Fréttablaðið - 30.10.2013, Page 40
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Guðmundur Jörundsson yfi rhönnuður og Gunnar
Örn Petersen framkvæmdarstjóri Jör.
Hin
MARÍA LOVÍSA
ÁRNADÓTTIR
hliðin
Hvað gerir það að verkum að sumt
fólk kemst hratt áfram með verkefni
sín á meðan aðrir eru alltaf á fullu
en áorka þó litlu? Sem manneskja
með eigin rekstur þá er áskorun
mín ítrekað þessi: Hvernig kem ég
öllu í verk sem ég þarf og vil koma
í verk? Þegar upp er staðið þá er
sú tímastjórnunaraðferð sem hefur
virkað hvað best fyrir mig það að
segja ekki eins oft „já“.
Auðvelt að segja „já“
Þetta litla orð skiptir sköpum þegar
kemur að því að virða tíma okkar
og framlag til umheimsins. Það er
nefnilega mjög auðvelt að segja „já“
en alls ekki svo auðvelt að segja
„nei“. Við viljum ekki valda fólki
vonbrigðum og viljum vera jákvæð
og þjónustulunduð og eins viljum
við segja já við tækifærum og við-
skiptavinum. En hvað eru öll þessi
„já“ að kosta okkur? Það sem eyðir
tíma okkar og eykur streitu fremur
en annað er endurtekin jákvæðni
gagnvart því að gefa tíma okkar í að
sinna málum sem annað fólk setur
í forgang á meðan okkar eigin for-
gangsatriði sitja á hakanum.
Þegar þú ert beðinn um að gera
eitthvað, gefðu þér tíma til þess að
hugsa málið. Skoðaðu hvað mælir
með og á móti því að segja já. Er
þetta eitthvað sem er þér mögulegt,
hefurðu tíma og geturðu sinnt því
vel? Er þetta eitthvað sem færir þig
nær eigin markmiðum eða tekur
þig frá því sem þú ert að vinna að?
Segðu oftar „nei“
Það að segja „nei“ þýðir ekki að
þú sért slæm manneskja, starfs-
maður eða stjórnandi heldur að
þú hafir önnur forgangsatriði og
takmarkanir. Þegar einhver biður
þig um eitthvað sem hentar þér
ekki, íhugaðu þá hvort einhver
annar gæti öðlast tækifæri á því að
fá verkefnið og bjóddu jafnvel fram
tillögur að því hvernig hægt væri að
leysa verkefnið þó svo þú getir ekki
sinnt því.
Þú þarft ekki að afsaka þig fyrir
að gera það sem er réttast fyrir
þig og þitt starf eða rekstur. Þegar
þú gefur fólki „vinalegt“ nei með
einfaldri útskýringu þá virðir fólk
afstöðu þína og treystir þér í raun
enn frekar þar sem þú ert með þín
forgangsatriði á hreinu.
Prófaðu að segja oftar „nei“ við
því sem hentar þér ekki og þú segir
í leiðinni „já“ við því sem skiptir þig
mestu máli, nýtir tíma þinn margfalt
betur og eykur eigin afköst.
Segðu já við því
að segja nei
Save the Children á Íslandi
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Tryggðu þér áskrift á www.stod3.is
=2.990 kr. á mánuði
BARNAEFNI
ALLA DAGA
Vandað talsett barnaefni
og skemmtilegir þættir
fyrir yngstu
áhorfendurna
alla daga.
X Factor USA
Arrow
Vampire
Diaries
Í eldhúsinu
hennar Evu
Super Fun
Night
The Mindy
Project
Nikita
Banshee
Pretty L ittle Liars
Grimm*
Dads*
SkjárEinn
4.990
kr. á mánuði
Shameless
„Frábær sjónvarpsþáttur
sem grípur mann
frá fyrsta augnabliki.“
– The Hollywood Reporter
Verðlaunaleikarinn
William H. Macy
leikur aðalhlutverkið
í þessum mögnuðu
þáttum.
Sleepy
Hollow*
Einn vinsælasti
nýi þátturinn í
Bandaríkjunum.
Laugardagsþátturinn
með Frikka Dór*
Game T íví
Grac le and
*Hefst í nóvember
Carrie
Diaries