Fréttablaðið - 02.11.2013, Side 46
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 46
Ár drekans“ eftir Össur Skarphéðinsson, fyrr-verandi utanáðherra, sem kemur út í næsta mánuði er ekki hefð-bundin pólitísk endur-
minningabók eins og stjórnmála-
menn gefa oft út eftir að þeir hafa
yfirgefið hið pólitíska svið. Ríkis-
stjórn Samfylkingar og Vinstri
grænna var mynduð vorið 2009
eftir efnahagshrun þar sem allt
sem brugðist gat brást og þjóðar-
gjaldþrot var raunveruleg hætta
sem blasti við. Þannig var ríkis-
stjórnin til í andrúmslofti reiði og
gífurlegra átaka og segja má að í
bók Össurar sé almenningi hleypt
inn í innsta hring nýliðinna atburða
í stjórnmálasögunni eins og flugu á
öxl ráðherrans.„Þetta eru pólitísk
bersöglimál og ég nota þetta ár,
2012, til að segja bæði mína pers-
ónulegu sögu en líka til þess að gefa
þeim sem eru að pæla í pólitík hrá-
efni til að greina stöðuna eins og
hún er í dag. Því ég tel að þarna
hafi orðið til og spunnist fram þeir
þræðir sem nota má til að skilja
stöðuna í dag,“ segir Össur. Hann
hafi valið árið 2012 til að veita
„blóðhráa innsýn í líf stjórnmála-
manns sem er í fremstu röð í átaka-
ríkisstjórn“, bætir hann við.
Hann segist lýsa með óvægnum
hætti átökum við aðrar þjóðir, átök-
um milli hugmynda, átökum milli
hreyfinga og einstaklinga, en hann
gangi líka ansi nærri sjálfum sér.
„Þegar ég les þessa bók eftir að
hafa skrifað hana sé ég að lífsgleði
mín kemur þarna fram og ég vona
að hún sýni að ég virði andstæð-
inga mína, þeir njóta sannmælis og
mér þykir vænt um suma. En það
breytir ekki hinu að veruleikinn er
stundum nakinn og kaldur og það
kemur fram í þessari bók.
Pólitískt líf á bláþræði
Á einu ári drífur auðvitað margt á
daga utanríkisráðherra sem berst
á köflum eins og Don Kíkóti við
vindmyllur í tilraunum sínum til
að ljúka viðræðum við Evrópusam-
bandið. Það er af mörgu að taka í
utanríkismálum eins og málsvörn
þjóðarinnar í Icesave-málinu en
það skelfur líka flest í pólitíska
landslaginu innanlands. Ekki bara
milli stjórnar og stjórnarandstöðu,
heldur milli stjórnarflokkanna í
sumum málum og innan þeirra.
Þannig lá við að Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra tap-
aði ráðherrakaplinum þegar hún
skipti Árna Páli Árnasyni út úr rík-
isstjórn. Uppreisn var gerð í flokks-
stjórn Samfylkingarinnar og póli-
tískt líf forsætisráðherrans hékk á
bláþræði, eins og Össur lýsir í bók-
inni. Hann hefur lengi haft þann
sið að skrifa seint á kvöldin það
sem á fjörur hans rak þann dag-
inn, stundum eina til tvær setning-
ar, stundum heilu blaðsíðurnar. Oft
notar hann tímann á ferðalögum til
að færa atburði dagsins til bókar,
í flugvélum og á hótelherbergjum.
Að loknum áðsfundi á nýársdag
2012 skrifar Össur um fund sinn
með Ólafi Ragnari Grímssyni eftir
að aðrir ráðherrar eru farnir heim:
„Tveir gamlir ritstjórar Þjóðviljans
sátu þá á spjalli í þrjá stundarfjórð-
unga eftir að ríkisstjórnin hafði
kvatt. Ég fór yfir sögulegan fund
á Nordica kvöldið áður þar sem
sveitir Árna Páls, fráfarandi efna-
hagsráðherra, höfðu gert óvænta
uppreisn í flokksstjórn Samfylk-
ingarinnar. Trúir flokksmenn eins
og Rannveig Guðmundsdóttir, fyrr-
verandi ráðherra, og Þórunn Svein-
bjarnardóttir, fyrrverandi for-
maður þingflokksins, höfðu haldið
þrumandi ræður gegn tillögu for-
sætisráðherra. Hún fól í sér upp-
stokkun og fækkun ráðuneyta, og
leiddi til að Árni Páll hvarf nauð-
ugur úr ríkisstjórn.“ Össur lýsir því
svo hvernig minnstu mátti muna að
Jóhanna yrði undir í þessum átök-
um. „Pólitískt líf hennar, formanns-
embættið og um leið forsætisráð-
herrastóllinn, hékk á bláþræði,“
segir Össur. Ef hann og fleiri ráð-
herrar og þungavigtarfólk í flokkn-
um hefði ekki farið nánast maður á
mann hefði ríkisstjórnin sprungið á
þessu augnabliki.
Viku síðar, eða 7. janúar, skrifar
Össur hjá sér: „Í kjölfar fundarins
á Nordica hafa verið vangaveltur
um hvort ráðherrarnir sem settir
voru út úr ríkisstjórninni, einkum
Jón Bjarnason, muni hverfa frá
stuðningi við hana. Forsetinn er á
förum til Abu Dhabi og spyr hvort
óhætt sé að hann fari úr landi. Ég
segi að samgöngur nútímans séu
svo hraðar að hann verði bara kall-
aður heim ef þarf að mynda nýja
ríkisstjórn. Hann hnyklar dýrfirsk-
ar brúnir og kveðst vera að spyrja
utanáðherra í fullri alvöru.“
Splundraði Samfylkingunni
En það er annað mál sem einn-
ig leiddi næstum til til þess að
þingflokkur Samfylkingarinnar
splundraðist. Eftir að ljóst var orðið
að Geir H. Haarde, fyrrverandi for-
sætisráðherra, yrði einn ákærður
af Alþingi vegna mistaka í starfi
í aðdraganda efnahagshrunsins,
leggur Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, fram
frávísunartillögu gegn ákærunni
á Alþingi. Össur studdi aldrei að
ráðherrarnir fjórir yrðu yfirleitt
ákærðir og lætur nú vita af því að
hann ætli að styðja tillögu Bjarna.
Þótt Jóhanna styddi ákærurnar
ekki heldur, telur hún að frávísun-
artillagan sé óþingtæk, þvert ofan í
ákvörðun Ástu Ragnheiðar, forseta
Alþingis, að setja tillögu Bjarna á
dagskrá. Mjög tvísýnt var um nið-
urstöðu atkvæðagreiðslunnar.
Að frátöldu hruninu segir Össur
að ekkert mál hafi verið honum
eins erfitt. „Það lá eins og mara á
mér,“ segir hann. „Það urðu heift-
arleg átök um þetta, ekki bara
innan Samfylkingarinnar, innan
annarra flokka og millum flokka
líka og í ríkisstjórninni. Eins og
kemur fram í bókinni var því beitt
gegn mér og Ögmundi Jónassyni að
það væru yfirvofandi ríkisstjórnar-
slit ef þetta yrði samþykkt,“ segir
Össur. Og í bókinni greinir hann
frá því að innan þingflokks Sam-
fylkingarinnar hafi menn hótað að
ganga á dyr eða hætta almennt að
lúta vilja ráðherra flokksins í rík-
isstjórn um afgreiðslu einstakra
mála og greiða atkvæði um öll mál
eftir sannfæringu sinni hverju
sinni. „Ég held að það hafi verið
mjög skammt í það að það hrykki
úr þingflokknum,“ segir Össur.
Launhelgi Ríkisráðsfunda aflétt
Lesandi bókarinnar fylgir utanrík-
isráðherra um allt svið íslenskra
stjórnmála, hvort sem það eru
innanflokksmál, átök innan ríkis-
stjórnar eða við stjórnarandstöðu
og almennt í hans daglegu störfum
heima og heiman. Inn á milli eru
skemmtisögur og hugleiðingar. En
eitt af því sem bókin gerir er að
opna dyrnar inn í launhelgi Ríkis-
ráðsfunda sem fjölmiðlar og þjóð-
in hafa vanist að þekkja nær ein-
göngu af uppstilltum ljósmyndum
af ráðherrum á tröppum Bessa-
staða og með forseta við Ríkis-
ráðsborðið.
Össur lýsir tveimur Ríkisráðs-
fundum sem sæta tíðindum, annars
vegar 30. ágúst 2012 þegar forset-
inn er nýstiginn upp úr kosninga-
baráttu sem forseti lýðveldisins í
fimmta sinn og hins vegar 31. des-
ember sama ár. Á fundinum í ágúst
eru taugarnar þandar og það andar
köldu milli leiðtoga stjórnarflokk-
anna og forsetans þegar Ólafur
Ragnar tekur að skamma ríkis-
stjórnina og lýsir andstöðu við lög
um breytingar á stjórnarráðinu.
„Ríkisráðsfundir breyttust eftir
hrunið, urðu allt öðruvísi og það
sköpuðust átök og spenna milli for-
setans og ríkisstjórnarinnar sem
öll þjóðin vissi af. Það sem þjóðin
vissi ekki var hvernig þessi spenna
braust fram á Ríkisráðsfundum,“
segir Össur og segir fundinn 30.
ágúst greyptan í minni sitt.
Forsetinn húðskammar ríkis-
stjórnina. „Þarna sat ríkisstjórn-
in á Bessastöðum, forseti Íslands
tekur á móti henni og þetta breyt-
ist allt í einu í mjög þunga kyrr-
stöðubaráttu þar sem menn eru
kurteisir og hóflegir en forsetinn
raunar húðskammar ríkisstjórn-
ina, ekki einu sinni, ekki tvisv-
ar heldur nánast þrisvar á sama
fundinum.“ Össur rekur í bókinni
hvernig forsetinn lýsir óánægju
sinni með breytingar á stjórnar-
ráðinu sem felur m.a. í sér fækk-
un ráðherra í átta, sem forseti
telur leiða til erfiðleika í framtíð-
inni um myndun stjórna fleiri en
tveggja flokka. „Talan þrír gangi
illa upp í átta,“ áréttar forsetinn og
Össur og Ögmundur verða eins og
skólastrákar sem eiga bágt með að
skella ekki upp úr við þessa stærð-
fræðikennslu prófessorsins við
enda borðsins.
En þegar ráðherrarnir héldu
að skömmum forsetans væri
lokið segir Össur í viðtali okkar:
„Þegar ríkisstjórnin varpaði önd-
inni léttar og hélt að þessari atlögu
og framhaldi byltingarinnar frá
Bessastöðum færi að ljúka þá
kom þriðja lotan.“ Forsetinn hafi
vísað til greinar sem Davíð Odds-
son hafði skrifað í framhaldi af
landsdómi þar sem Davíð vísaði
í rök Róberts Spanó hæstaréttar-
lögmanns um að ef fara ætti eftir
úrskurði Landsdóms yrði kannski
að halda Ríkisráðsfundi miklu
oftar.
Framrás byltingarinnar
„Og ég sá það í hendi mér og
kannski Steingrímur líka en
kannski enginn annar ráðherranna,
að forsetinn var þarna að velta því
fyrir sér að halda framrás embætt-
isins áfram og krefjast þess í krafti
landsdómsúrskurðar að sama gilti
um Ríkisráð og ríkisstjórnarfundi
og það þyrfti að tilkynna honum
mjög reglulega um hvað þar væri
að gerast,“ segir Össur. Hann hafi
skilið það þannig að bera ætti mál
undir forsetann jafnvel vikulega.
Þrátt fyrir þrúgandi andrúmsloft
á nokkrum Ríkisráðsfundum hélt
Ólafur Ragnar í þá hefð að bjóða
ráðherrum upp á kaffi og pönnu-
kökur að loknum fundi með rabar-
barasultu sem gerð var úr rabar-
bara ræktuðum við forsetasetrið.
Össur minnist þess þegar Sam-
fylkingin hafði sagt skilið við sjálf-
stæðismenn í upphafi árs 2009 og
fráfarandi ráðherrar þeirra höfðu
setið sinn síðasta Ríkisráðsfund og
andrúmsloftið var vægast sagt raf-
magnað og allir fjölmiðlar lands-
ins á hurðarhúninum. „Það sýnir
pólitíska hæfileika Ólafs Ragnars
í pólitískum samskiptum að jafn-
vel þá tókst honum að halda öllum
ráðherrum Sjálfstæðisflokksins á
Bessastöðum og bjóða þeim upp á
pönnukökur með rabarbarasultu
úr garðinum á Bessastöðum og
halda fróðlegan fyrirlestur um
hvað þetta væri merkileg sulta, því
það var engin áhætta fólgin í því
umræðuefni. Það var oft rætt um
rabarbara sultuna á seinna skeiði
ríkisstjórnarinnar. Enda segi ég
það í bókinni að sjálfur Salvador
Dalí hefði ekki getað teiknað upp
svona súrrealískt ástand og þegar
rabarbarasultu ber á góma detta
mér alltaf Ríkisráðsfundir í hug,“
segir Össur Skarphéðinsson.
Súrrealískar pönnukökur
með rabarbara á Bessastöðum
Aðeins hálfu ári eftir að ein mesta átakastjórn lýðveldissögunnar yfirgefur stjórnarráðið rúin trausti þjóðarinnar skrifar
Össur Skarphéðinsson pólitískan þriller upp úr dagbókum sínum. Greinir frá átökum forseta og ráðherra í Ríkisráði.
PÓLITÍSKUR ÞRILLER Össur Skarphéðinsson alþingismaður segist ganga nærri sjálfum sér í nýrri bók sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Viðtalið við Össur er hægt að
sjá í þættinum Pólitíkin á
www.visir.is.
visir.is
31. janúar 2012 Ríkisráðsfundur á Bessastöðum, for-
setinn er ósáttur við stjórnarskrárfrumvarp ríkisstjórnar-
innar:
„Þetta er niðursallandi hirting. Ríkisstjórnin er bók-
staflega flengd. Tölunni lýkur forsetinn með því að segja
að í frumvarpinu felist m.a. að afnema ríkisráðið, sem
hann teldi „mjög vitlaust“. Því gæti svo farið að þetta
yrði síðasti ríkisráðsfundurinn sem nokkru sinni yrði
haldinn. Hann gæti því farið inn í sögubækurnar af þeim
sökum. Í kjölfarið leggur Ólafur Ragnar svo fram bókun
og í stöðunni varpa menn öndinni léttar. Miðað við
ræðuna er hún sakleysisleg. Þar varar hann við niður-
lagningu ríkisráðs og hvetur til að engar breytingar verði
gerðar á stjórnarskrá nema í sátt.
Þetta er langlengsta talan sem forseti hefur haldið á
þeim ríkisráðsfundum sem ég hef setið. Hún er greini-
lega flutt til að árétta það sem hann hafði áður sagt við
setningu Alþingis að hann myndi taka þátt í umræðu
um stjórnarskrármálin. Þetta er formleg tilkynning til
ríkisstjórnarinnar frá forseta lýðveldisins um að hann
ætli að berjast gegn þeim breytingum á stjórnarskránni
sem ríkisstjórn Íslands hefur lagt til á Alþingi og hann
sjálfur telur að forsætisráðherra líti á sem merkustu
arfleifð sína.
Forsætisráðherra svarar þessu án þess að nota stór
orð. Hún segir að forseti megi hafa þær skoðanir sem
hann vill, en hún telji hvorki rétt að bóka sína skoðun né
fara í efnislega umræðu við forseta á fundi ríkisráðs um
mál sem liggi fyrir Alþingi, sem samkvæmt stjórnarskrá
eigi eitt að fjalla um þau og afgreiða.
Engum mín megin borðs getur dulist af svipbrigðum
formanns VG hversu ósáttur hann er við ræðu for-
setans.“
➜ Dagbókarfærsla úr
bókinni Ár drekans
Heimir Már
Pétursson
hmp@stod2.is