Fréttablaðið - 02.11.2013, Síða 32
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
➜ Flestir leikir og mörk
Eiður Smári Guðjohnsen er bæði
leikjahæsti og markahæsti leik-
maðurinn í núverandi landsliðs-
hópi Íslands. Eiður Smári hefur
skorað 24 mörk í 76 leikjum og er
sá markahæsti í sögu landsliðsins.
Hinn 31 árs gamli Dario Srna
er landsleikjhæsti Króatinn með
108 leiki og heldur áfram að bæta
metið með hverjum leiknum.
Markvörðurinn Stipe Pletikosa
kemur á hæla honum með 107
leiki. Eduardo er markahæsti
Króatinn í hópnum með 29 mörk
í 60 leiknum. Davor Suker er sá
markahæsti í sögunni með 45
mörk en hann er núverandi forseti
Knattspyrnusambands þjóðarinnar.
7-1 fyrir Króatíu. Ísland og Króatía hafa tvívegis mæst á knattspyrnuvellinum og höfðu þeir rauðu og hvítu betur í bæði skiptin. Króatía vann sannfærandi 4-0 sigur í Zagreb vorið 2005 í undankeppni HM 2006. Núverandi þjálfari liðsins, Niko Kovac, skoraði tvö marka Króata í leiknum og miðvörðurinn Josip Simunic, sem enn stendur vaktina í vörninni, eitt.Eiður Smári Guðjohnsen kom Íslandi yfir í leiknum á Laugardalsvelli en Króatar svöruðu með þremur mörkum og unnu 3-1 sigur. Darijo Srna, hægri bakvörður og fyrirliði Króata í dag, skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu.Eiður Smári og Kári Árnason eru einu af nú verandi landsliðsmönnum sem komu við sögu fyrir átta árum.Kolbeinn Tumi Daðasonkolbeinntumi@frettabladid.is
Króatar standa í veginum
Tveir leikir gegn Króötum standa á milli þess að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tryggi sér sæti á HM í Brasilíu næsta
sumar og ljóst er að margir landsmenn eru orðnir spenntir fyrir því sem gæti gerst. Hversu góðir eru Króatar? Hverjir eru
möguleikar Íslands? Hvað kostar farið til Brasilíu? Svör við þessum spurningum og fleiri má finna hér að neðan.
➜ Rándýr ferð til Brasilíu
Takist íslenska liðinu hið ótrúlega og leggi Króata að velli er ljóst að strákarnir okkar
verða á meðal 32 bestu knattspyrnuþjóða heims á HM í Brasilíu næsta sumar. Vafalítið
myndu fjölmargir stuðningsmenn Íslands vilja skella sér í sólina og upplifa sögulega
stund. Vonandi eru hinir áhugasömu byrjaðir að safna.
Hér að neðan má líta grófa kostnaðaráætlun miðað við tíu daga ferð tveggja einstak-
linga þar sem farið er á þrjá leiki Íslands í riðlakeppninni.
Flug frá Íslandi til Brasilíu 300.000
Hótel í þrettán nætur í Brasilíu 100.000*
Þrjú innanlandsflug í Brasilíu 90.000
Þrír miðar á völlinn 35.000
Leigubílar, matur og skemmtun 200.000
Heildarkostnaður 725.000 á mann
*Tveir deila tveggja manna herbergi
➜ Ungt lið að árum
Króatía fékk sjálfstæði frá
Júgóslavíu árið 1991 og
spilaði sinn fyrsta lands-
leik gegn Bandaríkjunum
sama ár. Sigur vannst 2-1.
Landsliðið fékk inngöngu í
Alþjóða- og evrópska knatt-
spyrnusambandið árið 1993.
Liðið tók fyrst þátt í undan-
keppni fyrir Evrópumótið
1996. Liðið vann sinn riðil
en féll út í átta liða úrslitum
fyrir Evrópumeisturum
Þjóðverja.
➜ Bronsið í Frakklandi
Besti árangur Króata á stórmóti kom á HM í Frakklandi 1998. Liðið fór alla leið í undanúrslit
þar sem liðið tapaði 2-1 gegn heimamönnum og verðandi heimsmeisturum. Liðið lagði
Holland í leiknum um þriðja sætið og Davor Suker fékk gullskóinn fyrir að skora flest mörk.
Með árangri sínum komst landsliðið í 3. sæti styrkleikalista FIFA sem er besti árangur þess.
Besti árangur Íslands er sá sem nú hefur náðst, umspilssæti í undankeppni HM. Liðið hefur
hæst setið í 37. sæti FIFA-listans.
➜ Ógengi Lagerbäck gegn Króötum
Ekki batnar tölfræði íslenska liðsins gegn því króatíska þegar viðureignir Svía undir stjórn Lars
Lagerbäck eru skoðaðar. Sá sænski stýrði löndum sínum í þrígang gegn Króötum sem unnu
sigur í öll skiptin. Króatar unnu 2-1 sigur í æfingaleik árið 2003. Darijo Srna skoraði sigur-
markið í tveimur 1-0 sigrum Króata í undankeppni HM 2006.
➜ Besti sóknarmaður Evrópu
Íslenskir varnarmenn þurfa að hafa að góðar gætur á fram-
herjanum Mario Mandzukic sem spilar með Evrópu meisturum
Bayern München. Sá stóri og nautsterki skoraði 22 mörk á
síðustu leiktíð og hefur verið sjóðandi heitur með Bæjurum
það sem af er leiktíð.
„Það er ekki til öflugri skallamaður í heiminum en hann,“
segir Pep Guardiola um framherjann 27 ára. 20 af 42 mörkum
Manzukic í þýsku úrvalsdeildinni hafa verið skoruð með
skalla. Hann var valinn knattspyrnumaður ársins í Króatíu á
síðasta ári.
➜ Ekkert þak yfir stúkunum
Króatar spila flesta heimaleiki sína
á Maksimir-leikvanginum í Zagreb.
Nafnið sækir leikvangurinn til þess hverfis
borgarinnar sem hann stendur í. Króatar
hafa fengið sig fullsadda af vellinum sem
fagnaði aldarafmæli sínu í fyrra.
„Við köllum leikvanginn ýmist þann ljót-
asta í Evrópu eða skömm Maksimir,“ segir
króatíski blaðamaðurinn Alexandar Holiga.
Hlaupabraut er umhverfis völlinn líkt og Ís-
lendingar þekkja svo vel úr Laugardalnum.
Þess utan er ekkert þak yfir stúkunum.
Íslenskir stuðningsmenn sem ætla að mæta
á leikinn í Zagreb ættu að íhuga að taka
regnföt með til vonar og vara.
➜ 20. heimsmeistaramótið
Það fer vel á því að sigursælasta þjóð
sögunnar í knattspyrnu taki að sér gest-
gjafahlutverkið á HM næsta sumar. Brasilía
hefur fimm sinnum orðið heimsmeistari og
eina þjóðin sem hefur verið með í öll tutt-
ugu skiptin. Þeir gulklæddu hafa einu sinni
áður haldið keppnina. Það var árið 1950
þegar enginn eiginlegur úrslitaleikur var
leikinn. Fjögur lið léku í úrslitariðli þar sem
Úrúgvæ lagði Brasilíu 2-1 í lokaleik riðilsins
á Maracana-leikvanginum í Brasilíu. 174
þúsund Brasilíumenn setti hljóðan þegar
flautað var til leiksloka og titillinn langþráði
úr augsýn. Sambastrákrnir gátu hins vegar
dansað og fagnað titlinum 1958, 1962,
1970, 1994 og 2002.