Fréttablaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 6
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 Námskeið í reikningsskilum Verðmat í tengslum 5. nóv. 15.900 kr. við gerð reikningsskila IFRS 101 - Grunnnámskeið um 13. nóv. 15.900 kr. alþjóðlega reikningsskilastaðla Nýir staðlar og breytingar 20. nóv. 15.900 kr. á stöðlum (IFRS Reminder) Framsetning reikningsskila 22. nóv. 10.900 kr. samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) Lestur og túlkun ársreikninga 27. nóv. 15.900 kr. Ársreikningalög 4. des. 15.900 kr. Skil á bókhaldi til 11. des. 10.900 kr. endurskoðanda IFRS 102 - Ítarlegt námskeið um 16/17. des. 29.900 kr. alþjóðlega reikningsskilastaðla (þrír tímar hvorn dag) Bókhald og launavinnsla 10. jan. 4.900 kr. Námskeið í endurskoðun Innra eftirlit og sviksemi 3. des. 15.900 kr. Endurskoðunarferillinn 10. des. 20.900 kr. Námskeið í skattskilum Virðisaukaskattur - Frjáls og 19. nóv. 12.900 kr. sérstök skráning atvinnuhúsnæðis og utanumhald á leiðréttingar - skyldu virðisaukaskatts Tekjuskattsskuldbinding 29. nóv. 15.900 kr. og samsköttun Námskeið í Excel Excel I 14. nóv. 15.900 kr. Excel II 15. nóv. 15.900 kr. Kennarar námskeiðanna eru sérfræðingar KPMG og eru þau haldin á skrifstofu félagsins að Borgartúni 27. Námskeiðin veita löggiltum endurskoðendum endurmenntunareiningar hjá FLE. Námskeið í reiknings skilum, endurskoðun, skattskilum og Excel Námskeiðin eru öllum opin. Skráning og allar nánari upplýs ingar um einstök námskeið er að finna á heimasíðu KPMG. kpmg.is BRUNI Varðskipið Þór neyddist til að draga flutningaskipið Fernöndu úr Hafnarfjarðarhöfn í gær eftir að eldur kom upp að nýju. Skipið var dregið á haf út til að auðvelda slökkvistarf og draga úr hættu á umhverfisvá vegna elds og reyks. Þá auðveldaði það slökkvistarf að færa skipið úr höfninni. Aðspurður hvort það hafi verið mistök að flytja skipið til hafnar í Hafnarfirði segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæð- isins, í samtali við Fréttablaðið að ákvörðunin hafi verið tekin þegar talið var að eldurinn væri slokknaður. „Við tókum þessa ákvörðun í samráði við alla hlut- aðeigandi aðila og ég tel hana hafa verið rétta á þeim tímapunkti sem hún var tekin. Það er eðli björgunar starfa að það þarf sífellt að taka ákvarðanir byggðar á tak- mörkuðum forsendum. Ef ákvarð- anir reynast rangar þá breytum við þeim,“ segir Jón Viðar. Jón Viðar segir eldinn í skip- inu hafa valdið hans eigin mönn- um mestri hættu, en auðvitað hafi íbúar bæjarins orðið fyrir umtals- verðum óþægindum vegna reyks. „Slökkvistarf í skipum er mjög flókið og erfitt verkefni, verkið gekk ágætlega framan af en þegar ljóst varð að eldurinn hélt áfram að breiðast út tók ég ákvörðun um að stofna ekki mínum mönnum í hættu, þar sem þarna var ekki um að ræða neina lífbjörg heldur bara verðmætabjörgun,“ segir Jón Viðar. Hann segir framhaldið óljóst. Ekki liggi fyrir nákvæmlega hversu mikið hafi verið af olíu í skipinu þegar kviknaði í og erfitt að gefa sér hversu mikið gæti verið eftir af olíu til að brenna. „Það er ekki olían sjálf sem brennur heldur gufur sem hún gefur frá sér þegar hún hitnar. Í svona lokuðu rými getur það gengið hægt, en auð vitað er mögulegt að olían hafi lekið víðar en um tankinn, til dæmis út í vélarrýmin. Þetta gæti mögulega tekið einhverja sólarhringa og það eru margir óvissuþættir í þessu sem þarf að fylgjast náið með og bregðast við,“ segir Jón Viðar. Um er að ræða gasolíu, sem er fremur létt olía og ekki eins hættu- leg og svartolía ef hún fer í sjóinn þar sem einfaldara er að ráða við hana. Hrafnhildur Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Landhelgis- gæslunnar, segir í samtali við Fréttastofu að við næstu skref sé aðallega horft til þess að lágmarka hættu á að skipið sökkvi með hlið- sjón af umhverfisvá en fyrst og síð- ast að tryggja öryggi allra þeirra aðila sem koma að aðgerðinni. Helstu áhyggjur Landhelgisgæsl- unnar eru af því að skipið sökkvi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. „Það er stefnt á svæði sem eru fjarri hrygningarsvæðum og veiði- slóðum og þar sem vindáttin er hagstæð. Það er margt að hugsa um eins og hugsanlegt rek skipsins ef við neyðumst til að hætta drætti af öryggisástæðum, til dæmis ef skipið sekkur,“ segir Hrafnhildur. Hrafnhildur segir Þór útbú- inn mengunarvarnabúnaði ef svo skyldi fara að olía færi í sjóinn, þar sem settar væru upp girðingar í kringum olíuna og henni svo dælt upp í varðskipið. fanney@frettabladid.is Lágmarka hættuna á umhverfisslysi Flutningaskipið Fernanda var dregið í ljósum logum á haf út til að draga úr hættu á umhverfisvá og auðvelda slökkvistarf. Slökkviliðsstjóri segir það ekki hafa verið mistök að draga skipið til hafnar í Hafnarfirði þrátt fyrir að staðan hafi verið óljós. JÓN VIÐAR MATTHÍASSON HRAFNHILDUR STEFÁNSDÓTTIR VARÐSKIPIÐ ÞÓR Reynt var að ráða niðurlögum eldsins í Hafnarfjarðarhöfn þar til ljóst var að það var ómögulegt. Fernanda hefur verið dregin út á Faxaflóa til að lágmarka það umhverfistjón sem gæti orðið ef skipið sekkur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Helgi Jensson, ráðgjafi hjá Umhverfisstofnun, segir stofnunina aðallega horfa til þess hvar sé heppilegast, út frá umhverfissjónarmiðum, að staðsetja skipið ef svo illa færi að það sykki með olíu um borð. Hann segir staðsetninguna aðallega miðast við að að skipið sé fjarri hrygningarsvæðum, veiðislóðum og við hentuga hafstrauma. Umhverfisstofnun ásamt Hafrannsóknastofnun hefði lagt til að skipið yrði flutt töluvert langt vestur af miðjum Faxaflóa, í kringum 24. breiddargráðu eða vestar. Helgi tekur fram að aðkoma Umhverfisstofnunar að málinu sé aðeins ráðgefandi, skipið sé alfarið undir stjórn Landhelgisgæslunnar. Umhverfisverndarsjónarmið í forgrunni HELGI JENSSON LÖGREGLUMÁL Einn maður var stunginn þegar harkaleg slags- mál brutust út við kaffihúsið Kaffitár á neðri hæð Kringl- unnar á þriðja tímanum. Sjö til átta manns tóku þátt í slags- málunum. Öryggisvörður úr Kringlunni reyndi að skakka leikinn en að lokum kom lögreglan á vettvang og handtók tvo af mönnun- um. Sjúkrabílar voru kallaðir til. Einn mannanna skarst í and- liti og var með stungusár við viðbeinið. Eigendur í nærliggj- andi verslunum lokuðu búðunum meðan á þessu stóð en ekki er vitað til þess að skemmdir hafi orðið á innanstokksmunum. Verslunareigandi, sem Fréttablaðið ræddi við, sagði að fólki væri brugðið en þakkaði viðbragðsflýti lögreglunnar að ekki fór verr. Fjöldi fólks var í verslunarmiðstöðinni þegar slags- málin brutust úr og því fjölmörg vitni að atburðinum. - kh Fjöldi fólks varð vitni að harkalegum slagsmálum á neðri hæð Kringlunnar: Sjö til átta slógust í Kringlunni SLEGIST Öryggisvörður hringdi á lögreglu og reyndi að skakka leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.