Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 2

Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 2
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 Júlíus Vífill Kæru sjálfstæðismenn í Reykjavík Ég og stuðningsmenn mínir höfum opnað kosningaskrifstofu að Suðurlandsbraut 24. Af því tilefni langar mig að bjóða ykkur í opnunarhóf í dag kl. 16 18.- Mér þætti vænt um að sjá sem flesta en ég sækist eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu sem fram fer 16. nóvember. Með kærri kveðju, 1. sæti í Reykjavík DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Inga Kristján Sigurmarsson af ákæru um meiðyrði í garð Egils Einarssonar. Ingi Kristján birti mynd af Agli á samfélags- miðlinum Instagram. Hann var kærður fyrir að teikna kross á enni stefnanda, skrifaði aumingi þvert yfir andlit hans og í myndtexta var ritað „Fuck you rapist bastard“. Egill var dæmdur til að greiða málskostnað 400 þúsund krónur. Héraðsdómur dæmdi hins vegar ummæli Sunnu Ben Guðrúnardóttur dauð og ómerk. Hún viðhafði þessi ummæli um Egil á Facebook-síðu sinni: „Þetta er ekki árás á mann fyrir að segja eitthvað rangt, heldur fyrir að nauðga ung- lingsstúlku... Það má alveg gagnrýna það að nauðgarar prýði forsíður fjölrita sem dreift er út um allan bæ...“ Egill krafði Sunnu um miskabætur en dómurinn féllst ekki á kröfuna. Málskostnaður var felldur niður. „Báðum þessum dómum verður áfrýjað til Hæstaréttar,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Egils Einars- sonar. - jme, jjk Sýknað af ákærum um meiðyrði en ummæli dæmd dauð og ómerk: Egill ætlar að áfrýja dómum EGILL EINARSSON Héraðsdómur dæmdi í gær í tveimur meiðyrðamálum sem Egill höfðaði. Egill tapaði öðru málinu en í hinu málinu voru ummæli dæmd dauð og ómerk en ekki var fallist á skaðabætur. HÚSNÆÐI „Það getur tekið óra- langan tíma fyrir leigusala að losna við leigutaka sem vanefnir leigu samning,“ segir Guðmundína Ragnarsdóttir, lögmaður á lög- mannsstofunni Fasteignamál. „Fyrst biður leigutaki sífellt um aukinn frest til að borga og leigu- sali gefur tækifæri aftur og aftur í von um að fá leiguna einhvern tímann greidda. Það líða yfirleitt nokkrir mánuðir áður en leigusali leitar til lögmanns.“ Guðmundína segir húsaleigu- lögin ansi formföst. Fyrst er send greiðsluáskorun og skorað á leigu- taka að greiða skuldina eða ella verði samningi rift. Ef leigutaki borgar ekki skuldina þá er skrifuð aðfarabeiðni til héraðsdóms þar sem farið er fram á dómsúrskurð. „Fæstir vilja láta bera sig út eins og hústökufólk þannig að þeir semja oft í dómi. Þá gera þeir sátt um að rýma fasteign innan ákveð- ins tíma. Ef þeir standa ekki við það er hægt að fara til sýslumanns með dómsúrskurðinn og biðja um útburð. Vandamálið er að þessi mál festast í embættismanna- kerfinu því ferlið er svo seinvirkt. Það þýðir að leigjendur geta setið áfram í íbúðum í 9 til 12 mánuði án þess að greiða leigu eða þar til þeir eru bornir út,“ segir Guðmundína. Guðmundína hefur meðal annars séð um mál manns sem leigði út húsið sitt í apríl og hefur eingöngu fengið borgaða eins mán- aðar leigu á rúmu hálfu ári. Eftir að maðurinn hafði gengið í þrjá mánuði á eftir leigjandanum sem lofaði öllu fögru rifti hann húsa- leigusamningnum og leitaði til Guðmundínu. Málið fór í ferli í september og átti að vera tekið fyrir í héraðsdómi um miðjan desember en maðurinn fékk málinu flýtt eftir mikinn þrýsting. Í vikunni var málið tekið fyrir í dómi og var gerð sátt um að maðurinn fari úr húsnæðinu. Ef hann aftur á móti gerir það ekki þarf að vísa málinu til sýslumanns. Í samtali við Fréttablaðið segir maðurinn að fjármál hans standi á tæpasta vaði og því hafi hann neyðst að leigja út húsið, í von um að koma reiðu á fjármál sín. Þetta mál hefur haft gífurleg áhrif á líf hans síðustu mánuði, bæði fjárhagslega og andlega. Hvorki maðurinn né lögmaður hans gera ráð fyrir að hann fái nokkurn tím- ann greidda leiguna og því er um verulegt fjártap að ræða eða um það bil 1,2 milljónir króna. erlabjorg@frettabladid.is Þaulsætnir leigjendur kosta fé og fyrirhöfn Færst hefur í aukana að leigusalar lendi í vandræðum með leigjendur sem borga ekki leigu og neita að fara úr húsnæðinu. Lögmaður segir það geta tekið allt upp í ár að losna við slíka leigjendur og erfitt sé að fá skuldina greidda. FRÉTTIR 2➜16 SKOÐUN 18➜20 HELGIN 24➜64 MENNING 66➜90 Hjörvar Steinn Grétarsson náði þeim áfanga að verða stórmeistari í skák aðeins tuttugu ára gamall. Hjörvar varð þar með næstyngsti Íslendingurinn til að verða stórmeistari en Helgi Áss Grétars- son varð stórmeistari sautján ára gamall. FIMM Í FRÉTTUM BESTI HÆTTIR OG MIÐAKLÚÐUR ➜ Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, tilkynnti í þættinum Tvíhöfða á Rás tvö að hann myndi ekki bjóða sig aftur fram sem borgarstjóri í Reykjavík. Besti flokkurinn verður lagður niður eftir að Jón hættir störfum næsta sumar og mun flokkurinn renna saman við Bjarta framtíð. Gulla Jónsdóttir arkitekt hannar nýtt hús Dr. Dre í Hollywood-hæðum. Húsið er að mestu byggt úr viði sem verður eins og skúlptúr í gegnum allt húsið. Hún hefur búið í Los Angeles í rúmlega tuttugu ár en dreymir um að hanna byggingu á Íslandi. Oktavía Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi hjá Félagi einstæðra foreldra, segir gjaldskrárhækk- anir Reykjavíkurborgar koma sérlega illa niður á einstæðum foreldrum. Hún segir marga einstæða foreldra lifa á fátæktarmörkum og því skipti hver einasta króna máli. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, ákvað að hefja sölu á miðum á landsleik Ís- lands og Króatíu á midi.is klukkan fjögur um nótt í stað þess að hefja hana um morgun- inn eins og ákveðið hafði verið. Miðarnir voru uppseldir klukkan átta um morguninn. KRÓATAR STANDA Í VEGINUM 32 Tveir leikir gegn Króötum standa á milli þess að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tryggi sér sæti á HM í Brasilíu næsta sumar. Hversu góðir eru Króatar? Hverjir eru möguleikar Íslands? Hvað kostar farið til Brasilíu? FALLEGT AÐ LEITA Í FORTÍÐARSJÁLFIÐ 35 Fyrsta leikverk Lilju Sigurðardóttur, Stóru börnin, fj allar um infantílista, fólk sem þráir að haga sér og láta meðhöndla sig eins og börn. GRÆNLENDINGAR EKKI BÚNIR AÐ UPPGÖTVA HVAÐ ÞEIR ERU TÖFF 40 Hjónin Sóley Kaldal og Jakob Jakobsson ákváðu í apríl að rífa sig upp með rótum frá heimili sínu í Kaupmannahöfn og fl ytja til Sisimiut á Grænlandi. UNDRAÚTHALDSGOTT BASSADÝR 42 Tómas R. Einarsson byrjaði seint að læra á kontrabassa, segist vera ofvirkur laga- höfundur og sækir innblástur um víðan völl, meðal annars til dætra sinna. ÞAR SEM MJÁ ER AÐALMÁLIÐ 44 Í Kattholti við Stangarhyl í Reykjavík er athvarf fyrir kisulórur sem hafa lent á vergangi en líka hótel sem ábyrgir katta- eigendur koma sínum kisum á, meðan þeir skreppa í frí. ÞJÓÐERNISPOPÚLISMI Í EVRÓPU 18 Þorsteinn Pálsson um evrópsk stjórnmál. REGNBOGALISTI Í VOR 20 Stefán Jón Hafstein um stjórnmál í Reykjavík. ÖLLUM TIL VEGSAUKA 20 Sigtryggur Baldursson um skapandi greinar. 89% ER EKKI NÓG 20 Bjarni Gíslason um hjálparstarf. „Það tekur tímann sinn að komast að því það er slíkur óskaplegur málafjöldi vegna leigumála hjá okkur,“ segir Ingimundur Einarsson, dóm- stjóri hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. „En einhverra hluta vegna hefur orðið sprenging á síðustu tveimur, þremur misserum.“ Ingimundur segir þessi mál geta dregist ef leigjandi heldur uppi vörnum og sýni fram á að hann hafi rétt á að sitja í íbúð lengur en leigusali heldur fram. Þegar héraðsdómur hefur úrskurðað að útburður megi fara fram þarf leigusalinn að senda beiðni um útburð til sýslumanns. Samkvæmt upp lýsingum frá Sýslumanninum í Reykjavík eru aðstæður í hverju út- burðarmáli fyrir sig eru ólíkar og ekki hægt að gefa upp neinn ákveðinn tímaramma, en þau geta tekið frá nokkrum vikum upp í nokkra mánuði. Dómsmálum vegna leigu fjölgar mikið LEIGUMARKAÐUR Leigusalar þurfa að taka á sig miklar byrðar ef leigjendur svíkja húsaleigusamninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPORT 82➜85 VILDI KVEÐJA 82 Hrafnhildur Skúladóttir er ekki lengur í íslenska landsliðinu í handbolta. Hún fékk ekki að vita af síðasta leiknum eft ir 17 ár. SKRÝTIN STJÓRASKIPTI 84 Mauricio Pochettino hefur náð ótrúlegum árangri með Southampton. BRETAR VILJA SÆSTRENG 4 Umhverfi sráðherra Breta sýndi sæstreng milli Íslands og Bretlands mikinn áhuga á fundi með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. FERNANDA BRANN 6,8,10 Eldur kraumaði í fl utningaskipinu Fernöndu þegar það var dregið í höfn. Það var dregið á haf út aft ur þegar eldurinn blossaði upp. SKAÐVÖLDUM FJÖLGAR 12 Skordýrum sem lifa á trjágróðri hefur fj ölg- að um 27 tegundir frá byrjun 20. aldar. NETFLIX SKAÐAR EKKI 16 Áhorf á útsendingar sjónvarpsstöðva hefur ekki dregist saman þrátt fyrir aukið framboð sjónvarpsefnis í gegnum netið. GLEÐIGJAFI Í 24 ÁR 60 Rafskinna gengur í endurnýjun lífdaga. ÁGÆTIS POLLOCK 62 Jón Viðar Jónsson skrifar um sýningu Þjóðleikhússins. ÆTTLEIDDU EYÞÓR INGA 76 Hljómsveitir frá Selfossi í gegnum tíðina. ÍSLENSKT BAKKELSI Í BRIGHTON 90 Íslenskur arkitekt býður Bretum upp á kökur frá ömmu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.