Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 49

Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 49
 | FÓLK | 3HELGIN ■ SKEMMTUN OG UPPÁKOMA Degi hinna dauðu, eða Día de los muertos, verður fagnað í aðalsafni Borgarbókasafnsins við Tryggvagötu á morgun sunnudag milli klukkan 14 og 15.30. Día de los muertos er haldinn hátíðlegur á hverju ári í Mexíkó og öðrum spænsku- mælandi löndum en þá safnast fjölskylda og vinir saman til að gleðjast og minnast hinna látnu. HOLA, félag spænskumælandi á Íslandi, hefur umsjón með dagskránni. Boðið verður upp á skemmtun og uppákomu fyrir alla fjölskylduna þar sem áhersla verður á siði og venjur í Mexíkó og Perú. Día de los muertos er 1. nóvember og er hann tengdur allraheilagramessu eða allra- sálnamessu sem er 2. nóvember. DAGUR HINNA DAUÐU – DÍA DE LOS MUERTOS ingu. Þar voru um 20 manns; Arabar, Svíar, Pólverjar, Litháar, og annar ÍSLENDINGUR sem ég vissi ekki að yrði þarna. Honum krossbrá þegar ég ávarpaði hann á íslensku, enda ekki heyrt málið lengi. Hann reyndist heita Björn og hafði verið á ferðalagi í fjögur ár. Var á leið til Bahrain daginn eftir. Það var gaman að rekast á hann,“ segir Sindri. Einnig hafði hann hitt Íslendinga sem vinna hjá UNRAW, stofnun sem vinnur með palestínskum flóttamönnum og Stefaníu Khalifeh, ræðismann Íslands í Jórdaníu. MOSKUR OG KIRKJUR Í Amman eru fornar rómverskar minjar. Þar get ég nefnt risastórt vel varðveitt rómverskt úti- leikhús sem byggt var á 2. öld eftir Krist og borgarvirki frá svipuðum tíma. Mörg áhugaverð söfn er hægt að skoða, sum Dauðahafshandritin, en meðal þeirra eru elstu varðveittu hand- rit af sumum bókum Biblíunnar. Hér eru auðvitað risastórar og fallegar moskur og ótal margt fleira,“ útskýrir Sindri. „Hér eru líka margar kirkjur, ég hef séð kristna araba með tattúeraða krossa á líkamanum eða krossa hangandi í bílum sínum. Rétt hjá höfuðstöðvum Múslímska bræðralagsins er bókabúð bapt- ista. Hinum megin við götuna þar sem er stærsta moskan í borginni er risastór kirkja sem væri líklega næststærsta kirkja á Íslandi. Kristnin er sem sagt meira áberandi en ég hélt. Trúin er ríkjandi og ég hef verið með leigubílstjóra sem hlustaði á upp- lestur úr Kóraninum alla ferðina. Mér finnst áhugavert að sjá fólk stoppa við dagleg störf til að biðja, það setur teppi á gólfið og snýr sér til Mekka. Slíkt er meira áberandi í austurhluta Amman. Fyrst eftir að ég kom hingað vaknaði ég upp við þegar kallað var til bæna um fimmleytið þrátt fyrir að vera með lokaðan glugga og eyrnatappa.“ MIKIL LÍFSREYNSLA Þá kom mér mjög á óvart að upp- götva að á veitingahúsum í þess- um hluta borgarinnar borða karl- menn í sér sal en konur og börn í öðrum. Annars er maturinn góður, falafel, sháirma, hummus, brauð með ólífuolíu og kryddum, mikið af ostum, jógúrt, súrmjólk og fleira. Mjólkurvörur eru ólíkar okkar vörum heima. Ostarnir næstum fljótandi. Kjúklingur og lambakjöt er mikið borðað og ég hef oft fengið mér einhvers konar súpukjöt,“ segir Sindri. Þegar hann er spurður hvort þessi reynsla hafi breytt honum á einhvern hátt játar hann því. „Það er erfitt að útskýra það en mér líður eins og ég hafi öðlast tíu ára lífsreynslu. Ég hitti til dæmis mann sem barðist í Sýr- landi og sýndi mér skotsár á maga, og ég hef bæði séð sára fátækt og mikið ríkidæmi.“ ■ elin@365.is FORNAR MINJAR Margt áhugavert er að skoða í Amman, fornar minjar og merkileg söfn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.