Fréttablaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 50
30. október 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26SPORT
KEFLAVÍKURLIÐIN
BÆÐI Á SIGURBRAUT
STRÁKARNIR 6 SIGRAR Í RÖÐ
98-77 sigur á Þór Þ. Lengjubikarinn
96-70 sigur á Snæfelli Lengjubikarinn
89-58 sigur á KR Lengjubikarinn
88-63 sigur á Stjörnunni Dominos-deildin
95-67 sigur á KFÍ Dominos-deildin
88-85 sigur á Njarðvík Dominos-deildin
Hafa unnið 11 af 12 keppnis-
leikjum undir stjórn Andys Johnston
STELPURNAR 8 SIGRAR Í RÖÐ
83-35 sigur á Stjörnunni Lengjubikarinn
92-70 sigur á Hamar Lengjubikarinn
77-74 sigur á Val Meistarakeppni KKÍ
76-74 sigur á Haukum Dominos-deildin
84-67 sigur á Grindavík Dominos-deildin
86-85 sigur á Val Dominos-deildin
79-63 sigur á Hamar Dominos-deildin
73-64 sigur á Njarðvík Dominos-deildin
Hafa unnið 8 af 10 keppnisleikjum
undir stjórn Andys Johnston.
KÖRFUBOLTI Falur Harðarson og félagar í
stjórn Körfuboltadeildar Keflavíkur tóku
stóra ákvörðun í sumar, ákvörðun sem kom
mikið á óvart en er heldur betur farin að
borga sig.
Ákveðið var að Sigurður Ingimundarson,
sigursælasti körfuboltaþjálfari landsins, yrði
ekki áfram með meistaraflokkana en í staðinn
myndi stjórnin ráða Bandaríkjamanninn Andy
Johnston fyrir bæði liðin.
„Það eru alltaf einhverjir óánægðir,“ segir
Falur Harðarson, formaður Körfuknattleiks-
deildar Keflavíkur, um viðbrögðin við að láta
Sigurð fara í sumar.
Tveir mánuðir eru nú liðnir af tímabilinu,
báðir meistaraflokkarnir hafa unnið alla sína
leiki í Dominos-deildunum og bæði lið hafa
þegar unnið sinn titilinn hvort.
„Það er langt frá því að ég geti eignað mér
heiðurinn einn af þessu því það var sameigin-
leg ákvörðun stjórnarinnar að breyta til og fá
ferska vinda inn í starfið,“ segir Falur.
Falur Harðarson hefur haldið góðu sam-
bandi við Glenn Thomas sem þjálfaði Hauka
1990-91 og útvegaði Fal skólavist í Bandaríkj-
unum á sínum tíma. „Glenn kom okkur í sam-
band við Andy og okkur Alla (Albert Óskars-
son) leist svona svakalega vel á hann. Við Alli
tókum með honum þrjá eða fjóra Skype-fundi
og fengum þessa himnasendingu,“ segir Falur.
Falur segir að Andy hafi breytt miklu hjá
liðinu og það hafi reynt mikið á mannskap-
inn til að byrja með. „Þetta er ekki búinn að
vera einhver dans á rósum. Leikmennirnir
eru búnir að leggja gríðarlega mikið á sig í að
skipta algjörlega um leikskipulag. Það er allt
alveg nýtt í sókninni og það hefur enginn spil-
að þetta áður,“ segir Falur og bætir við:
„Það eru menn sem eru búnir að vera lengi í
körfubolta sem sögðu það eftir fyrstu vikurn-
ar að þeim liði eins og þeir kynnu ekki neitt
í íþróttinni,“ segir Falur og sögusagnir eru
á kreiki um þéttskrifaðar töflur inni í klefa
fyrir hvern leik.
„Að mínu mati er snilldin við þetta kerfi hjá
honum að þetta er ekki fyrir einhverja súper-
stjörnu því það eiga allir sinn möguleika. Það
er það sem við erum að sjá bæði í karla- og
kvennaliðinu. Það er ekkert verið að taka skot-
kerfi fyrir Magga Gunnars því það er bara
verið að hlaupa kerfið og þá kemur inn körfu-
boltagreindin sem allir þurfa að hafa til að
meta hvað leikurinn er að bjóða upp á,“ segir
Falur.
„Við Alli Óskars tókum það að okkur að tala
við Andy á sínum tíma og við fórum í gegn-
um það með honum hvernig körfubolta hann
vildi spila. Við hefðum aldrei ráðið einhvern
gæja sem hefði látið liðið spila labbandi sókn
á hálfum velli sem Keflavík hefur aldrei verið
þekkt fyrir,“ segir Falur. Hann segir Andy
líka vera með mikinn aga og að hann sjái mun
á því hvað leikmenn liðsins eru minna að röfla
í dómurunum.
„Þetta er yndislegur maður og með körfu-
bolta sem sitt stærsta áhugamál. Hann hefur
mikla ástríðu fyrir körfuboltanum. Hann var
með frábært viðhorf þegar við sögðum við
hann að til þess að þetta væri hægt fjárhags-
lega þá yrði hann að vera með bæði liðin. Þá
sagði hann að hann hefði ekki mikið komið
nálægt því að þjálfa kvenfólk en að það yrði
ekkert vandamál. Það er hægt að kenna öllum
að spila körfubolta sagði hann,“ rifjar Falur
upp. Keflavík hefur ekki unnið stóra titla ennþá
en frammistaða liðanna tveggja lofar góðu.
„Það er nóg eftir af tímabilinu en það er
ekkert að því að njóta þess á meðan vel geng-
ur,“ sagði Falur að lokum. ooj@frettabladid.is
Við fengum himnasendingu
Andy Johnston er með bæði Kefl avíkurliðin á toppi Dominos-deildanna í körfubolta. Falur Harðarson og
félagar í stjórninni vildu fá ferska vinda inn í körfuboltann í Kefl avík og sjá ekki eft ir ákvörðun sinni.
AÐ STÖRFUM Andy Johnston talar við leikmenn kvennaliðsins. Falur Harðarson er til hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Láttu hjartað ráða
„Hrískökurnar mínar eru glútenlausar og góðar
með ýmsu áleggi. Þær eru hollar og henta því vel
á milli mála.“