Fréttablaðið - 02.11.2013, Qupperneq 113
LAUGARDAGUR 2. nóvember 2013 | SPORT | 85
Í ÞJÁLFUN Brynjar er nýr aðstoðar-
þjálfari Stjörnunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Kristján Finnbogason
er genginn til liðs við FH og mun
spila með liðinu næsta sumar.
Daði Lárusson lagði hanskana
á hilluna eftir tímabilið og því
vantaði FH-inga nýjan vara-
markvörð.
Kristján er gríðarlega reyndur
og var á mála hjá Fylki síðast liðin
tvö tímabil en leikmaðurinn er
42 ára og var stóran hluta af ferli
sínum í KR.
Róbert Örn Óskarsson verður
áfram aðalmarkvörður liðsins.
„Þá vantaði varamarkvörð eftir
að Daði [Guðmundsson] lagði
hanskana á hilluna og ég var til í
þetta verkefni,“ segir Kristján.
„Mig langaði bara að koma
inn í þetta og aðstoða eins og ég
get. Skrokkurinn hefur vissulega
verið betri og maður er farinn
að eldast en það er bara gaman
að vera partur af hóp og æfa
reglulega. Vonandi þarf maður
ekki að leysa Robba [Róbert Örn
Óskarsson] mikið af, hann er frá-
bær markvörður og ég er flottur
varamarkvörður,“ sagði Kristján
léttur. sáp
Kristján neitar
að hætta
ELSTUR Kristján Finnbogason verður á
bekknum hjá FH. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Toppmenn tveggja
kynslóða í körfuboltanum í Njarð-
vík fóru fyrir sínu liði í bikar-
sigri á KR í Ljónagryfjunni í
gær. Njarðvík vann 91-87 endur-
komusigur á KR í 32 liða úrslitum
Power ade-bikarsins.
Logi Gunnarsson kom sínum
mönnum aftur inn í leikinn með
því að skora 16 stig á fyrstu 12
mínútum seinni hálfleiks og Elvar
Már Friðriksson tryggði þeim sig-
urinn með því að skora sjö síðustu
stig leiksins. Stærsta karfan var
þó þriggja stiga karfa 59 sekúnd-
um fyrir leikslok þar sem Elvar
jafnaði metin í 87-87 og fékk síðan
víti að auki sem hann nýtti. KR
náði ekki forystunni í leiknum
eftir það.
KR-ingar virtust vera með leik-
inn í sínum höndum í hálfleik
enda með þrettán stiga forskot,
52-39. Nigel Moore og Logi fóru á
kostum í þriðja leikhlutanum sem
Njarðvík vann 31-19 og leikurinn
var síðan æsispennandi í lokaleik-
hlutanum.
Njarðvíkingar fóru brosandi
heim, ólíkt því sem var á mánu-
dagskvöldið þegar þeir töpuðu
fyrir nágrönnum sínum í Kefla-
vík á þriggja stiga körfu sekúndu
fyrir leikslok.
Logi (26 stig), Nigel Moore (26
stig, 14 fráköst) og Elvar (22 stig,
10 stoðsendingar) áttu allir frá-
bæran leik.
Hjá KR voru Darri Hilmarsson
(24 stig á 28 mínútum) og Helgi
Már Magnússon (21 stig) atkvæða-
mestir en Pavel Ermonlinski vant-
aði bara eitt stig í þrennuna (9 stig,
13 stoðsendingar, 11 fráköst).
- óój
Logi og Elvar í aðalhlutverkum
Frábær endurkoma Njarðvíkurliðsins í seinni hálfl eik í bikarsigri á KR í gær
FLOTTIR SAMAN Logi Gunnarsson og Elvar Már Friðriksson. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn
Brynjar Björn Gunnarsson hefur
ákveðið að yfirgefa KR og taka
að sér hlutverk aðstoðarþjálfara
hjá Stjörnunni.
Rúnar Páll Sigmundsson,
fyrrum aðstoðarþjálfari Stjörn-
unnar, tók við sem aðalþjálfari á
dögunum.
„Brynjar Björn verður í þjálf-
arateyminu næstu þrjú árin,“
sagði Almar Guðmundsson,
formaður knattspyrnudeildar
Stjörnunnar, við Fótbolta.net í
gær.
„Hann verður í teyminu hans
Rúnars, ásamt Henrik Bödker og
mun hafa yfirumsjón með þjálfun
2. flokks karla og þeirra sem eru
á landamærum þess að komast í
meistaraflokkinn.“
- sáp
Farinn frá KR
og í þjálfun