Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 24

Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 24
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Mér fannst þetta fínn tími til að draga gömlu film-urnar upp úr köss-um í geymslunni,“ segir Jóhann Á. Hansen sem hefur opnað ljós- myndasýninguna Dýrðin litin á ný á Mokka við Skólavörðustíg. Á sýningunni eru myndir sem Jóhann tók á tónleikum Sykur- molanna, Dýrðin kvödd, á Hótel Íslandi í mars árið 1988, rétt í þann mund sem sveitin var að slá í gegn úti í hinum stóra heimi. Á þessum tíma var Jóhann, en hann hefur að aðalstarfi rekstur á Gallerí Fold við Rauðarárstíg, nemandi við Fjölbrautaskólann í Ármúla. „Eins og með marga aðra Íslendinga vann ég ýmis störf samhliða skólanum, meðal annars á barnum á Hótel Íslandi en líka sem ljósmyndari í lausa- mennsku. Þá var ég aðallega að elta lögguna og taka myndir af slysum og slíku og seldi blöð- unum myndirnar, mest í DV,“ rifjar Jóhann upp. „Ég fór líka á marga tónleika á þessum tíma og tók myndir, til dæmis af Leon- ard Cohen, Boy George og Fine Young Cannibals og brot af þeim myndum má finna á síðunni minni johann-hansen.photo- shelter.com.“ Hann minnist tónleikanna með Sykurmolunum aðallega vegna þess hversu mikið og frjálst aðgengi ljósmyndararnir, sem voru nokkrir, fengu að sveitinni á sviðinu. „Á Hótel Íslandi er sviðið nánast hluti af dansgólfinu og við fengum að fara alveg upp að hljómsveitinni, sem er mjög óvenjulegt og hefur heldur betur breyst. Í dag er ekki óalgengt að ljósmyndarar þurfi jafnvel að skrifa undir samninga þess efnis að tónlistarfólkið sem myndað er eigi höfundarréttinn að myndun- um,“ útskýrir Jóhann. Eftir Sykurmolatónleikana gerði Jóhann ekkert með mynd- irnar í mörg ár, utan þess að selja eina mynd af Björk Guðmunds- dóttur til bandarísks tímarits. „Ég hafði þó alltaf í huga að draga myndirnar á flot og þegar ég hitti Einar Örn Benediktsson á síðustu menningarnótt sagði ég honum frá þeim. Hann hvatti mig eindregið til þess að halda á þeim sýningu og mér datt fyrst í hug að halda hana í Ráðhúsinu, en þar var allt upppantað. Mokka á mjög vel við þessar myndir því þetta er einn elsti starfandi sýningar- staður landsins og svo skilst mér að Björk eigi stundum þangað erindi,“ segir Jóhann. Sýningin stendur yfir til 28. nóvember. Sýnir Sykurmola á Mokka Jóhann Á. Hansen sýnir myndir sem hann tók á tónleikum Sykurmolanna á Hótel Íslandi árið 1988 á Mokka. Filmurnar lágu ofan í kassa í mörg ár en söngvari sveitarinnar hvatti Jóhann til að halda sýningu á þeim. Bergsteinn Sigurðarson dagskrárgerðarmaður Kjötsúpa og bleiur Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að belgja mig út af kjötsúpu úr lambinu sem ég keypti beint frá býli áður en ég fer á leikrit um fullorðið fólk sem fær eitthvað út úr því að vera með bleiu. Sunna Ben listamaður Selur af sér spjarirnar Í dag ætla ég á BAST í frænku- löns, svo verð ég að selja af mér fötin á flóamarkaði Hins hússins frá klukkan 14 og vonandi kíki ég á einhverja tónleika þar eftir á. Á morgun verð ég svo á X-inu frá 21-22. Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson verslunarstjóri Grill og fótbolti Í kvöld ætlum við félagarnir að kveikja í grillinu í frostinu og elda saman og að sjálfsögðu reynir maður horfa á Liverpool- menn leggja Arsenal að velli. Morgundagurinn verður senni- lega notaður til afslöppunar. Brynja Þorgeirsdóttir, fjölmiðlakona og nemi Skrifar um harmleiki Ég ætla að nota helgina til að vinna í ritgerð um harmleiki sem ég þarf að skila bráðum, því ég er í bókmenntafræði í háskólanum. Svo fer ég næstum daglega í leikhús og á því verður engin undantekning nú. ULLIN GERIR SITT GAGN Kúlurnar eru til í mörgum litum og stærðum. „Glymjandi í húsum er þekkt vandamál sem kÚLA leysir. Kveikjan að hugmyndinni varð til árið 2007 þegar óskað var eftir ráðgjöf vegna hljóð- endurkasts í heimahúsi og engar almennilegar lausnir voru í boði,“ segir Bryndís Bolladóttir, hugvitskona og hönnuður, um veggverk sem hún ætlar að kynna í dag í versluninni Epal í Skeifunni 6. kÚLA hefur sem sagt hljóðdempandi eiginleika og hefur verið þróuð til að bæta hljóðvist bæði fyrir opinber rými og heimili. Hún er framleidd hér á Íslandi í mörgum litum og stærðum og ytra byrðið er úr ull. Bryndís segir kÚLU hafa sannað gildi sitt frá því hún kom fyrst á markað 2010, hún hafi fengið ISO-vottun til merkis um að hún sé hágæðavara og einnig hafi einkaleyfisstofa staðfest nýnæmi hennar. - gun Íslenskt veggskraut sem bætir hljóðvist Hönnuðurinn Bryndís Bolladóttir verður í Epal í dag að kynna hið hljóðdempandi veggverk sitt kÚLU. MYND/JÓHANN Á. HANSSON ULLIN GERIR SITT GAGN Kúlurnar eru til í mörgum litum og stærðum. Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is HELGIN 2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR Höfum flutt sálfræðistofur okkar Við höfum flutt sálfræðistofur okkar að Höfðabakka 9 (shb9.is) og fengið Moniku Skarphéðinsdóttur sálfræðing til liðs við okkur. Við sinnum allri almennri sálfræðiþjónustu eins og: Meðferð við kvíða, depurð, uppbyggingu sjálfstrausts, pararáðgjöf, til- finningahliðum ófrjósemi, átröskunum, áfallaúrvinnslu, streitustjórnun og ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna fyrirtækja. Bjóðum ýmis með- ferðarúrræði eins og HAM, DBT, EMDR, árvekniþjálfun auk almennrar samtalsmeðferðar. Tímapantanir í síma 527-7600. Nánari upplýsingar inni á salfraedistofa.is og salarafl.is Þórdís Rúnarsdóttir, Psy.D. Monika Skarphéðinsdóttir, Cand Psych Gyða Eyjólfsdóttir, Ph.D. thordis@salfraedistofa.is monika@salarafl.is salarafl@salarafl.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.