiptum
áður en samningurinn er á enda þarf einung-
is að greiða tveggja mánaða uppgreiðslugjald.
„Síðan er einfalt mál að skipta um bíl á samn-
ingstímanum, ef til dæmis breytingar verða á
fjölskylduhögum.“
Mikið úrval bíla
Hámarksleigutíminn er þrjú ár og er lág-
markslengdin einn vetur. Viðskiptavinir
geta valið bíla úr öllum flota Avis bílaleigu en
þar er hægt að finna yfir 60 ólíkar tegundir af
bílum. Um fjórðungur bílaflotans er vistvænn
en sá hluti fer stækkandi í takt við aukna um-
hverfisvitund viðskiptavina, að sögn Ófeigs
og Ólafar.
Til að nefna dæmi um mánaðargreiðslur
nefna þau að bíll á borð við Hyundai i10
kosti frá 46.900 kr. á mánuði. Innifalið í þeim
samningi eru allt að 20.000 km. á hverju 12
mánaða tímabili sem er í samræmi við árleg-
an meðalakstur innanbæjar. Auk þess inni-
heldur leigan árstíðabundin dekkjaskipti,
eftirlit, olíuskipti, viðhald, bifreiðagjöld og
tryggingar, þar með talið kaskótryggingu.
„Það eina sem leigjandinn greiðir er það bens-
ín sem er notað við aksturinn. Ekki er um
neina innborgun að ræða eða aukagreiðslur
af nokkrum toga en leiguverðið er tengt við
vísitölu neysluverðs.“ Viðskiptavinir í lang-
tímaleigu geta einnig fengið afnot af stærri
bílum á góðum kjörum ef halda þarf út fyrir
bæinn eða skjótast milli landshluta yfir vet-
urinn.
Hagkvæmari rekstur einkabílsins
Langtímaleiga á bifreiðum sækir á með hverju árinu. Sífellt fleiri sjá kosti þess að fjárfesta ekki í dýrum bílum heldur nýta sér
langtímaleigu. Viðskiptavinir greiða mánaðargjald og er öll nauðsynleg þjónusta innifalin utan bensíns.
Viðskipta-
vinir sem
vilja leiga
í lang-
tímaleigu
geta valið
úr rúmlega
60 ólíkum
bílategund-
um hjá Avis
bílaleigu.
MYND/DANÍEL
Langtímaleiga er góður valkostur sem býður upp á hagkvæmari og einfaldari rekstur einkabílsins, segja Ólöf Sif Þráinsdóttir og Ófeigur Friðriksson, viðskiptastjórar hjá Avis bílaleigu. MYND/DANÍEL
Kynntu þér langtímaleigu
Bílaleiga
0 kr. útborgun - Ekkert vesen