Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.10.2013, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 30.10.2013, Qupperneq 50
30. október 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26SPORT KEFLAVÍKURLIÐIN BÆÐI Á SIGURBRAUT STRÁKARNIR 6 SIGRAR Í RÖÐ 98-77 sigur á Þór Þ. Lengjubikarinn 96-70 sigur á Snæfelli Lengjubikarinn 89-58 sigur á KR Lengjubikarinn 88-63 sigur á Stjörnunni Dominos-deildin 95-67 sigur á KFÍ Dominos-deildin 88-85 sigur á Njarðvík Dominos-deildin Hafa unnið 11 af 12 keppnis- leikjum undir stjórn Andys Johnston STELPURNAR 8 SIGRAR Í RÖÐ 83-35 sigur á Stjörnunni Lengjubikarinn 92-70 sigur á Hamar Lengjubikarinn 77-74 sigur á Val Meistarakeppni KKÍ 76-74 sigur á Haukum Dominos-deildin 84-67 sigur á Grindavík Dominos-deildin 86-85 sigur á Val Dominos-deildin 79-63 sigur á Hamar Dominos-deildin 73-64 sigur á Njarðvík Dominos-deildin Hafa unnið 8 af 10 keppnisleikjum undir stjórn Andys Johnston. KÖRFUBOLTI Falur Harðarson og félagar í stjórn Körfuboltadeildar Keflavíkur tóku stóra ákvörðun í sumar, ákvörðun sem kom mikið á óvart en er heldur betur farin að borga sig. Ákveðið var að Sigurður Ingimundarson, sigursælasti körfuboltaþjálfari landsins, yrði ekki áfram með meistaraflokkana en í staðinn myndi stjórnin ráða Bandaríkjamanninn Andy Johnston fyrir bæði liðin. „Það eru alltaf einhverjir óánægðir,“ segir Falur Harðarson, formaður Körfuknattleiks- deildar Keflavíkur, um viðbrögðin við að láta Sigurð fara í sumar. Tveir mánuðir eru nú liðnir af tímabilinu, báðir meistaraflokkarnir hafa unnið alla sína leiki í Dominos-deildunum og bæði lið hafa þegar unnið sinn titilinn hvort. „Það er langt frá því að ég geti eignað mér heiðurinn einn af þessu því það var sameigin- leg ákvörðun stjórnarinnar að breyta til og fá ferska vinda inn í starfið,“ segir Falur. Falur Harðarson hefur haldið góðu sam- bandi við Glenn Thomas sem þjálfaði Hauka 1990-91 og útvegaði Fal skólavist í Bandaríkj- unum á sínum tíma. „Glenn kom okkur í sam- band við Andy og okkur Alla (Albert Óskars- son) leist svona svakalega vel á hann. Við Alli tókum með honum þrjá eða fjóra Skype-fundi og fengum þessa himnasendingu,“ segir Falur. Falur segir að Andy hafi breytt miklu hjá liðinu og það hafi reynt mikið á mannskap- inn til að byrja með. „Þetta er ekki búinn að vera einhver dans á rósum. Leikmennirnir eru búnir að leggja gríðarlega mikið á sig í að skipta algjörlega um leikskipulag. Það er allt alveg nýtt í sókninni og það hefur enginn spil- að þetta áður,“ segir Falur og bætir við: „Það eru menn sem eru búnir að vera lengi í körfubolta sem sögðu það eftir fyrstu vikurn- ar að þeim liði eins og þeir kynnu ekki neitt í íþróttinni,“ segir Falur og sögusagnir eru á kreiki um þéttskrifaðar töflur inni í klefa fyrir hvern leik. „Að mínu mati er snilldin við þetta kerfi hjá honum að þetta er ekki fyrir einhverja súper- stjörnu því það eiga allir sinn möguleika. Það er það sem við erum að sjá bæði í karla- og kvennaliðinu. Það er ekkert verið að taka skot- kerfi fyrir Magga Gunnars því það er bara verið að hlaupa kerfið og þá kemur inn körfu- boltagreindin sem allir þurfa að hafa til að meta hvað leikurinn er að bjóða upp á,“ segir Falur. „Við Alli Óskars tókum það að okkur að tala við Andy á sínum tíma og við fórum í gegn- um það með honum hvernig körfubolta hann vildi spila. Við hefðum aldrei ráðið einhvern gæja sem hefði látið liðið spila labbandi sókn á hálfum velli sem Keflavík hefur aldrei verið þekkt fyrir,“ segir Falur. Hann segir Andy líka vera með mikinn aga og að hann sjái mun á því hvað leikmenn liðsins eru minna að röfla í dómurunum. „Þetta er yndislegur maður og með körfu- bolta sem sitt stærsta áhugamál. Hann hefur mikla ástríðu fyrir körfuboltanum. Hann var með frábært viðhorf þegar við sögðum við hann að til þess að þetta væri hægt fjárhags- lega þá yrði hann að vera með bæði liðin. Þá sagði hann að hann hefði ekki mikið komið nálægt því að þjálfa kvenfólk en að það yrði ekkert vandamál. Það er hægt að kenna öllum að spila körfubolta sagði hann,“ rifjar Falur upp. Keflavík hefur ekki unnið stóra titla ennþá en frammistaða liðanna tveggja lofar góðu. „Það er nóg eftir af tímabilinu en það er ekkert að því að njóta þess á meðan vel geng- ur,“ sagði Falur að lokum. ooj@frettabladid.is Við fengum himnasendingu Andy Johnston er með bæði Kefl avíkurliðin á toppi Dominos-deildanna í körfubolta. Falur Harðarson og félagar í stjórninni vildu fá ferska vinda inn í körfuboltann í Kefl avík og sjá ekki eft ir ákvörðun sinni. AÐ STÖRFUM Andy Johnston talar við leikmenn kvennaliðsins. Falur Harðarson er til hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Láttu hjartað ráða „Hrískökurnar mínar eru glútenlausar og góðar með ýmsu áleggi. Þær eru hollar og henta því vel á milli mála.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.