Fréttablaðið - 02.11.2013, Qupperneq 28
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Stóra, stóra verkefnið
María á tvær stelpur. Láru og
Kristínu. „Lára er fiðrildi með
risastórt hjarta og krullur og snert
af einhverfu. Það er búið að vera
gefandi verkefni að læra hennar
tungumál og finna leiðir til að
hjálpa henni að blómstra. Ég er
ótrúlega þakklát fyrir það,“ segir
María einlæg og heldur áfram.
„Það kom í ljós um leið og hún
fæddist að það var eitthvað ekki í
lagi, hún grét hástöfum fyrsta árið
sitt, stanslaust. Það var svakaleg
eldskírn fyrir nýbakaða móður.
Ég var þrjátíu og fimm ára og það
var eins gott að ég var komin til
þroska, þá gat ég staðið í lappirnar.
Svo eignaðist ég Kristínu rétt fyrir
fertugt og hún er að verða tíu ára,
efnileg, skemmtileg og hjartahlý
stúlka.“
Ertu sem sagt að segja mér að
þú sért að verða fimmtug?
„Já, við mæðgurnar eigum allar
stórafmæli á næstunni. Kristín
verður tíu ára núna í nóvember og
við Lára eigum afmæli í janúar,
hún verður fimmtán ára og ég
fimmtug. Við ætlum að fara til
Afríku, á Kilimanjaró og í safarí
um áramótin með tveimur vina-
fjölskyldum af þessu tilefni. Það
verður gaman. Ég fékk Afríku á
heilann þegar ég var lítið barn,
eins og ég hefði átt þar heima ein-
hvern tíma í fyrra lífi. Ég hélt
alltaf að ég yrði læknir sem ynni
í Afríku við að bjarga heiminum
en varð svo bara leikari á Íslandi.
Stundum hef ég sagt að Lára sé
mín Afríka því uppeldi hennar er
stóra, stóra verkefnið mitt í lífinu.“
María á líka son sem hún að
sögn fékk í kaupbæti. „Hann
Tómas minn Þorsteinsson er 24
ára fótboltastrákur og er að ljúka
námi í verkfræði. Tómas var
fyrsta barnið mitt og bjó mig undir
framhaldið og við erum miklir
vinir. Þá erum við mamma hans
í hestamennsku saman og hann
getur oft náð okkur báðum í sama
símtalinu!” Hestaáhuginn hefur
fylgt henni frá því hún man eftir
sér. „Lengi vel hugsaði ég að ég
gæti bara farið í stakar hestaferðir
og sleppt stússinu sem fylgir því
að eiga hest en svo lét ég draum-
inn rætast og eignaðist hest fyrir
fimm árum og stússið er æðislegt.
Það hefur verið ótrúlega gefandi
að eiga sinn eigin hest og ná sam-
spili við hann. Svo er hundurinn
Hneta á heimilinu. Hún hefur
verið mikill þerapíuhundur fyrir
Láru og passar að hún fari ekki
alltof langt inn í sig.“
Markmiðið er að efla fólk
Náttúruvernd er stór partur af
lífi Maríu. Hún er einn af stofn-
endum Framtíðarlandsins sem
fóstrar verðmæti Íslands og er
hugmyndaveita fyrir samfélags-
lega ný sköpun, og formaður
stjórnar þess. Auk þess sem hún
er í stjórn Auðlindar náttúrusjóðs
sem Guðmundur Páll Ólafsson
náttúrufræðingur stofnaði. „Guð-
mundur Páll heitinn var mér dýr-
mætur lærimeistari og kenndi
mér að það er ekki nóg að þykja
vænt um náttúru Íslands í hjarta
sér, maður verður að verja hana
því hún er ómálga. Hann sagði að
örlagaspurningin væri sú hvort
við yrðum græðgi að bráð eða
settumst loks á þúfuna og biðum
eftir sálinni í okkur og samhæfð-
um hana sál landsins,“ segir María
og kveðst aðspurð hafa verið úti í
Gálgahrauni nýlega og það hafi
verið yfirþyrmandi reynsla.
Næsta sumar bíður nýtt ævin-
týri Maríu. Hún hefur tekið að
sér að leiða fimmtán norræn ung-
menni í gegnum leiklistarferða-
lag sem hefst á Svalbarða. „Já,
alls verður 75 unglingum af öllum
Norðurlöndunum skipt í fimm
hópa sem ferðast og kynnast
sirkus, músík, sjónlist, dansi og
leiklist og mætast í Austur-Finn-
landi þar sem við búum til risa-
stóra lokasýningu með þeim.“
En eru ekki ísbirnir á Sval-
barða? „Jú, ég held að maður fari
ekki út í póstkassa öðru vísi en
með byssu. Ég þarf kannski að
fara að koma mér upp byssuleyfi.“
Ekki eru öll verkefni upptalin
enn sem María er að fást við
því hún fetar í fótspor Gunnars
Eyjólfssonar leikara og kennir
ræðumennsku. Vinnur bæði á
eigin vegum og hjá Háskólanum í
Reykjavík. „Ég fór upphaflega af
stað með námskeið til að styrkja
konur í að koma fram en víkkaði
það fljótlega út,“ upplýsir hún.
„Fólk býr yfir svo mikilli reynslu
og þekkingu en vantar tækni til að
miðla hugmyndum sínum á áhrifa-
mikinn hátt. Það er virkilega gef-
andi að sjá fólk stíga út úr sviðs-
skrekk og finna styrk sinn.“
En er ekki erfitt að vera að
vasast í svona mörgu? „Þetta er
í raun allt af sama meiði,“ svarar
María. „Markmiðið er að efla
fólk og miðla ljósi. Þegar ég er að
kenna er ég bæði að koma fram og
leikstýra. Byrja á að standa fyrir
framan áhorfendur og svo sendi ég
þá upp í pontu. Ég hef alltaf notið
þess að kenna og þetta er tækifæri
til að halda hnífunum sínum beitt-
um og láta gott af sér leiða.“
LEIKKONAN „Fólk er ekki komið í bíó eða leikhús til að sjá Maríu Ellingsen, heldur
sjálft sig. Því lengra sem ég fer inn í sálina á mér því nær kemst áhorfandinn eigin sál.“
Flaug í gegnum huga minn í gær þar sem við stóðum fyrir framan skrið-
dreka Vegagerðarinnar sem tættu vægðarlaust í sig aldagamalt gróið
hraunið sem Kjarval elskaði að mála. Ég leikstýrði verki ekki alls fyrir
löngu um Rachel Corrie, unga stúlku sem stóð á hól eins og þessum til
að verja heimili fjölskyldu í Palestínu fyrir ísraelska hernum, og það fór
svo í taugarnar á manninum á skriðdrekanum að hann keyrði yfir hana.
Að sjá lögregluhersveit, vopnaða kylfum og táragasi, íklædda skotheld-
um vestum og leðurhönskum með hnúajárnum til að mæta fólki, mörgu
á sjötugs- og áttræðisaldri, sem lagðist í lyngið til að verja þetta hraun
með lífi sínu og veitti enga mótspyrnu.
Það var var eins og ljótasta senan úr Avatar.
Hvar erum við eiginlega stödd? Af hverju er náttúran okkar skotspónn?
Í stríðum milli þjóða er það þekkt ráð að veikja andstæðing með því
að myrða börnin og nauðga konunum. Getur verið að náttúra Íslands
sé í þessu hlutverki í pólitísku stríði hér á Íslandi. Að náttúran sé álitin
hjartað í þeim sem eru taldir vinstri og til að sýna yfirburði og særa
andstæðinginn helsári sé ráðist á náttúruna. Hvernig er hægt að útskýra
þennan fjandskap hægrimanna út í náttúru Íslands?
Það er allavega skrítið að á örfáum mánuðum hafi þessi nýja ríkistjórn,
sem ekki gengur mikið undan að öðru leyti, aflýst friðun Þjórsárvera,
undirbúið að afturkalla náttúrulög, sett spurningamerki við Ramma-
áætlun, talað um að skera hálendið í tvennt með háspennulínu, mælt
með að vegur verði lagður í gegnum Teigsskóg, rætt um að leggja niður
umhverfisráðuneytið, virkja Reykjanesið til að geta reist álver í Helguvík
og gefið grænt ljós á eyðileggingu Gálgahrauns.
Er það einlæg hugsjón hægri manna og kvenna að ráðast gegn nátt-
úrunni eða er þetta herbragð til að sýna vald, koma fram hefnd? Og ég
segi hefnd því ég skynja heift hjá þeim sem fengu rauða spjaldið eftir
hrun, voru reknir út af og fóru í leikbann og eru núna að labba inn á
völlinn aftur.
Ég vona svo sannarlega að ég hafi rangt fyrir mér því mér brá þegar
þetta kom mér í hug þarna út í hrauninu.
Það veldur líka vonbrigðum að sjá stjórnmálakonu eins og Hönnu
Birnu falla hér í sömu gryfju og Sif, Valgerður og Ingibjörg Sólrún í Kára-
hnjúkamálinu sem virtust halda að með því sýndu þær að þær hefðu
sama styrk og kjark og strákarnir af því að þær þyrðu í stríð … gegn
landinu.
En hvar er sú kona og maður við völd sem eru tilbúin að sýna alvöru
styrk og alvöru kjark með því að halda verndarhendi yfir þessu landi sem
okkur er treyst fyrir, horfa til framtíðar, velja frið, sátt, samtal og sýna
virðingu? Nota umboð sitt til góðra verka en ekki skemmdarverka?
Því staðreyndin er að við búum ekki í Palestínu– við erum ein þjóð,
ein lítil þjóð í einu litlu landi– og það vill svo til að náttúra Ísland er það
sem gerir það einstakt. Er nátengd sjálfsmynd okkar, nærir okkur og veitir
okkur innblástur til sköpunar. Og er í aðalhlutverki í þeirri ímynd sem við
byggjum viðskipti okkar á. Ef það er eitthvað sem við ættum öll að geta
verið sammála um er það að standa saman og vernda þetta fjöregg okkar.
BÚUM VIÐ Í PALESTÍNU?
Í GÁLGAHRAUN I Skriðdrekar Vegagerðarinnar tættu vægðarlaust í sig alda-
gamalt hraunið sem Kjarval elskaði að mála. MYND/MARÍA ELLINGSEN
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 | www.ils.is
Kynntu þér breytingar á upplýsingagjöf til neytenda
og nýja lánaskilmála Íbúðalánasjóðs vegna nýrra laga
um neytendalán á www.ils.is
• Greiðslumat sniðið að ákveðinni eign
• Aukin upplýsingagjöf við lánveitingu
• Nýir lánaskilmálar
Ný lög – nýir lánaskilmálar