Fréttablaðið - 23.11.2013, Page 42
KYNNING − AUGLÝSINGJólabakstur LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmaður auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, s. 512-5432, sverrirbirgir@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Kókosbollur
Allir eru hrifnir af kókosbollum
eða frönskum kossi, eins og þessar
bollur eru stundum kallaðar. Þær
eru líka fallegar til gjafa.
4 eggjahvítur
300 g sykur
5 matarlímsplötur
Súkkulaðiglassúr
150 g gott súkkulaði
25 g kókosfita
2 dl kókosmjöl
Þeytið eggjahvítur þar til þær verða stíf-
ar. Haldið áfram að þeyta meðan sykr-
inum er bætt út í þar til blandan verður
jöfn og falleg.
Setjið matarlím í kalt vatn í fimm mín-
útur. Vindið blöðin og setjið þau síðan
í ½ dl af sjóðandi heitu vatni og látið
bráðna vel. Hellið matarlíminu í mar-
engsinn og hrærið stöðugt í á meðan
svo engir kekkir komi í deigið. Það þarf
að hafa hraðar hendur við þetta.
Fyllið sprautupoka og búið til stóra
toppa, til dæmis í múffuform. Einnig má
setja blönduna á þunnt kex. Ef ekki er til
sprautupoki má nota tvær skeiðar. Setjið
í kæliskáp þar til blandan stífnar.
Bræðið súkkulaði og kókosfitu saman
yfir vatnsbaði. Kælið blönduna stutta
stund en þekið síðan kókósbolluna með
súkkulaðinu. Dreifið loks kókósmjöli yfir
ef vill.
Blaut daim-kaka
Þessi kaka líkist „brownies“ eða
súkkulaðiköku en daim-súkkulaðið
gerir hana sérlega góða. Alveg frá-
bær með kaffinu á aðventunni.
500 g smjör
250 g gott súkkulaði
8 egg
7 dl sykur
5½ dl hveiti
1 tsk. salt
100 g valhnetur, smátt skornar
2 stykki daim-súkkulaði, smátt skor-
in
Bræðið smjör og súkkulaði. Þeytið egg
og sykur vel saman en bætið síðan
öðrum hráefnum saman við. Hellið
blöndunni í form 25x35 cm sem hefur
verið klætt með bökunar pappír.
Bakið kökuna
við 180°C í
um það bil
40 mínút-
ur. Kælið.
kakan á að
vera frekar
blaut.
Möndlustangir
Möndlustangir voru oft á borðum
hér áður fyrr. Síróp og kanill gera
bragðið jólalegt.
150 g smjör
200 g sykur
2 eggjarauður
1 msk. ljóst síróp
½ tsk. kanill
1 tsk. vanillusykur
1 tsk. matarsódi
300 g hveiti
Egg til að pensla. Sykur og hakkaðar
möndlur til skreytingar.
Hrærið smjör og sykur þar til blandan
verður létt og ljós. Setjið síðan annað
hráefni saman við.
Hnoðið deigið vel og skiptið því síðan í
sex bita. Búið til pylsulengjur úr bitunum
og leggið á bökunarplötu, þrýst-
ið fingrum létt ofan á. Pensl-
ið með eggi, dreifið sykri og
möndlum yfir. Bakið ofarlega
í ofni við 175°C í 10-12 mín-
útur. Skerið stangirnar út á
meðan deigið er heitt og kælið.
Dýfa má kökunum í súkkulaði og nota
hnetur í staðinn fyrir möndlur.
Ljúffengt bakkelsi
með kaffinu
Jólabaksturinn er líklegast byrjaður hjá einhverjum. Aðrir byrja ekki fyrr en á
aðventu. Stundum er bannað að borða kökurnar fyrr en á jólum en margir
vilja hafa þær á borðum allan desember. Hvernig væri að byrja aðventuna með
því að gera kókosbollur, daim-súkkulaðiköku eða gamaldags möndlustangir?
Hægt er að breyta möndlustönginni með
því að setja súkkulaði og hnetur á hana.
Blaut daim-kaka.
Franskur koss eða kókosbolla. Eftirlæti
sælkerans.
Jólabaksturinn er skemmtilegur.