Fréttablaðið - 30.10.2013, Síða 22
FÓLK| FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Ólöf Rún Benediktsdóttir er ný-komin heim frá Kenýa, en hún var þar á vegum samtakanna
Changemaker International. Samtökin
eru rekin af ungu fólki fyrir ungt fólk og
vinnur með vandamál sem tengjast mis-
skiptingu auðs í heiminum. Íslenski hluti
samtakanna gengur einnig undir nafninu
Breytendur.
CHANGEMAKER-HREYFINGARNAR
Svokallaðar Changemaker-hreyfingar eru
sjö talsins. Sú upprunalega er í Noregi,
en svo eru sambærilegar hreyfingar í
Finnlandi, Hollandi, Ungverjalandi, Pak-
istan, Kenýa og á Íslandi. Árlega heldur
ein þessara hreyfinga alþjóðafund og í
ár var komið að Kenýa. Fundargestum
var einnig boðið á ráðstefnu um hlýnun
jarðar og virkjun ungs fólks eða „youth
mobilization“, en það eru stærstu um-
fjöllunarefni Changemaker-hreyfingarinn-
ar þar í landi. „Það var mjög áhugavert
að sjá hvernig tekið er á þessum mál-
efnum þarna úti, en það er mikið unnið
með landgræðslu og grænan landbúnað.
Hreyfingarnar á Norðurlöndunum vinna
aftur á móti meira með þrýstihópastarf-
semi og vitundarvakningu,“ segir Ólöf.
VERNDUN DÝRATEGUNDA
Hún segir auk þess mörg áhugaverð verk-
efni er varða dýra- og umhverfisvernd
vera starfrækt í Kenýa. „Ég kynntist til
dæmis konu sem er náttúrulífsfræðingur
og vinnur við að rannsaka erfðaefni villtu
dýranna í Kenýa með Kenya Wildlife
Services. Hún sagði mér frá vettvangs-
ferðum þar sem þau skjóta deyfilyfjum
í villt dýr til að svæfa þau, fara síðan að
þeim og búa um sár, lækna sjúkdóma eða
annað og sleppa þeim síðan aftur. Þetta
er eitt ótal verkefna sem starfrækt eru í
Kenýa til að vernda sjaldgæfar dýrateg-
undir.“
MENNINGARSJOKK
Hún segist hafa upplifað talsvert menn-
ingarsjokk við komuna. „Það er ótrúlegt
að koma inn í samfélag þar sem vatns-
klósett og varanlegar byggingar eru mun-
aður. Stór hluti samfélagsins býr í hrör-
legum bárujárnsskúrum sem varla væru
notaðir sem verkfærakompur heima.
Barir, bankar og lögreglustöðvar er allt
rekið úr örsmáum kofum,“ útskýrir Ólöf
og bætir við að Kenýabúar séu almennt
heiðarlegir og hjálplegir.
„Sumir geta orðið soldið ágengir í
sölumennskunni en það venst fljótt,
maður segir bara nei takk og brosir. Ég
átti mjög skemmtilegan dag þegar ég
labbaði inn í þorp sem heitir Kongoni
og er við Navaisha-vatnið í suðurhluta
Kenýa. Um leið og ég kom inn í þorpið
kölluðu nokkrir ungir menn á mig „Maz-
ungu“, sem þýðir hvítur maður á swahili,
og spurðu mig hvert ég væri að fara. Ég
sagði þeim að ég ætlaði að kíkja á barinn
til að leita skjóls frá rigningunni sem var
að byrja. Þá leiddu þeir mig að bárujárns-
skúr, stugguðu geitunum frá hurðinni og
þar var barinn! Þeir vildu selja mér far
heim með svokölluðum piki-piki, sem er
mótor hjólataxi. Ég afþakkaði það pent,
ég vildi frekar ganga heim og fylgjast
með gíröffunum og sebrahestunum á
leiðinni. Í staðinn bauð ég þeim upp á
bjór. Þeir voru mjög ánægðir með það
og sögðu mér ýmislegt um lífið í Kenýa á
bjagaðri ensku.“
Ólöf segist hafa lært margt um menn-
ingu Kenýa á ferðalagi sínu. „Kenýa-
búar eru margir hlynntir skipulögðum
hjónaböndum, fjölkvæni er löglegt hér
og kvenréttindi eru skammt á veg komin,
þótt margt hafi unnist á síðustu árum.
Hommar eru heldur ekki kúl.“
■ halla@365.is
BREYTENDUR Í KENÝA
MISSKIPTING AUÐS Ólöf Rún Benediktsdóttir var stödd í Kenýa á dögunum
þar sem hún sótti alþjóðlegan fund Changemaker-hreyfingarinnar. Hreyfingin
vinnur gegn misskiptingu auðs í heiminum.
CHANGE-
MAKERS
INTER-
NATIONAL
Hér má sjá
hópinn sem
tók þátt í al-
þjóðaráðstefn-
unni í Kenýa.
Ólöf Rún er
fyrir miðju
myndar.
ÓTRÚLEG REYNSLA
Ólöf Rún Benediktsdótt-
ir var í Kenýa á vegum
Changemaker Inter-
national-hreyfingar-
innar. Hér er hún ásamt
Redemptha William, frá
Tansaníu.
BREYTENDUR
Íslenski hluti
Changemaker-
hreyfingarinnar
kallar sig Breyt-
endur og áhuga-
sömum er bent á
heimasíðu hennar
www.change-
maker.is.
Öflug vörn gegn
sveppasýkingum
„Ég mæli með Bio Kult Candéa fyrir skjólstæðinga mína. Síðustu ár
hef ég lagt mikla áherslu á að vera í jafnvægi, með góða orku og
einbeitningu í lífi og starfi. Ég hef lagt áherslu á að taka inn góða
gerla til að viðhalda jafnvægi og orku og hef prófað þá allra bestu
hér á markaðinum hverju sinni,“ segir Sigríður Jónsdóttir, ADHD
markþjálfi og fíkniráðgjafi.
„Mér finnst Bio Kult Candéa vera skjótvirkasta varan sem ég hef
prófað. Ég mæli með henni fyrir skjólstæðinga mína sem gjarnan
eru að glíma við ójafnvægi í lífi sínu.“
Candéa