Fréttablaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 46
MENNING 30. október 2013 MIÐVIKUDAGUR
BÆKUR ★★★ ★★
Alla mína stelpuspilatíð
SIGRÍÐUR KRISTÍN ÞORGRÍMSDÓTTIR
MÁL OG MENNING
Alla mína stelpuspilatíð er ævi-
saga „venjulegrar konu“, Sigríð-
ar Kristínar Þorgrímsdóttur sem
er að nálgast sextugt þegar hún
sest niður og skrifar endurminn-
ingar sínar. Hún er hvorki fræg né
alræmd og hefur ekki lifað neina
stóratburði umfram flesta jafn-
aldra sína. Samt er líf hennar í
frásögur færandi. Saga hennar er
merkileg, bæði sem spegill á þá
tíma sem hún hefur lifað og sem
heiðarleg og opinská saga einstak-
lings.
Eins og oftast vill verða með
endurminningar eru kaflarnir
sem lýsa æsku og uppvexti Sig-
ríðar áhugaverðastir. Sigríður
ólst upp við óvenjulegar aðstæð-
ur. Hún er dóttir Jakobínu Sig-
urðardóttur skáldkonu í Garði í
Mývatnssveit og Starra Björg-
vinssonar. Fjölskyldan er bæði
venjuleg og óvenjuleg í samhengi
sveitalífsins. Annars vegar er
þetta bændafólk með barnahóp
þar sem karlinn sinnir útiverkum
og konan fer með allt innan stokks.
Á hinn bóginn er fjölskyldan líka
óvenjuleg og utangarðs, Jakob-
ína og Starri voru bæði róttæk og
vinstrisinnuð í skoðunum og hús-
freyjan ofan á allt annað
skáld sem skrif-
aði umdeildar
bækur bæði
vegna orðfær-
is og skoðana.
Eins og nærri
má geta bitn-
ar þetta á börn-
unum, hlutskipti
þeirra í skóla verð-
ur að berjast fyrir
tilveru sinni gegn
einelti og árásum.
Til að flækja málin
enn frekar býr afi Sig-
ríðar á heimilinu og er
þungur kross að bera.
Hann er líklega veikur
á geði á tímum þar sem
minni hjálp var að fá en
í dag og afleiðingarnar eru
ofbeldi, bæði líkamlegt og andlegt.
Lýsingin á honum í bókinni er ekki
löng en áhrifamikil.
Auðvitað er forvitni manns um
móður Sigríðar, Jakobínu, mest.
Á nokkrum stöðum í bókinni er
vitnað í bréf frá henni og henni
er fallega lýst, tilvera hennar sem
nútímahöfundar í sveitinni hefur
ekki alltaf verið tekin út með sæld-
inni. Forvitni manns um Jakobínu,
ævi hennar og hlutskipti er þó
hvergi nærri svalað og það hefði
verið áhugavert að fræðast meira
um hana.
Þegar bernskunni og ungdómn-
um lýkur taka við rótlaus ár þar
til söguhetjan finnur sjálfa sig í
námi og einkalífi, finn-
ur sér starfsvettvang og
stofnar fjölskyldu. Þessir
kaflar bókarinnar heilla
ekki jafn mikið og fyrri
hlutinn og vangaveltur
um samfélag og sögu,
samskipti kynjanna
og fleira í þeim dúr
verða á köflum full-
spjallkenndir og
endurtekningasam-
ir. Sigríður flétt-
ar víða tilvitn-
anir inn í texta
sinn, vitnar oft
í gömul bréf og
ljóð ættingja
sinna og það
er iðulega fróðlegt og
stundum stórmerkilegt. Tilvitn-
anir í aðra, skáldskap, fræði og
aðra texta bæta á hinn bóginn litlu
við frásögn og vangaveltur hennar
sjálfrar. Meðal annars þess vegna
verður seinni hluti bókarinnar svo-
lítið sundurlaus og undirritaður
tengdi ekki við hann. Það breytir
því þó ekki að þegar á heildina er
litið er þetta fróðleg bók og áhuga-
verð, fyrir þá sem ekki þekkja það
samfélag og þann tíma sem hún
fangar, en kannski ekki síst fyrir
þá sem deila reynslu Sigríðar á
einhvern hátt og geta speglað sig
í henni. Jón Yngvi Jóhannsson
NIÐURSTAÐA: Áhugaverð ævisaga,
uppfull af vangaveltum um samfélag
og sögu sem oft hitta í mark.
Ævisaga og aldarspegill
„Þetta verk er að miklu leyti unnið
upp úr ævisögu og Eldriti Jóns,
auk annarra heimilda,“ segir Pétur
Eggerz um einleik sinn Eldklerkinn
en hann fjallar um líf og störf séra
Jóns Steingrímssonar sem frægur
varð fyrir eldmessu sína sem talin
var hafa stöðvað hraunrennslið í
Skaftáreldum árið 1783. „Ég skrif-
aði textann en síðan unnum við Sig-
rún Valbergsdóttir leikstjóri hann
áfram í sameiningu.“
Verkið hefur verið um tvö ár í
vinnslu að sögn Péturs en með-
göngutíminn er þó mun lengri.
„Upphafið má rekja til þess að í
æsku var ég í sveit í Meðallandinu
og þar er þetta hraun og sögurn-
ar af Skaftáreldum mjög nærri.
Þannig að þessir viðburðir hafa
verið mér hugstæðir alveg síðan
þá. Upphaflega var nú meiningin
að gera leikverk fyrir börn sem
gerðist í Skaftáreldum en þegar
nánar var skoðað var saga Jóns
bara svo mikil og merkileg að hún
kallaði á það að yrði séreinleikur
um hann, ætlaður fyrir fullorðna.“
Eldklerkurinn var forsýndur í
Hallgrímskirkju um síðustu helgi
en eiginleg frumsýning fer fram
á Kirkjubæjarklaustri á föstu-
dagskvöldið. Síðan verður sýnt í
Hallgrímskirkju á sunnudaginn
og tvær næstu helgar, en Pétur
segir framhaldið ráðast nokkuð
af undirtektum. Ætlunin sé þó að
fara með leikinn aftur á söguslóð-
ir og jafnvel tengja hann menn-
ingartengdri ferðaþjónustu næsta
sumar.
Sýningin er á vegum Möguleik-
hússins, það er Pétur sem skrifar og
leikur, Sigrún Valbergsdóttir leik-
stýrir, leikmynd gerði Rósa Sigrún
Jónsdóttir, búninga Thelma Björns-
dóttir og hljóðmynd er eftir Guðna
Franzson. fridrikab@frettabladid.is
Saga Jóns er svo
mikil og merkileg
Eldklerkurinn, nýr einleikur eft ir Pétur Eggerz, verður frumsýndur á Kirkjubæjar-
klaustri um helgina. Verkið er byggt á ritum séra Jóns Steingrímssonar, eld-
klerksins úr Skaft áreldum. Sýningar verða í Hallgrímskirkju næstu þrjár helgar.
LÖNG MEÐGANGA „Upphafið má rekja til þess að í æsku var ég í sveit í Meðallandinu,“ segir Pétur um kveikju Eldklerksins.
Í Pfaff laugardaginn
2. nóvember frá kl. 11–16
Huskylock S-15 – verð kr. 79.900
Tilboð kr. 64.900
Singer – verð kr. 69.900
Tilboð kr. 54.900
Frábær tilboð á saumavélum
og overlockvélum
• Sýnikennsla – Hvernig á að sauma
barnaföt – jólaföt fyrir stelpur og stráka.
• Nýjasta nýtt – Snið og ný efni frá
Föndru sýnd.
Husqvarna Emerald 116 – verð kr. 54.900
Tilboð kr. 44.900
Husqvarna Emerald 118 – verð kr. 64.900
Tilboð kr. 54.900
Husqvarna Opal 650 – verð kr. 109900
Tilboð kr. 89.900
Saumum
saman
barnaföt
25% afsláttur
af fylgihlutum
fyrir saumavélar
Pfaff Grensásvegi 13 Sími 414 0400 www.pfaff.is