Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 100

Fréttablaðið - 02.11.2013, Page 100
2. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 72 LAUGARDAGUR Opnanir 14.00 Erla María Árnadóttir opnar sýningu sína Traustur vinur í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi. Allir velkomnir. 14.00 Ljósmyndasýning Daníels Magnússonar verður opnuð í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Sýningin stendur til 12. janú- ar 2014. 15.00 Síðasta sýningaropnun ársins í Sjón- listamiðstöð- inni er í dag. Guðbjörg Ringsted og Rannveig Helgadóttir opna sýn- inguna Mand- ala, Munstur í Ketilhúsinu. Sjón- listamiðstöðin er við Kaupvangsstræti 12 á Akureyri. 15.00 Tvær sýningar verða opnaðar í Anarkíu listasal, Hamraborg 3, þær heita Elska ég mig samt? og Mar. 15.00 Katrín Elvarsdóttir opnar ljós- myndasýninguna Horfið sumar í Lista- safni ASÍ. Sýningarstjórn er í höndum Hörpu Árnadóttur. 17.00 Sýningin Fljúgandi hundar verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2. Þar sýnir Anna Þóra Karlsdóttir myndverk unnin úr ull. Sýningin stendur til 30. nóvember. Söfn 16.00 Inga Jónsdóttir safnstjóri leið beinir í listasmiðju fyrir börn í Listasafni Árnesinga. Leiðsögn um sýningarnar í fylgd Ingu er kl. 15 og síðan taka við ljúfir tónar sem Hörður Friðþjófs- son gítarleikari og Erla Kristín söngkona laða fram. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. Tónlist 16.00 Léttsveit Reykjavíkur, samanstendur af 130 söngkonum. Sveitin heldur tón- leika í Háskólabíói í dag. Bækur 14.00 Kynning á bókinni Sjúkdómurinn er liður í 25 ára afmælishátíð HIV Ísland sem haldin er í Ráðhúsi Reykja- víkur. Draumey Aradóttir þýðandi les upp úr bókinni. Karl Olgeirsson og Una Stefánsdóttir sjá um tónlistaratriði. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is. Opnanir 16.00 Söngskemmtun fer fram í Hann- esarholti á milli klukkan 16 og 17. Þór- unn Björnsdóttir kórstjóri mun leiða sönginn, Karl Olgeirsson spilar undir á píanó og Jón Rafnsson á bassa. Textar munu birtast á skjá. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. Borðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins og upplagt að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir. Tónlist 17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og kynnir lög af hljómplötum á Obladíoblada, Frakkastíg 8. 20.00 Bubbi Morthens syngur í Árbæjarkirkju. Kvenfélag Árbæjarsóknar verður með pönnukökusölu að lokinni messu til skyrktar kaupum á línuhraðli fyrir Landspítalann. Aðgangur ókeypis. 20.00 Tónleikar með Elektra Ensemble og Ingibjörgu fara fram á Kjarvals- stöðum. Miðaverð er 2.000 krónur. 20.00 Gréta Hergils sópransöngkona heldur Ave Maríu-tónleika vegna allra heilagra messu. Tónleikarnir fara fram í Bústaðakirkju. Með Grétu leika Jónas Þórir á píanó, Matthías Stefánsson á fiðlu auk fleiri kunnra söngvara. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. Söfn 14.00 Boðið er upp á ókeypis barna- leiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Safn- kennarar munu ganga með börnunum gegnum grunnsýningu Þjóðminja- safnsins, Þjóð verður til, menning og samfélag í 1200 ár. 14.00 Listasafn Reykjavíkur býður börnum og foreldrum upp á örsmiðju í tengslum við sýninguna Alexander Rodchenko, Bylting í ljósmyndun sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Örsmiðjan er undir leiðsögn mynd- listarkonunnar Hildigunnar Birgisdóttur og stendur frá klukkan 14 til 16. 14.00 Almenningi boðið að koma með eigin gripi í greiningu til sérfræðinga Þjóðminjasafnsins á milli klukkan 14 og 16. Kvikmyndir 15.00 Kvikmyndin Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum frá 1930 sýnd í MÍR, Hverfisgötu 105. Enska (tal án neðanmálstexta). Aðgangur ókeypis. Markaðir 11.00 Markaður verður haldinn í félags- heimili Sjálfsbjargar Hátúni 12 á milli klukkan 11 og 16. Aðgengi að húsinu er gott og eru allir hjartanlega velkomnir. TÓNLIST ★★★★ ★ Komdu til mín svarta systir Mammút Eftir fimm ára bið sendir Mammút frá sér eina af plötum ársins. - fb TÓNLEIKAR ★★★★ ★ Sinfóníuhljómsveit Færeyja Flutti verk eftir Tsjajkovskí, Elgar og Rasmussen. Einleikari: Pavel Raykerus. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson Safaríkur hljómsveitarleikur, afburða píanóleikari. - js ★★★★ ★ Emilíana Torrini Iceland Airwaves-hátíðin Harpa– Silfurberg Heillandi og einlæg frammistaða sem hitti beint í mark. - jjk ★★★★ ★ Mammút Iceland Airwaves-hátíðin Harpa– Norðurljós Frábærir tónleikar. Mammút er eins og vel smurð vél. - ofr ★★★ ★★ Leaves Iceland Airwaves-hátíðin Harpa– Silfurberg Kraftmikil byrjun með slakari miðju. - ofr BÆKUR ★★★★★ Mánasteinn– Drengurinn sem aldrei var til Sjón Meistaralega fléttuð saga með ógleymanlegum myndum, mögnuðum stíl og einstakri söguhetju. Lestrarupplifun ársins. - fsb ★★★ ★★ Alla mína stelpuspilatíð Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir Áhugaverð ævisaga, uppfull af vanga- veltum um samfélag og sögu sem oft hitta í mark. - jyj LEIKHÚS ★★ ★★★ Saumur eftir Anthony Neilson Leikfélag Reykjavíkur á Litla sviðinu Leikstjórn og þýðing: Ríkharður Hjart- ar Magnússon. Þó að ætlun höfundar sé eflaust að sýna hvernig klámvæðingin getur eitrað hugmyndir og samlíf ungs fólks, er veru- leikamynd verksins of einföld og grunn til að snerta við áhorfandanum. - jvj „Hugmyndin á bak við Listafé- lagið er að auðvelda listamönn- um að koma fram með því að lána þeim kirkjuna endurgjalds- laust. Þannig bera þeir ekki þann kostnað af tónleikahaldinu og gerir það ungu tónlistarfólki mun auðveldara að koma fram en ella,“ segir Kári Allansson, listrænn stjórnandi Listafélags Háteigskirkju, sem stendur fyrir um hundrað tónleikum í kirkj- unni á ári. Markmið Listafélags Háteigs- kirkju er að standa fyrir grósku- miklu tónlistarstarfi í Háteigs- kirkju, bæði með tónleikahaldi og við helgihald safnaðarins. Þannig nær Háteigskirkja því samfélags- lega markmiði sínu að auðvelda tónlistarfólki að koma fram og jafnframt að auðvelda tónleika- gestum að sækja fleiri tónleika með sem ódýrustum hætti. „Tónleikaröðin Á ljúfum nótum í Háteigskirkju hefur verið alla föstudaga í hádeginu og verður áfram en þar er listrænn stjórn- andi Lilja Eggertsdóttir. Mikil eftirspurn hefur verið meðal tón- listarfólks eftir því að koma þar fram, alveg síðan tónleikaröðin hóf göngu sína fyrir rúmu einu og hálfu ári og erum við í raun að svara þeirri eftirspurn,“ útskýr- ir Karl. Lengri tónleikar eru á tónleika- dagskránni, einkum á fimmtu- dagskvöldum og um helgar á ýmsum tímum. Það er því ljóst að allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. - glp FLEIRI TÓNLEIKAR Kári Allans- son, listrænn stjórnandi Listafélags Háteigskirkju, stendur fyrir auknu tónlistarlífi í Háteigskirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Í boði er ótrúlega flott hand- verk en það eru um 350 konur í Hringnum sem búa til handverk í sjálfboðavinnu árið um kring fyrir svona uppákomur,“ segir Rakel Garðarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Vesturports, en hún er félagi í Kvenfélaginu Hringnum. Á morgun fer fram Jólabas- ar á vegum Hringsins kl. 13 á Grand Hóteli. Þar verður til sölu ýmis varningur, jólakort félagsins, útsaumur, kökur, handverk og jólaskraut. Ágóði sölunnar rennur til styrktar börnum í landinu en Rakel segir allar konur félagsins leggja sitt af mörkum í sjálfboðavinnu. Hringurinn var stofnaður árið 1904 og fagnar 110 ára afmæli á næsta ári. Markmið félagsins hefur verið að vinna að mannúðarmálum en upp- bygging Barnaspítala Hrings- ins hefur verið aðalverkefni félagsins um áratugaskeið. „Það er alltaf þörf á nýjum tækjum eða aðstoð fyrir aðstandendur svo að við hvetjum alla til að koma á jólabasarinn, gera góð kaup og styrkja gott málefni í leiðinni því börnin í landinu þurfa á þessu að halda,“ segir Rakel að lokum. Hringurinn heldur jólabasar Rakel Garðarsdóttir úr Kvenfélaginu Hringnum hvetur fólk til að kaupa handverk. DÓMAR 27.10.2012 ➜ 2.11.2012 ➜ Friðrika Hjördís Geirsdóttir, Hrefna Rósa Sætran og Hrefna Björk Sverrisdóttir eru einnig Hringskonur sem leggja sitt af mörkum í Kvenfélaginu Hringnum. 2. NÓVEMBER SUNNUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR? HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 3. NÓVEMBER HREFNA RÓSA SÆTRAN FRIÐRIKA HJÖRDÍS GEIRSDÓTTIR HRINGSKONA Rakel Garðarsdóttir leggur börnunum lið ásamt rúmlega 300 konum. Yfi r hundrað tónleikar Í Háteigskirkju hefur nýtt listafélag tekið til starfa. TOPPSKÓNUM ECCO GOLFDAGAR Í 40% AFSLÁTTUR af Ecco golfskóm alla helgina Láttu þetta ekki fram hjá þér fara, týpur frá sumrinu 2012-2013. Takmarkað magn TAKTU VEL Á MÓTI OKKUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.