Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.10.2013, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 30.10.2013, Qupperneq 37
 5 | 30. október 2013 | miðvikudagur NÝTT Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins Nicotinell Spearmint 2 mg og 4 mg lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Ábendingar: Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Skammtar fyrir fullorðna 18 ára og eldri: Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Ef þú reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring má miða við notkun 4 mg, 20-30 sígarettur/sólarhring er miðað við 2 eða 4 mg eftir þörf en ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring er æskilegt að nota 2 mg. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins (4 mg lyfjatyggigúmmí), skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggja skal eitt stk við reykingaþörf þar til finnst sterkt bragð. Þá skal láta það hvíla milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal tyggja aftur. Þetta skal endurtaka í 30 mín. Venjuleg notkun er 8-12 stk, þó ekki fleiri en 15 stk af 4 mg og 25 stk af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Meðferðarlengd er einstaklingsbundin en skal í flestum tilfellum standa í a.m.k. 3 mánuði, skal þá draga smám saman úr notkun lyfjatyggigúmmísins. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Venjulega er ekki mælt með notkun lyfsins lengur en í eitt ár. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Geyma skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega komið upp aftur. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Nota má lyfið til að lengja reyklaus tímabil og draga þannig úr reykingum. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Frábendingar: Ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju hjálparefnanna, reykleysi. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota lyfið ef þú: ert á meðgöngu eða með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða ef þú ert yngri en 18 ára. Einstaklingum með gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform nikótínlyfja. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið. Athuga ber að lyfið inniheldur natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321). Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfishafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Loksins á Íslandi! Nicotinell með Spearmint bragði - auðveldar þér að hætta reykingum Fjölmiðill Hagnaður/Tap EBITDA Handbært fé Eigið fé Skuldir 365-samstæðan 305,0 m.kr. 1.088,0 m.kr. 106,0 m.kr. 2.561,0 m.kr. 7.227,0 m.kr. Myllusetur/Viðskiptablaðið 5,6 m.kr. 7,8 m.kr. 8,2 m.kr. 23,3 m.kr. 61,1 m.kr. Morgundagur/Fréttatíminn -5,5 m.kr. 3,5 m.kr. 13,9 m.kr. 17,8 m.kr. 44,5 m.kr. Árvakur/Morgunblaðið -46,7 m.kr. 100,9 m.kr. 141,6 m.kr. 974,5 m.kr. 1.246,6 m.kr. DV -65,2 m.kr. -57,0 m.kr. -4,2 m.kr. -15,0 m.kr. 168,1 m.kr. RÚV ohf. -85,4 m.kr. 341,9 m.kr. 5,1 m.kr. 651,4 m.kr. 4.919,8 m.kr. Skjárinn -165,0 m.kr. -83,9 m.kr. 22.000 kr. -817,5 m.kr. 2.166,8 m.kr. Heimild: Ársreikningar. Ath. allar tölur í milljónum króna, nema handbært fé Skjásins, sem talið er í krónum. TÖLUR ÚR REIKNINGUM HELSTU MIÐLA 2012 Einungis tvö af sjö fjölmiðlafyrirtækjum sem skilað hafa ársreikningi skiluðu hagnaði á síð- asta ári. Samstæða 365, sem meðal annars á Frétta- blaðið, Stöð 2 og Bylgjuna, skilaði langmestum hagnaði, 305 milljónum króna. Þá skilaði Myllu- setur, sem rekur Viðskiptablaðið, tæplega 5,6 milljóna króna hagnaði. Samanlagt tap hinna, Árvakurs/Morgun- blaðsins, Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV), Skjásins, DV og Morgundags/Fréttatímans er 367,8 millj- ónir króna árið 2012. Langmest er tap Skjásins upp á tæpar 165 milljónir króna. Næstmest er tapið svo hjá RÚV 85,4 milljónir og svo er DV í þriðja sæti með 65,2 milljóna króna tap. Raunar er sérstaða Skjásins og DV nokkur í þessum samanburði því þau eru einu fyrirtæk- in sem í lok síðasta rekstrarárs voru með nei- kvæða eiginfjárstöðu. Eigið fé Skjásins var nei- kvætt um 817,5 milljónir króna og DV um 15 milljónir. Þá var handbært fé DV líka neikvætt um tæplega 4,2 milljónir króna. Skjárinn átti um áramót handbærar 22 þúsund krónur. Í áritun stjórnenda Skjásins á ársreikningi segir að þrátt fyrir neikvæða eiginfjárstöðu telji stjórnendur ekki leika vafa á áframhald- andi rekstrarhæfi félagsins þar sem móður- félag þess, sem jafnframt sé stærsti lánardrott- inn fyrirtækisins, muni styðja fjárhagslega við rekstur félagsins og tryggja áframhaldandi rekstur þess. „Að minnsta kosti næstu 12 mán- uði.“ Í skýrslu stjórnar í ársreikningi DV 2012 er líka vísað til þess að gripið hafi verið til víð- tækrar hagræðingar í rekstri, auk þess sem hlutafé hafi verið aukið um ríflega 55 millj- ónir króna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Talan er forvitnileg í samhengi við endurmat á virði óefnislegra eigna (útgáfuréttar og hugbúnaðar) upp á 39,7 milljónir í ársreikningi DV. Án hans hefði halli á rekstri félagsins verið 54,7 milljón- ir króna í árslok 2012. FÁIR STANDAST LÁNAMÆLISTIKU BANKANNA Þegar bankar leggja mat á lánshæfi fyrirtækja er gjarnan horft til kennitölu sem fengin er út með því að deila rekstrarhagnaði án afskrifta (EBITDA) í vaxtaberandi skuldir að frádregnu handbæru fé. Hlutfallið gefur fjárfestum, eða lánveitendum, hugmynd um hversu langan tíma fyrirtæki væri að greiða upp skuldir sínar, án til- lits til vaxta, skatta, afskrifta og rýrnunar. Af spjalli við sérfræðinga í fyrirtækjarekstri og greiningu ársreikninga má ráða að bankar telji fyrirtæki hæf til lántöku ef hlutfallið er undir 3 til 3,5 árum. Í greiningu á ársreikningum íslenskra fjöl- miðlamarkaði kemur í ljós að einungis eitt fyr- irtæki fellur innan þess ramma, en það er Myllusetur, eigandi Viðskiptablaðsins. Þar er skulda/EBITDA-hlutfallið 2,9. Rétt við mörkin er svo 365-samstæðan með hlutfall upp á 3,7 og herma heimildir blaðsins að þar á bæ sé stefnt að því að ná hlutfallinu mjög hratt niður á þessu og allra næstu árum. Sé þessi mælistika hins vegar lögð á sam- stæðu Árvakurs/Morgunblaðið er hlutfallið 9,4 ár og 9,2 ár hjá RÚV. „Við hlutfall yfir 4 eða 5 fara viðvörunar- bjöllur alla jafna að glymja því hlutfallið bend- ir til þess að fyrirtækið sé ólíklegra til að standa undir skuldabyrði sinni og þar af leið- andi síður í aðstöðu til þess að bæta við sig skuldsetningu sem þyrfti til vaxtar,“ segir í út- skýringu Investopedia á hlutfallinu. Taprekstur og neikvæðar EBITDA-tölur ann- arra miðla, svo sem DV, Skjásins og Morgun- dags/Fréttatímans, gera að hlutfallið nýtist ekki til samanburðar hjá þeim fyrirtækjum. Vefpressan, sem meðal annars rekur vef- miðlana Pressuna og Eyjuna, hefur ekki skilað ársreikningi fyrir síðasta rekstrarár og er því ekki með í samanburðinum. Í árslok 2011 var hins vegar tap á rekstrinum upp á rúmar 29,8 milljónir króna og EBITDA var neikvæð um 32 milljónir. Fimm fjölmiðlar af sjö reknir með tapi Tap fjölmiðlafyrirtækja á síðasta rekstrarári nam tæpum 368 milljónum króna. Mest er tapið hjá Skjánum, RÚV og DV. Eigið fé tveggja fyrirtækja er neikvætt. Á sama tíma hagnaðist 365 um 305 milljónir og rekstrarfélag Viðskiptablaðsins um 5,6 milljónir króna. FJÖLMIÐLAMARKAÐUR Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is HLUTI FJÖLMIÐLAFLÓRUNNAR Eitt merki um að rekstur standi ekki undir sér er ef handbært fé frá rekstri er neikvætt. Þannig var á síðasta ári komið fyrir DV og Skjárinn stóð mjög tæpt hvað þetta varðar. Þar var handbært fé í lok árs 22 þúsund krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/PETUR 817,5 Eigið fé Skjásins var um síðustu áramót neikvætt um rúmar 817 milljónir króna. Í ársreikningi fyrirtækisins segja stjórnendur að móður- félag Skjásins, Skipti, sem einnig á Símann og Mílu, styðji við reksturinn og tryggi áfram- hald hans, að minnsta kosti í 12 mánuði.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.