Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 42

Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 42
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 Það er ekki beint hefð-bundið lífið sem hjónin Sóley Kaldal og Jakob Jakobsson lýsa fyrir blaðamanni í gegnum lélegt símasamband við Sisimiut á Grænlandi. Sóley og Jakob hafa búið þar síðan í ágúst og eru að ná taktinum í grænlensk- um lifnaðarháttum og menningu. Sóley, sem er doktorsnemi og áhættu- og öryggisverkfræðing- ur, kennir framhaldsskólanemum í bænum stærðfræði en Jakob, sem er arkitekt, vinnur heima í verk- efnum frá Íslandi. Hann er líka heimavinnandi húsfaðir og sér um að koma syni þeirra til og frá skóla og sinna heimlinu meðan Sóley er við vinnu. Langir vinnudagar Þau segja það hafa verið tilvilj- unum háð að þau ákváðu að flytja til Grænlands. Sóley: „Ég var að leita mér að aukavinnu í Dan- mörku með náminu og kom auga á auglýsingu frá skólanum á Græn- landi.“ Hún segir að þar sem hún hafi verið að vinna talsvert með norðurheimskautið muni það nýt- ast henni síðar meir að hafa búið á Grænlandi og því ákváðu þau að slá til – enda spennandi ævintýr. Dagarnir hjá Sóleyju eru langir, hún kennir allt að 60 tíma á viku. Sóley: „Kennararnir eru fáir, þar sem er ekki er hlaupið að því að fá framhaldsskólakennara því það eru gerðar miklar menntunarkröf- ur. Þannig er enginn afleysinga- maður sem hægt er að hringja í ef einhver veikist.“ Hún segist hafa mikla unun af því að kenna nem- endum sínum. Flestir nemendanna eru grænlenskir en kennslan fer fram á dönsku, sem þá er í flestum tilvikum annað tungumál þeirra, sem getur reynt á. Dagarnir hjá Jakobi eru alla jafna rólegri þar sem hann vinnur heima í sínum verkefn- um fyrir hádegi en eftir hádegi sækir hann Óla son þeirra í leik- skólann og sinnir heimilinu. Þau segja Óla taka breytingunum vel, hann hafi áður skipt um leikskóla milli Danmerkur og Íslands og er orðinn vanur svona róttækum breytingum. Sóley og Jakob segja gaman að fylgjast með þroska og vexti sonarins í þessum aðstæð- um. Jakob: „Á Grænlandi er hann innflytjandi, hann er öðruvísi einstaklingur sem þarf að laga sig að framandi samfélagi. Þá er hann að læra nýtt tungumál, sem er einstaklega fallegt.“ Óli litli er heillaður af því návígi sem er við dýrin á Grænlandi, en þar eru sleðahundar á hverju horni ásamt öðrum dýrum. Sóley: „Hann vill eingöngu horfa á dýralífsmyndir núna og leikur sér með horn og bein sem leikföng.“ Hógvært og venjulegt fólk Sóley og Jakob bera grænlenska samfélaginu einkar vel söguna. Sóley: „Grænlendingar eru hóg- værir og bara ósköp venjulegt fólk eins og aðrir. Það kom okkur samt á óvart hversu dýrt er að lifa á Grænlandi en til að mynda er leiguverð sambærilegt við Kaup- mannahöfn. Jakob: „Við hlökk- uðum líka mikið til að komast úr neysluhyggjunni sem einkennir bæði íslenskt og danskt samfélag en komumst fljótt að því að slíkt er ekki síður til staðar á Græn- landi. Grænlenskir unglingar eiga iPhone-síma og ganga um í dýrum innfluttum fatnaði, ekki síður en aðrir unglingar á Norðurlöndum.“ Jakob hefur verið þeirrar gæfu Við erum hvorki með sjónvarp né inter- net-nettengingu og oft og tíðum er símasambandið lélegt. Svo höfum við varla séð neina auglýs- ingu af nokkru tagi neins staðar síðan við komum, maður uppgötvar það eftir á hvað það er mikið áreiti.“ Fanney Birna Jónsdóttir fanney@365.is FJÖLSKYLDAN Á GRÆNLANDI Óli Kaldal Jakobsson, Sóley Kaldal og Jakob Jakobsson á göngusleða í Sisimiut MYND/JAKOB JAKOBSSON @MONSIEURGRUNVALSKY Á BRÚNINNI Grænlenskur ofurhugi leikur listir sínar á BMX hjóli MYND/JAKOB JAKOBSSON @MONSIEURGRUNVALSKY ILLA VIÐ DANI Það reyndist auðvelt fyrir Jakob að komast í fótboltalið bæjarins þegar í ljós kom að hann er Íslendin- gur. MYND/JAKOB JAKOBSSON @MONSIEURGRUNVALSKY SKINNIÐ STREKKT Óli litli stendur hér heima í stofu fyrir framan skinnið af hreindýrinu sem pabbi hans veiddi. MYND/JAKOB JAKOBSSON @MONSIEURGRUNVALSKY Grænlendingar eru ekki búnir að uppgötva hvað þeir eru töff Hjónin Sóley Kaldal og Jakob Jakobsson ákváðu í apríl að rífa sig upp með rótum frá heimili sínu í Kaupmannahöfn og flytja til Sisimiut á Grænlandi. Þar halda þau heimili ásamt syni sínum Óla og Sóley kennir grænlenskum framhaldsskóla- nemum stærðfræði og Jakob vinnur heiman frá við arkitektúr og sinnir heimilinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.