Fréttablaðið - 30.10.2013, Page 23

Fréttablaðið - 30.10.2013, Page 23
BÍLALEIGUR MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Kynningarblað Langtímaleiga, þjónusta og góð ráð. Bílamarkaður hérlendis hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár. Bæði almenningur og fyrirtæki eru sí- fellt meira að átta sig á því að lítið vit er að fjárfesta í dýrum bílum sem auk þess eyða miklu og menga mikið. Ófeigur Friðriksson og Ólöf Sif Þráinsdóttir, sem bæði starfa sem viðskiptastjórar hjá Avis bílaleigu, benda á að á flestum heimilum landsins er bíllinn stærsti útgjaldaliðurinn á eftir húsnæðis- kostnaði. „Það er ekki nóg með að bíllinn sé dýr í rekstri heldur hafa sviptingar á gengis- og lánamörkuðum síðustu árin kennt mörg- um að bílakaupum getur fylgt mikil áhætta og veruleg fjárhagsleg ábyrgð,“ segir Ófeig- ur. Aðrir bíleigendur hafa lært þá dýru lexíu að flókið sé að reikna dæmið til enda þegar kemur að bílakaupum; afborganir af lánum eru bara hluti af kostnaðinum og á þá eftir að gera ráð fyrir verðrýrnun, viðhaldi, bifreiða- tryggingum, opinberum gjöldum og endur- söluáhættunni. Mikil hagkvæmni Að sögn Ólafar er því langtímaleiga góður valkostur sem hjálpar til við að gera rekst- ur einkabílsins bæði hagkvæmari, fyrirsjá- anlegri og jafnvel einfaldari. „Langtímaleig- an sækir á með hverju árinu. Þessi valkostur hentar stórum hópi fólks, hvort sem það getur ekki eða vill ekki taka bílalán og svo hins vegar þeim sem ekki vilja leggja út fyrir stórri innborgun eða greiða nýjan bíl út í hönd.“ Þau benda á að langtímaleiga sé í raun hugarfarsbreyting hjá fólki. „Langtímaleiga er ákjósanlegur kostur fyrir marga og gerir það mögulegt að fá bíl á heimilið án nokk- urrar fjárfestingar. Einungis er greidd leiga mánaðar lega. Auk þess hafa margir slæma reynslu af kaupleigusamningum þar sem þeir hafa fengið óvænta og háa bakreikninga vegna minniháttar skemmda.“ Ef viðskiptavinir vilja hætta í viðskiptum áður en samningurinn er á enda þarf einung- is að greiða tveggja mánaða uppgreiðslugjald. „Síðan er einfalt mál að skipta um bíl á samn- ingstímanum, ef til dæmis breytingar verða á fjölskylduhögum.“ Mikið úrval bíla Hámarksleigutíminn er þrjú ár og er lág- markslengdin einn vetur. Viðskiptavinir geta valið bíla úr öllum flota Avis bílaleigu en þar er hægt að finna yfir 60 ólíkar tegundir af bílum. Um fjórðungur bílaflotans er vistvænn en sá hluti fer stækkandi í takt við aukna um- hverfisvitund viðskiptavina, að sögn Ófeigs og Ólafar. Til að nefna dæmi um mánaðargreiðslur nefna þau að bíll á borð við Hyundai i10 kosti frá 46.900 kr. á mánuði. Innifalið í þeim samningi eru allt að 20.000 km. á hverju 12 mánaða tímabili sem er í samræmi við árleg- an meðalakstur innanbæjar. Auk þess inni- heldur leigan árstíðabundin dekkjaskipti, eftirlit, olíuskipti, viðhald, bifreiðagjöld og tryggingar, þar með talið kaskótryggingu. „Það eina sem leigjandinn greiðir er það bens- ín sem er notað við aksturinn. Ekki er um neina innborgun að ræða eða aukagreiðslur af nokkrum toga en leiguverðið er tengt við vísitölu neysluverðs.“ Viðskiptavinir í lang- tímaleigu geta einnig fengið afnot af stærri bílum á góðum kjörum ef halda þarf út fyrir bæinn eða skjótast milli landshluta yfir vet- urinn. Hagkvæmari rekstur einkabílsins Langtímaleiga á bifreiðum sækir á með hverju árinu. Sífellt fleiri sjá kosti þess að fjárfesta ekki í dýrum bílum heldur nýta sér langtímaleigu. Viðskiptavinir greiða mánaðargjald og er öll nauðsynleg þjónusta innifalin utan bensíns. Viðskipta- vinir sem vilja leiga í lang- tímaleigu geta valið úr rúmlega 60 ólíkum bílategund- um hjá Avis bílaleigu. MYND/DANÍEL Langtímaleiga er góður valkostur sem býður upp á hagkvæmari og einfaldari rekstur einkabílsins, segja Ólöf Sif Þráinsdóttir og Ófeigur Friðriksson, viðskiptastjórar hjá Avis bílaleigu. MYND/DANÍEL Kynntu þér langtímaleigu Bílaleiga 0 kr. útborgun - Ekkert vesen

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.