Fréttablaðið - 30.10.2013, Side 54
30. október 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30
„Okkur langaði að gera eitthvað
nýtt og fallegt. Við ætlum að reyna
að safna 3.500 evrum upp í fram-
leiðslukostnað speglanna sem við
sýnum í Spark Design í nóvem-
ber,“ segir Linda Björg Árnadóttir,
fata- og textílhönnuður. Fyrirtæki
hennar, Scintilla, safnar nú fyrir
framleiðslu sandblásinna spegla
á söfnunarsíðunni Karolina Fund.
Þeir sem leggja verkefninu lið geta
eignast slíkan spegil.
Scintilla hefur hingað til lagt
áherslu á umhverfisvænar heim-
ilisvörur á borð við púða, hand-
klæði og kerti. Ætlunin er að
bæta vörum við línuna í fram-
tíðinni og eru speglarnir liður
í því. Linda Björg segir Karol-
ina Fund vera skemmtilega leið
fyrir fólk til að styðja við bakið
á íslenskum sprotafyrirtækjum.
„Þú ert ekki aðeins að hjálpa ungu
vörumerki að koma nýrri vöru á
markað, heldur einnig að styðja
við nýsköpun, og um leið eignastu
hönnunargrip sem mun endast út
ævina.“
Líkt og áður sagði eru speglarnir
með sandblásnu munstri að fram-
an og aftan, að auki er munstur
málað í lit aftan á spegilinn og sést
það aðeins í gegn þar sem glerið er
sandblásið. Speglarnir eru í fimm
ólíkum stærðum. Aðspurð kveðst
Linda Björg bjartsýn um að tak-
markið náist. „Þetta er spurning
um allt eða ekkert, ef við náum
ekki að safna allri upphæðinni fær
fólk endurgreitt. En við erum mjög
bjartsýnar á að þetta takist,“ segir
hún að lokum. - sm
evrur höfðu
safnast í gær.
Enn er 21 dagur eft ir af
söfnunarátakinu.
340
Fiskikóngurinn
Stærð 30/40
Sogavegi 3
fiskikongurinn.is
s. 587 7755
Roðlausir og beinlausir
„Kvikmyndin High Fidelity er í
uppáhaldi hjá mér. Mér finnst hún
mjög skemmtileg og ekki spillir fyrir
hversu góð tónlist er í myndinni.“
Erla Jónatansdóttir, tónlistarkona og
háskólanemi.
BÍÓMYNDIN
Keppni í street-dansi fór fram
í íþróttahúsinu við Seljaskóla á
laugardag. Þar var meðal annars
keppt í breikdansi, hipp hoppi og
popping. Dansskóli Brynju Péturs-
dóttur stóð fyrir viðburðinum og
var bandaríski danshöfundurinn
Emilio Austin Jr. gestadómari.
Hrafnhildur Svala Sigurjóns-
dóttir fór með sigur af hólmi í
waacking-dansi, en hún keppti
einnig í dancehall og í hópaflokki
með Diamonds-danshópnum.
„Ég byrjaði í ballett þegar ég
var sex ára og skipti svo yfir í
djassballett. Ég byrjaði ekki að
æfa waacking fyrr en á síðasta ári
og varð strax ástfangin af dansin-
um, þetta er það skemmtilegasta
sem ég geri,“ segir Hrafnhildur
Svala sem æfði stíft í allt sumar.
Hún undirbjó sig meðal annars
með því að horfa á dansmyndbönd
á YouTube.
Hrafnhildur hóf nám á nátt-
úrufræðibraut við Menntaskól-
ann í Reykjavík í haust og hyggur
á læknisnám í framtíðinni. „Það
er svolítið erfitt að vera svona
mikið í dansi með náminu, en ég
reyni bara að skipuleggja mig
vel,“ segir hún.
Danshópurinn Cyborgs bar
sigur úr býtum í hópaflokki. Hall-
mann Sigurðarson, Stefán Hall-
dór og Brynjar Dagur Albertsson
skipa hópinn, en piltarnir eru á
aldrinum tólf til fimmtán ára.
Hallmann hefur æft popping
í tvö ár en hópurinn hefur æft
saman í rúmt ár. „Ég sá mynd-
band af popping á netinu og fór
að æfa mig sjálfur. Svo fann ég
Dansskóla Brynju og byrjaði að
æfa hjá henni, ég kynntist Stef-
áni og Brynjari þar,“ útskýrir
Hallmann. Hann segir keppnina
í ár hafa verið sérlega harða. „Við
náðum bara að æfa vikuna fyrir
keppni. Við búum langt hver
frá öðrum sem gerir æfingar
flóknar, þannig að sigurinn kom
skemmtilega á óvart,“ segir hann
að lokum. sara@frettabladid.is
SIGURVEGARAR
Í GÖTUDANSI
Keppni í street-
dansi fór fram
á laugardag. F.v.
Stefán Halldór,
Anastasiya
Pulgari, Hall-
mann, Agnes
Einarsdóttir, Fim
Suwit Chotnok,
Hrafnhildur Svala
og Brynjar Dagur.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Scintilla safnar fyrir speglum
Linda Björg Árnadóttir textílhönnuður segir Karolina Fund góða leið fyrir
einstaklinga til að styðja við bakið á íslenskum sprotafyrirtækjum.
SAFNA FYRIR SPEGLUM Linda Björg
Árnadóttir hönnuður safnar fyrir nýrri
vöru á Karolina Fund. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ástfangin af
waacking-dansinum
Keppni í street-dansi fór fram á laugardaginn var. Keppt var í fl okki ólíkra hópa
og í einstaklingsfl okki. Hrafnhildur Svala og Cyborgs voru í hópi sigurvegaranna.
„Þetta er í fyrsta skiptið sem að þetta
er haldið og er allt unnið í samvinnu
við Airwaves,“ segir Svava Gunnars-
dóttir, leiðbeinandi hóps sem hefur
unnið að skipulagningu Airwaves-tón-
leika fyrir unglinga á vegum Samfés.
„Hugmyndin að tónleikunum vakn-
aði hjá Samfés, við ákváðum að setja
saman unglingahóp sem hefur unnið
að skipulagningunni. Þetta er sér-
staklega gert fyrir unglingana sem
ekki eru komnir með aldur til að
mæta á formlegu Airwaves-hátíðina.
Markmið þeirra er að bæta tónleika-
menningu ungs fólks. Skólaböll og
diskótek eru í rauninni það helsta sem
unglingar hér á landi hafa aðgang að,“
útskýrir Svava.
Grímur Atlason, framkvæmda-
stjóri Iceland Airwaves, er mjög
hrifinn af framtakinu en fyrsta skref
skipulagningarhópsins var að tala við
Grím.
„Við fengum styrk frá Evrópu unga
fólksins, samtökum þar sem hægt er
að sækja um styrki, en þau vinna að
málum ungs fólks í Evrópu,“ segir
Svava.
Tónleikarnir eru einnig unnir í
samstarfi við tónleikaröðina Drull-
umall, sem fer fram einu sinni í mán-
uði í Austurbæjarskóla.
Tónleikarnir fara fram í Risinu í
Austurbæjarskóla í dag og á morgun
og eru hluti af utandagskrá Airwaves-
hátíðarinnar. Þar koma fram fimm
unglingasveitir og fimm reyndari
sveitir, þeirra á meðal eru Emmsjé
Gauti, Meistarar Dauðans, Dikta og
Lockerbie. - glp
Airwaves-tónleikar fyrir unglinga í fyrsta sinn
Í ár fara fram í fyrsta sinn Airwaves-tónleikar fyrir unglinga sem ekki hafa aldur til að sækja formlegu hátíðina.
LEIÐBEINIR SKIPULAGSHÓPNUM Svava Gunnarsdóttir sér um að
leiðbeina hópnum sem skipuleggur fyrstu Airwaves-unglingatónleikana.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Loksins
fáanleg á ný
– árituð mynd
af meistaranum
fylgir
Stétt okkar er mikill sómi
að slíkum andans jöfrum.
Jakob Frímann Magnússon, formaður FTT