Fréttablaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 98
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 66
„Hringurinn er frábært félag. Ég er
mjög stolt af því að fá að taka þátt í starf-
seminni og málefnið er alltaf frábært.
Það gefur manni svo mikið að geta hjálp-
að til á þennan hátt,“ segir Hrefna Sætr-
an, matreiðslumeistari og Hringskona.
Hringurinn er kvenfélag, sem var stofn-
að árið 1904. Félagið hefur að markmiði
að vinna að líknar- og mannúðarmálum,
sérstaklega í þágu barna. Aðalverkefni
félagsins um áratugaskeið hefur verið
uppbygging Barnaspítala Hringsins.
„Jólaballið er ein okkar stærsta fjáröfl-
un og það þarf margar hendur og hausa
til að halda svona stórt ball. Það þarf að
baka, safna vinningum fyrir eitt flott-
asta happdrætti ársins, fá skemmtikrafta
til að halda uppi fjörinu og svo margt
fleira,“ segir Hrefna. „Við erum allt árið
að undirbúa þetta jólaball og er það ein
glæsilegasta fjölskylduskemmtun árs-
ins,“ bætir hún við, en í félaginu eru nú
335 konur á öllum aldri.
„Það eru margar eldri konur í
Hringnum sem hafa verið í fleiri tugi
ára og þær baka alltaf sömu góðu
kökurnar. Ekkert svona stevíuspelt
og hráfæði heldur alvöru kökur. Ég
sjálf geri svona jólaðar „rice krispís“
kökur, uppskrift sem ég fann upp sjálf.
Mér finnst þær æðislega góðar og eru
þær orðnar partur af mínum jólaund-
irbúningi. Það er hægt að pressa þær
í mót, kæla þær og svo skera þær í
kubba. Það er sniðugt að skera þær í
litla kubba og bera fram sem konfekt
með kaffinu. Þær eru ávanabindandi
þessar kökur,“ heldur Hrefna áfram.
Þessar kökur og fleiri sortir er hægt
að fá á Jólakaffi Hringsins sem hald-
ið verður 1. desember næstkomandi á
Broadway klukkan 13.00. Allir sem taka
þátt gefa framlag sitt og ágóðinn renn-
ur óskiptur í Barnaspítalasjóð Hrings-
ins. - ósk
Ekki hráfæði né stevíuspelt
Jólakaffi Hringsins er haldið 1. desember en ágóðinn rennur til Barnaspítala Hringsins.
- 200 g súkkulaði
- 8 msk. síróp
- 100 g ósalt smjör
- 1 msk. kanill
- 1 tsk. negull
- 1 stk. vanillustöng (má nota korn eða
dropa ef þú átt ekki stöng)
- Rice krisípís morgunkorn
Setjið súkkulaðið í skál og bræðið
í vatnsbaði. Skerið smjörið í litla
kubba og bætið út í ásamt sírópinu.
Bætið einnig kryddunum út í á
þessu stigi. Leyfið öllu að bráðna vel
saman. Gott er að hafa löginn frekar
heitan því þannig dreifist hann betur
á rice krispísið. Setjið rice krispís
út í skálina og blandið vel saman.
Ef þú vilt hafa kökurnar með miklu
gumsi þá seturðu minna rice krispís
en meira ef þú vilt hafa þær í þurrari
kantinum. Svo skellirðu öllu í mót
og pressar vel niður með höndunum
eða spaða. Lætur kólna í ísskáp og
skerið svo í bita við hæfi. Meira gums
og minni bitar gætu orðið fyrirtaks
jólakonfekt!
„Jólaðar Rice Krispís“
eftir uppskrift Hrefnu Sætran
Bókamessa í Bókmenntaborg
verður haldin í þriðja sinn nú um
helgina. Messan verður sem fyrr
í Ráðhúsi Reykjavíkur og verður
opið frá tólf til sex báða dagana.
Útgefendur munu sýna nýjar
bækur auk þess sem boðið verður
upp á fjölbreytta bókmennta-
dagskrá. Meðal annars verður í
boði að stíga inn í ævintýri með
Skoppu og Skrítlu og æfa sig á
að skrifa texta eftir handriti úr
fórum Árna Magnússonar. - bá
Bókamessa
í Ráðhúsinu
RÁÐHÚSIÐ Bókamessan um helgina
verður sú þriðja frá upphafi
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA