Fréttablaðið - 02.11.2013, Síða 12
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
NÁTTÚRA Greinst hafa 27 nýjar
tegundir skordýra frá byrjun tutt-
ugustu aldar sem lifa á trjám og
runnum. Allar þessar tegundir eru
skaðvaldar en misjafnlega miklir
þó. Ein þeirra, furulús, gekk svo
nærri skógarfuru að tréð er svo
gott sem útdautt á Íslandi.
Þetta kemur fram í nýrri grein í
tímaritinu Icelandic Agricultural
Sciences.
Guðmundur Halldórsson, rann-
sóknarstjóri hjá Landgræðslu rík-
isins, játar því að landnám þessara
dýra sé í beinu orsakasambandi við
hlýnun; hraði landnáms og skor-
dýrafaraldrar séu mestir á hlý-
skeiðum. Hann segir jafnframt að
þetta sé áhyggjuefni þeirra sem
ætla að nýta skóga og selja timbur-
afurðir.
„Megnið af þessu veldur vaxtar-
tapi og það skiptir auðvitað máli
hvort tré er fullvaxið eftir 50 ár
eða 80 ár. Það hafa verið að koma
meindýr, og sjúkdómar, sem hafa
veruleg áhrif á vöxt,“ segir Guð-
mundur og nefnir að einn stærsti
skellurinn í trjárækt á Íslandi sé
tilkoma furulúsar sem gerði vonir
manna um útbreiðslu skógar-
furu að engu, en á hana var sterkt
veðjað um tíma.
Spurður hvort tilkoma 27 nýrra
tegunda sé mikil fjölgun í ljósi þess
að um rúma öld er að ræða segir
Guðmundur að það verði að skoð-
ast í því ljósi að aðeins 50 tegundir
voru fyrir. Eins að nokkrar þessara
tegunda séu mjög skaðlegar. Þær
vaði líka uppi þar sem afræningjar
og sjúkdómar fylgi þeim ekki eftir
til nýrra heimahaga.
Hvað varðar séríslenskar
tegundir, og þá birkið fyrst og
síðast, þá er erfitt að segja hvort
sérstök hætta steðjar að þeim. „Í
öðrum löndum eru þó dæmi um að
tegundir sem hafa verið lengi ein-
angraðar, og sama hlýtur að gilda
um Ísland, hafa farið illa þegar inn
hafa komið sjúkdómar og meindýr.
Þær tegundir eru berskjaldaðar
má segja,“ segir Guðmundur.
Leið þessara nýju tegunda
hingað til lands er væntanlega
með innflutningi gróðurs í flest-
um tilfellum, og þess vegna er
mjög erfitt að vinna gegn því að
nýjar tegundir skordýra komi hér
inn í landið. Guðmundur nefnir
sem dæmi að bresk rannsókn sýni
að 90% meindýra í skógum hafa
komið með innflutningi.
„Eins ætti að gæta þess að setja
ekki öll eggin í sömu körfuna. Ef
menn eru að rækta tré af sömu
arfgerð á stórum svæðum býður
það þeirri hættu heim að höggið
sé þungt þegar það kemur. Fjöl-
breytni eykur öryggið,“ segir Guð-
mundur. svavar@frettabladid.is
Skaðvöldum fjölgar
með hlýnandi veðri
Skordýrum sem lifa á trjágróðri hefur fjölgað um 27 tegundir frá byrjun 20. aldar.
Ein þeirra drap niður skógarfuru sem vart finnst hér lengur. Meindýr geta haft
mikil áhrif á vaxandi skógarauðlindir landsins þegar til framtíðar er litið.
SITKALÚS Á GRENI Á greni eru einkum þrjár tegundir meindýra; grenisprotalús, köngulingur og sitkalús sem er langskæðust.
MYND/EDDA ODDSDÓTTIR
KÖNNUN Tveir af hverjum þrem-
ur stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík eru ánægð-
ir með þá ákvörðun Jóns Gnarr
borgarstjóra að gefa ekki kost á
sér í komandi sveitarstjórnar-
kosningum og að leggja Besta
flokkinn niður. Þetta er niðurstaða
skoðanakönnunar Fréttablaðsins
og Stöðvar 2.
Hjá borgarbúum öllum eru
hlutföllin önnur. Alls segjast 39
prósent mjög eða frekar ánægð
með ákvörðun Jóns, 30,4 prósent
hvorki ánægð né óánægð, og 30,6
prósent mjög eða frekar óánægð.
Ánægjan með ákvörðun borgar-
stjóra var áberandi minnst hjá
stuðningsmönnum Bjartrar
framtíðar, pólitísks arftaka Besta
flokksins. Aðeins 11 prósent
stuðningsmanna fagna ákvörðun
Jóns en tæp 54 prósent segjast
óánægð með hana.
Rúm 40 prósent stuðnings-
manna Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna eru ánægð með
ákvörðun Jóns. Sama segja 55
prósent stuðningsmanna Fram-
sóknarflokksins.
Hringt var í 1.809 manns þar
til náðist í 1.158, þar af 439 Reyk-
víkinga, samkvæmt lagskiptu
úrtaki dagana 30. og 31. október.
Svarhlutfallið var því 64 prósent.
Spurt var: Ertu ánægð(ur) eða
óánægð(ur) með ákvörðun Jóns
Gnarr um að vera ekki í fram-
boði í komandi borgarstjórnar-
kosningum? Alls tóku 90 prósent
þeirra sem náðist í afstöðu til
spurningar innar. - bj
Fjórir af tíu borgarbúum eru ánægðir með ákvörðun Jóns Gnarr borgarstjóra um að bjóða sig ekki fram:
Mest ánægja meðal Sjálfstæðismanna
VIÐSKIPTI Gjaldskrá Landsnets
vegna upprunaábyrgðar á raforku
hefur verið lækkuð um tæp 40
prósent. Tekjur fyrirtækisins af
útgáfu upprunaskírteina reyndust
umtalsvert meiri en gert var ráð
fyrir þegar útgáfa þeirra hófst
fyrir tæpum tveimur árum, að
því er segir í tilkynningu.
Upprunaábyrgð er staðfesting
á að raforka sé framleidd með
endurnýjanlegum orkugjöfum,
ekki orkugjöfum úr jarðefnaelds-
neyti. - óká
Upprunaskírteini ódýrari:
Lækka gjald-
skrá um 40%
TAKTU VEL Á MÓTI
SJÁLFBOÐALIÐUM
OKKUR
HVERNIG FJALLA
FJÖLMIÐLAR UM
REGLUVÆÐINGU
FJÁRMÁLAMARKAÐA?
MARK SCHOEFF JR.
HELDUR FYRIRLESTUR
Í HÁTÍÐASAL HÁSKÓLA ÍSLANDS
MÁNUDAGINN 4. NÓV. KL. 12-13.30
Mark Schoeff Jr. er blaðamaður hjá Investment
News í Washington sem er viðskiptatímarit, gefið
út af Crain Communications. Schoeff Jr. skrifar um
löggjöf og reglugerðir tengdar verðbréfaviðskiptum
og fjármálamörkuðum og hefur sérstaklega fjallað
um innleiðingu Dodd-Frank laganna. Hann fjallar
einnig um bandaríska þingið, verðbréfaeftirlitið (SEC),
atvinnuvegaráðuneytið, auk fleiri eftirlitsaðila.
Mark Schoeff Jr. er með meistaragráðu í
Alþjóðaviðskiptum og stjórnsýslu frá George Mason
háskóla í Fairfax, Virginia. Hann lauk BA gráðu í
stjórnun og ensku frá Purdue háskóla.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir!
➜ Umdeild ákvörðun
Mjög óánægð(ur) Mjög ánægð(ur)
Frekar ánægð(ur)
Hvorki ánægð(ur) né óánægð(ur)
Frekar óánægð(ur)
17
,2% 21,8%
17,2%
30,4%
13
,2
%
Ertu ánægð(ur)
eða óánægð(ur)
með ákvörðun
Jóns Gnarr um
að vera ekki
í framboði
í komandi
borgarstjórnar-
kosningum?
Það hafa verið
að koma meindýr, og
sjúkdómar, sem hafa
veruleg áhrif á vöxt.
Guðmundur Halldórsson, rannsóknar-
stjóri hjá Landgræðslu ríkisins