Fréttablaðið - 02.11.2013, Qupperneq 88
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 60TÍMAMÓT
„Þetta er ekki alveg búið, Hæstirétt-
ur sendir bréf í dag og síðan þarf ég
að senda beiðni á ráðuneytið til að fá
útgefið leyfi, en forsetinn sagði: „Til
hamingju, hæstaréttarlögmaður,“ hérna
áðan svo þetta er komið í höfn,“ segir
Eva Hrönn himinsæl, nýkomin úr rétt-
arsalnum þar sem hún flutti sitt fjórða
prófmál fyrir Hæstarétti og lauk þar
með ferlinu að því að fá titilinn hæsta-
réttarlögmaður.
Eva Hrönn er fyrsti lögfræðingur-
inn sem útskrifaður er frá H.R. sem
hlýtur þennan titil en hún útskrifaðist
fyrir rúmum sex árum og hefur síðan
unnið ötullega að því að ná þessum
áfanga. Byrjaði að vinna á lögmanns-
stofu meðan hún var enn í skólanum og
hefur unnið sleitulaust síðan, fékk hér-
aðsdómslögmannsréttindi strax í des-
ember 2007, nokkrum mánuðum eftir að
hún útskrifaðist. Hún segir aldrei neitt
annað hafa komið til greina en að verða
lögfræðingur. „Ég tók þá ákvörðun
mjög snemma og ég held það sé engin
skýring á því. Ég byrjaði að stefna á
þetta áður en ég byrjaði í menntaskóla.
Þegar ég var á síðasta ári í Versló sá ég
að það var verið að stofna lagadeild við
Háskólann í Reykjavík og þá varð ekki
aftur snúið. Þangað vildi ég fara.“
Eva Hrönn segir enga lögfræðinga í
fjölskyldunni, hún hafi ekki horft mikið
á lögfræðiþætti í sjónvarpi, henni hafi
bara fundist lögfræðin eitthvað svo
ótrúlega spennandi fag. „Ég vissi svo
sem ekkert hvað lögfræði var áður en
ég byrjaði en eitthvað við starfið kitlaði
mig enda hef ég fundið mig rosalega vel
í því. Það hefur algjörlega staðið undir
væntingum.“
Eva Hrönn á tvö börn, þriggja og
fimm ára, og þarf auðvitað að púsla
saman einkalífi og starfsframa eins
og allar ungar konur, en henni finnst
það ekki mikið mál. Spurð hvort hún sé
spútnikk í faginu fer hún undan í flæm-
ingi og bendir á að það verði aðrir að
dæma um, hún sé bara að láta draum
sinn rætast. Nú hefur það tekist og hver
er þá næsti draumur? Hæstaréttardóm-
ari? „Nei, ég held ég hafi engan áhuga á
því að verða dómari. Mér finnst miklu
skemmtilegra að vera í hita leiksins og
fá að takast á við mál í dómsalnum held-
ur en að sitja bara og hlusta. Það heillar
mig ekki. Ég er hins vegar búin að
stefna að þessu markmiði svo lengi að
ég er ekki viss um að ég sé búin að setja
mér nýtt. Það er ekkert hærra skref í
lögmennsku heldur en þetta þannig að
ég veit ekki hvað það ætti að vera. Ég
ætla bara að njóta þess að vera búin að
klára þennan áfanga áður en ég fer að
pæla í framhaldinu.“
fridrikab@frettabladid.is
Lögfræðin hefur staðið
undir væntingum
Eva Hrönn Jónsdóttir varð í gær fyrst lögfræðinga útskrifaðra frá H.R. til að fá titilinn
hæsta réttarlögmaður. Hún hefur unnið ötullega að því markmiði síðan hún útskrifaðist
fyrir rúmum sex árum og segir aldrei annað hafa komið til greina en að verða lögfræðingur.
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR Eva Hrönn var himinsæl með áfangann þegar hún lauk málflutningi sínum fyrir Hæstarétti í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ástkær móðir mín,
systir, mágkona og föðursystir,
SIGRÍÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR (SÍSÍ)
frá Patreksfirði,
til heimilis í Skipalóni 4, Hafnarfirði,
lést á Landspítala Fossvogi þann
26. október síðastliðinn. Útför fer
fram frá Háteigskirkju mánudaginn 4. nóvember kl. 15.00.
Hanna Kristín Steindórsdóttir
Gunnar Friðriksson
Hulda Friðþjófsdóttir
Jóhanna Jóhannesdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
Gerður Gunnarsdóttir
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA RAGNA JÓNSDÓTTIR
Kirkjuvegi 11, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þriðjudaginn 22. október 2013. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Jón Sævar Sigurðsson Ólöf Hafdís Gunnarsdóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir Magnús Kristinsson
Anna Sigga Húnadóttir Emil Helgi Valsson
Kristinn Sævar Magnússon
Sigurður Sindri Magnússon
Mikael Orri Emilsson
Tómas Aron Emilsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
ÓLAFS SIEMSEN
lyfjafræðings
Svöluhrauni 12, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á göngudeild
krabbameinslækninga og Heimahlynningar Landspítalans.
Auður Snorradóttir
Guðmundur Siemsen Hrund Ottósdóttir
Snorri Siemsen Jón Kjartan Ágústsson
Rósa Siemsen Jóhann David Barðason
Anna Sigríður Siemsen
og barnabörn.
Ástkær bróðir okkar,
KRISTJÁN FRIÐRIK EIRÍKSSON
sem lést á Sundabúðum, Vopnafirði, 28. október
verður jarðsunginn frá Skeggjastaðarkirkju,
þriðjudaginn 5. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórhallur Eiríksson og Guðþór Eiríksson
Alúðarþakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur vinarhug og
heiðruðu minningu okkar ástkæru
KRISTRÚNAR O. STEPHENSEN
kennara,
Skipalóni 24 í Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fá læknar og starfsólkið
á deild 11G á Landspítalanum, starfsfólk Hjúkrunarþjónustu
Karitas og líknardeildar í Kópavogi fyrir góða umönnun.
Einnig sérstakar þakkir til allra þeirra sem lögðu okkur lið við
útför hennar.
Guðlaugur Sigurðsson
Soffía Kristbjörnsdóttir
Soffía Dögg Halldórsdóttir Daði Friðriksson
Halla Dóra Halldórsdóttir Bjarni Adolfsson
barnabörn, systkini og aðrir aðstandendur.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Ástkær móðir okkar,
GUÐRÚN STEINGRÍMSDÓTTIR
leikskólastjóri,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund
þann 31. október.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Dóra Björgvinsdóttir
Ingi Steinn Björgvinsson
Dagný Björgvinsdóttir
Bryndís Björgvinsdóttir
Elsku besta mamma mín,
tengdamamma og amma okkar,
ANNA S. ÁRNADÓTTIR
Hofakri 5, Garðabæ,
lést á Landspítala Landakoti
miðvikudaginn 30. október.
Sigríður Anna Ásgeirsdóttir Atli B. Guðmundsson
Hugi Snær Hlynsson
Harpa Lind Atladóttir