Fréttablaðið - 02.11.2013, Síða 16
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 16
www.aslaug.is
Stuðningsmenn Áslaugar Maríu Friðriksdóttur bjóða til
prófkjörsfagnaðar frá 17:30-19:00 á kaffi og veitingahúsinu
Bast að Hverfisgötu 20.
Skúli mennski tekur lagið og DJ Daníel Ágúst Haraldsson
hressir, bætir og kætir.
Léttar veitingar í boði, allir velkomnir.
Prófkjörsfagnaður
Áslaug María – 2. sætið
Jóhann Ólafsson & Co
Kynning á OSRAM ljósaperum í BYKO Breidd
í dag, laugardag frá kl. 12 til 16.
LÆKKAÐ VERÐ Á VÖLDUM
OSRAM LED-PERUM
w
w
w
.e
xp
o.
is
/
E
XP
O
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a
2.695kr.
1.395kr.
2.395kr.
1.595kr.
2.395kr.
1.895kr.
2.395kr.
3.495kr.
1.395kr.
1.995kr.
Vnr. 54194562
OSRAM LED-PERA, 10W,
E27, DIMMANLEG.
Vnr. 54194568
OSRAM LED-KERTA-
PERA, 3,6W, E14.
Vnr. 54194563
OSRAM LED-KERTA PERA,
6W, E14, DIMMANLEG.
Vnr. 54194556
OSRAM LED-PERA,
4,8W, GU10 36°.
Vnr. 54194565
OSRAM LED-PERU-
KÚLA, 6W, E14.
Vnr. 54194560
OSRAM LED-PERA,
7,5W, GU10 36°.
Vnr. 54194566
OSRAM LED-
PERA, 8W, E27.
Vnr. 54194537
OSRAM LED-PERA, 2W,
GU10 25°, DIMMANLEG.
Vnr. 54194567
OSRAM LED-KÚLU-
PERA, 3,6W, E14.
Vnr. 54194557
OSRAM LED-PERA,
5W, 12V, GU5 36°.
3 Í PAK
KA
FJÖLMIÐLAR Þrátt fyrir að fram-
boð á afþreyingarefni hafi aukist
stórum skrefum síðustu ár, meðal
annars með tilkomu efnisveitna á
borð við Netflix og aukins ólöglegs
niðurhals, hefur áhorf á dagskrá
sjónvarpsstöðvanna ekki dregist
saman. Þetta segja forsvarsmenn
stöðvanna og byggja á svokölluð-
um PPM-mælingum hjá Capacent.
Freyr Einarsson, sjónvarps-
stjóri 365, móðurfélags Frétta-
blaðsins, segir að samkvæmt
áhorfs mælingum sé ekki að
merkja neinar stórar breytingar.
„Við erum með fleiri áhorfendur
á stöðvarnar okkar núna en á sama
tíma í fyrra. Það má að einhverju
leyti rekja til þess að við bættum
við einni stöð hjá okkur en við sett-
um líka aukinn kraft í íslenska
dagskrárgerð í haust og finnum
að áhorfendur kunna að meta það.“
Auk þess segir Freyr að
afkoman af sjónvarpsrekstri 365
í ár líti út fyrir að verða betri en
á síðasta ári og eins séu áskrift-
artölur sambærilegar við síðasta
ár. Netflix og aðrar veitur hafi því
ekki mikil áhrif á áhorf á hefð-
bundnar stöðvar að hans mati.
„Raunar er það mitt mat að Net-
flix, sem er í grunninn vídeóleiga,
sé að koma verst niður á leigunum.
Ég er líka á því að leigurnar hafi á
sínum tíma verið miklu stærri en
Netflix er í dag.“
Friðrik Friðriksson, fram-
k v æ m d a s t j ó r i S k j á s i n s ,
tekur í sama streng og segir
breytingarnar óverulegar.
„Ég held að við séum á svipuðu
róli og verið hefur síðustu tvö árin.
Þetta er kannski ekki beint vaxtar-
markaður en hefur haldið sér. Það
er okkar reynsla að minnsta kosti.“
Skarphéðinn Guðmundsson,
dagskrárstjóri á RÚV, segir þessa
þróun hafa haft hvað minnst áhrif
á RÚV.
„Það er aðallega vegna þess að
efnisúrvalið hjá okkur er hvað
frábrugðnast því sem er í boði, til
dæmis á Netflix. Það er auðvitað
ekkert innlent efni þar, þannig að
bein áhrif á áhorf hjá okkur eru
óveruleg.“
Skarphéðinn bætir því við að til
lengri tíma litið geti efnisveitur
haft áhrif á áhorf á útsendingar,
en þá helst hvað varðar erlenda
sjónvarpsþætti.
„Því verður þá mætt með auk-
inni innspýtingu í innlenda dag-
skrárgerð og það er kannski
jákvæð þróun.“ thorgils@frettabladid.is
Netflixvæðing skaðar
ekki sjónvarpsáhorf
Áhorf á útsendingar hefur ekki dregist saman þrátt fyrir aukið framboð á afþrey-
ingarefni í gegnum efnisveitur eins og Netflix, að sögn talsmanna sjónvarpsstöðv-
anna. Sjónvarpsstjóri 365 segir afkomuna í ár stefna í að verða betri en í fyrra.
ÁHORFIÐ MINNKAR EKKI Samkvæmt
mælingum hefur áhorf á útsendingar
sjónvarpsstöðvanna ekki dregist saman
þrátt fyrir sífellt fleiri leiðir til að nálg-
ast efni, til dæmis efnisveitur eins og
Netflix. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Capacent mælir sjónvarps- og útvarpshlustun með rafrænni aðferð,
svokallaðri PPM-tækni, og er úrtakið um 500 manns á aldrinum 12-80 ára.
Mælingin fer þannig fram að þátttakandinn ber lítið tæki á sér sem nemur
merki sem berast með hljóði frá sjónvarps- og útvarpsstöðvum.
(Af vef Capacent)
Hvað eru PPM-mælingar
JAFNLAUNAVOTTUN Félagsmálaráðherra segir að fyrirtæki sem ætli að sækja um
jafnlaunavottun verði að hafa skjalfesta launastefnu, samþykkta jafnréttisáætlun og
hafa látið gera að minnsta kosti eina launagreiningu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Frumvarp um jafnlaunavottun tilbúið í ráðuneyti:
Á að útrýma kyn-
bundnum launamun
STJÓRNMÁL „Frumvarp
um jafnlaunavottun er
liður í því að útrýma kyn-
bundnum launamun,“
segir Eygló Harðardóttir
félagsmálaráðherra. Hún
útskýrir að þetta sé eitt
stærsta verkefni ráðu-
neytisins til að tryggja
jafnrétti milli karla og
kvenna.
Frumvarpið er sam-
starfsverkefni velferðarráðu-
neytisins, Samtaka atvinnulífs-
ins, Alþýðusambands Íslands og
Staðla ráðs. Búið er að kynna það
í ríkisstjórn og verður það lagt
fram á Alþingi á næstu dögum.
„Þau fyrirtæki sem vilja fá
jafnlaunavottun þurfa að upp-
fylla nokkur skilyrði.
Þau verða að hafa skjal-
festa launastefnu, sam-
þykkta jafnréttisáætlun
og þau verða að hafa látið
gera að minnsta kosti eina
launagreiningu,“ segir
Eygló.
Ráðherra segir að ekki
verði horft til stærðar
fyrir tækja, heldur sé
markmiðið að sem flest
fyrirtæki fái jafnlaunavottun.
„ Þ orstei n n Víglu ndsson
formaður, Samtaka atvinnu lífsins,
hefur sagt að hann vonist til að
100 fyrirtæki verði komin með
jafnlaunavottun innan tveggja
ára. Ég vona að þau verði miklu
fleiri,“ segir Eygló. - jme
EYGLÓ
HARÐARDÓTTIR