Fréttablaðið - 02.11.2013, Síða 84
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 56
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Vissir þú að...
Brandarar
Hvenær byrjaðir þú að syngja
og spila? Ég hef verið að syngja
frá því að ég man eftir mér, en
byrjaði að taka tónlistina alvar-
lega þegar ég byrjaði að tromma
um sjö ára aldur. Svo byrjaði ég
að spila á gítar um ellefu ára
aldurinn og get spilað smá á flest
hljóðfæri.
Hver var fyrsta platan sem þú
keyptir? Ætli það hafi ekki verið
einhver rappplata sem systir mín
hlustaði mikið á, örugglega Snoop
Dogg eða eitthvað.
Hvers konar tónlist og hvaða
tónlistarfólk hlustar þú sjálfur
mest á? Ég hlusta mikið á popp,
rapp og R&B, Justin Timberlake,
Chris Brown, Kanye West, Jay-Z
og fleiri.
Hvaða áhugamál áttu þér fyrir
utan tónlistina? Ég er mikið
fyrir að vera með vinunum að
gera eitthvað skemmtilegt og ég
hef gaman af flestum íþróttum.
Annars er ég mest fyrir að vinna
í tónlist, hlusta á tónlist og semja
nýja tónlist.
Er erfitt að starfa sem tónlistar-
maður og vera í menntaskóla
um leið? Það getur verið mjög
erfitt en ef maður skipuleggur
tímann sinn vel og er duglegur þá
getur maður gert bæði í einu.
Hvað er skemmtilegast og leið-
inlegast að læra? Skemmtileg-
asta fagið er örugglega enska og
leiðinlegast er líklegast íslenska.
Hefurðu gefið eiginhandar-
áritanir? Nei, ég hef ekki gefið
neina eiginhandaáritun enn.
Hvaða aldurshóp er skemmtileg-
ast að spila fyrir? Í raun er bara
skemmtilegt að fá að spila fyrir
fólk, skiptir ekki máli hvað það er
gamalt heldur bara að það hafi
gaman af tónlistinni.
Áttu kærustu? Nei, í augnablik-
inu er ég einhleypur.
Áttu ráð fyrir krakka sem langar
til að verða tónlistarfólk? Bara
það að gefast ekki upp ef það er
erfitt að byrja. Það er lykilatriði
að hafa gaman af tónlistinni og
muna að það er ekkert fáránlegt
þegar kemur að tónlist, maður
verður að þora að gera nýja og
öðruvísi hluti.
Verður að þora
að gera nýja hluti
Steinar er átján ára gamall Verzlunarskólanemi sem hefur slegið í gegn með
fyrsta laginu sínu, Up. Hann hefur ekki enn gefi ð eiginhandaráritun.
STEINAR Tónlistarmanninum finnst gaman að spila tónlist fyrir alla aldurshópa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bragi Halldórsson
68
„Jæja félagar,“ sagði Kata. „Þið eruð svo góðir í stærðfræði er það ekki?“
sagði hún háðsk. „Þrautin er þessi,“ sagði hún og ræskti sig. „Raðið þessum
6 tölum inn í hringina svo að samanlagðar tölurnar á hverri hlið séu allar eins.“
Hún glotti enda viss um að hún gæti þetta. En svo sá hún smáa letrið neðst.
„Tölurnar geta verið fjórar, 9, 10, 11 eða 12.“ Nú var hún ekki lengur eins
viss um að hún gæti þetta. Róbert var alveg viss um að hann gæti þetta ekki
en Konráð beið ekki boðanna heldur byrjaði að raða tölunum inn í hringina.
Getur þú leyst þessa þraut og fundið allar fjórar tölurnar?
1981 var íslenska kvennalands-
liðið í knattspyrnu stofnað.
1982 tók liðið þátt í Evrópu-
keppni í fyrsta sinn.
1984 ákvað KSÍ að kvenna-
landsliðið hætti í Evrópu-
keppninni.
1987 var liðið lagt niður.
1993 var kvennalandsliðið
endurvakið.
1994 komst liðið í átta liða úrslit
Evrópukeppninnar.
1994 var Ásta B. Gunnlaugs-
dóttir valin knattspyrnu-
maður ársins.
2001 urðu tvær landsliðs-
stúlkurnar atvinnumenn
í Bandaríkjunum, Rakel
Ögmundsdóttir og Margrét
Ólafsdóttir.
2008 urðu 10 landsliðskonur
atvinnumenn.
Einu sinni var minkabú sem
minnkaði og minnkaði þangað til
að það var búið.
Einu sinni voru tvennar buxur
sem voru að fara yfir götu en þá
keyrði bíll ofan á aðrar buxurn-
ar. Þá sögðu hinar: „Þér var nær
buxur.“ Síðan fóru buxurnar á
spítala og pabbi buxnanna kom
og sagði: „Já, lífið er stutt, buxur.“
Eitt sinn var söngkennari sem
hafði engan nemanda hjá sér.
Strákur kom til hans með stóra
appelsínugula tösku og kennar-
inn sagði: „Nei voða fín taska,“
og byrjaði að kenna honum en
strákurinn var alltaf að segja: „Já,
en … já, en …“ „Ussuss, ekkert já
en!“ sagði kennarinn. Loksins var
tíminn búin og þá sagði strák-
urinn: „En ég var bara að rukka
fyrir blaðið!“
Ferðamaðurinn: „Heldurðu að
ég nái rútunni klukkan sex ef ég
fæ að hlaupa yfir túnið hjá þér?“
Bóndinn: „Já, áreiðanlega og
kannski nærðu rútunni klukkan
fimm ef nautið mitt kemur auga
á þig!“
2013 spilaði liðið í átta liða úrslitamóti EM.
2013 sigraði liðið Serbíu 2-1 í undankeppni heimsmeistaramótsins
sem haldið verður í Kanada 2015.
2014 verður næsti leikur Íslands í undankeppni HM þegar liðið spilar
gegn Ísrael 5. apríl.