Fréttablaðið - 26.11.2013, Page 2

Fréttablaðið - 26.11.2013, Page 2
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Hlín, ertu að synda á móti straumnum? „Já, ég er svoddan straumönd.“ Hlín Agnarsdóttir leikstjóri hefur ekki fengið leikrit sitt Oní uppúr tekið til sýninga. Verkið gerist í kvennaklefa í sundlaug. NEYTENDUR Engar reglur hér á landi skylda upprunamerkingar á kjöti, öðru en nautgripakjöti. Um áramótin 2014/2015 mun reglu- gerð þó taka gildi hér á landi sem segir til um að skylt verði að upprunamerkja ferskt og fryst svínakjöt, kindakjöt, geitakjöt og alifuglakjöt. Einnig verður skylt að merkja uppruna aðalhráefnis í vöru ef uppruni þess er annar en uppruni vörunnar. Ef til dæmis merking á kjötbollum segir Ísland, en kjötið er erlent, verður að merkja hver uppruni kjötsins er. Þetta kemur í frétt á vef Matvælastofnunar. - skó Reglur um uppruna kjöts: Skylt verður að upprunamerkja SLÓVAKÍA Hægri þjóðernissinninn Marian Kotleba sigraði í kosning- um til héraðsstjóra Banska Byst- rica í Slóvakíu í gær. Honum hafði ekki verið spáð sigri, en Kotleba er leiðtogi flokks sem heitir Okkar Slóvakía og hefur verið nefndur nýnasista- flokkur. Hann hefur áður skipulagt mótmælagöngur gegn minnihluta Rómafólks í Slóvakíu og var áður fyrr leiðtogi öfgasamtaka, sem bönnuð hafa verið. - gb Leiðtogi þjóðernissinna: Kotleba vann fylkisstjórakjör SPURNING DAGSINS Leikföng Barnaherbergið olatagardur.is / Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin við Faxafen) / Sími: 511 3060 Opið: mán.–fös. 11.00–18.00 og laugardaga 11.00–16.00 Skapandi jól í Ólátagarði Föndur Púsl PIPA R \TBW A • SÍA • 133324 Spil NÁTTÚRA Hafrannsóknastofnun setti niður sérstakan búnað í Kol- grafafirði í gær sem spilar upp- tökur af háhyrningum við síldar- át. Með þessu freista menn þess að fæla síldina út úr firðinum. Vökt- un í innri hluta fjarðarins hefur verið aukin til muna. Smábátar mega veiða innan brúar enn um sinn. Hópur ráðuneytisstjóra fundaði í gær til að fara yfir ástandið í Kolgrafafirði. Meðal þess sem þar var rætt var möguleiki á að rjúfa þverun fjarðarins og opna hana frekar í því skyni að auka sjóflæði og bæta súrefnisstöðu. Ljóst er að slík framkvæmd mun taka nokkr- ar vikur og óvíst er hvort hún hefði tilætluð áhrif. Hafrannsóknastofnun og Vega- gerðin hafa unnið að rannsókn- um og mati á þessum möguleika í nokkra mánuði og munu senda greinargerð um niðurstöður sínar á næstu dögum. Komið hefur verið fyrir net- tengdum búnaði, þar til gerðri bauju, sem gefur stöðugar upp- lýsingar um súrefnismettun. Með þessu móti má sjá strax ef hættu- ástand skapast. Eins var komið fyrir fælibúnaði í gær. Þorsteinn Sigurðsson, sviðs- stjóri á Hafrannsóknastofnun, segir að reynt verði að fæla síld- ina burt með hljóðum frá háhyrn- ingum við síldarát. Þetta sé þekkt aðgerð, sem vert sé að láta reyna á nú. Hvað varðar súrefnismettun í firðinum þá var hún 70-80% á sunnudag sem er langt frá því að vera krítískt ástand. „Þegar síldin hefur verið að drepast hefur súr- efnismettunin farið niður í 20%,“ segir Þorsteinn og bætir við að samhliða auknum vindi í firðin- um í gær aukist súrefnismettunin. Það er því ekki hætta á stór- felldum síldardauða á allra næstu dögum, segir í tilkynningu eftir fund ráðuneytisstjóra í gær. Þekkt er að samspil nokkurra þátta þarf að koma til; þéttleiki síldarinnar og stillt veðurfar, sem orsakar verulegt fall í súrefnismettun eins og varð í fyrra. Hafrannsóknastofnun mun fara og mæla magn síldar í Kolgrafa- firði, en það verður ekki gert fyrr en veðuraðstæður verða ákjósan- legar. Eins og sagt hefur verið frá hugðust heimamenn koma upp löndunaraðstöðu í Kolgrafafirði. Fréttablaðinu skilst að hætt hafi verið við þessi áform. Eins kom fram á fundinum að veiðar smábáta verða leyfðar áfram, en á fundinum lýstu menn yfir áhyggjum af öryggismálum vegna veiðanna. svavar@frettabladid.is Síldarfælan komin niður í Kolgrafafjörð Hljóð frá háhyrningum að éta síld verða spiluð í Kolgrafafirði til að freista þess að reka síldina út. Veiðar smábáta verða leyfðar áfram. Fylgst er stöðugt með súr- efnismettun í firðinum. Hafró mælir stærð síldartorfunnar þar inni á næstunni. HÁHYRNINGAR Látið verður reyna á fælingarmátt háhyrninganna til að reka síld út úr Kolgrafafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR Þegar síldin hefur verið að drepast hefur súrefnismett- unin farið niður í 20%. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun SAMGÖNGUR Sveitarstjórn Mýrdals- hrepps harmar ákvörðun Vegagerð- arinnar um að taka veg sem liggur inn í Heiðardal og að Heiðarvatni af vegaskrá. „Þetta er svæði sem fólk fer mikið um,“ segir Ásgeir Magn- ússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Heiðarvatn er stærsta veiðivatn í Mýrdalshreppi, þar er góð silungs- veiði og úr því rennur laxveiðiperl- an Vatnsá. Ásgeir segir að síðustu ábúendurnir í dalnum, á Litlu-Heiði, hafi flutt lögheimili sitt niður í Vík í fyrrahaust. Þar með uppfylli vegur- inn ekki skilyrði til að teljast hér- aðsvegur sem lagður er að heimil- um manna. „En síðan eru tengivegir Vega- gerðarinnar sem liggja að stöðum sem teljast merkilegir. Þetta er til dæmis vegurinn út í Dyrhólaey og að Sólheimajökli. Þannig viljum við fá Vegagerðina til að skilgreina veginn inn í Heiðardal,“ segir Ásgeir sem kveður umræddan veg vera um þriggja kílómetra langan. Heiðardalur er í eigu Svisslend- ingsins Rudolphs Lamprecht. - gar Sveitarstjórn Mýrdalshrepps ósátt við ákvörðun Vegagerðarinnar: Heiðarvegur verði áfram á skrá VEGVÍSIR Í HEIÐARDAL Eftir að vegur- inn var tekinn af vegaskrá þurfa land- eigendur að annast viðhald hans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNTAMÁL Nemendur Menntaskólans í Reykja- vík gengu fylktu liði að menntamálaráðuneytinu í gærdag og afhentu menntamálaráðherra undir- skriftalista þar sem aðstöðumun skólans gagnvart öðrum framhaldsskólum er mótmælt. Í yfirlýsingu þeirra sagði að framlög ríkisins til Menntaskólans í Reykjavík væru mun lægri en til sambærilegra framhaldsskóla og var þess kraf- ist að munurinn yrði leiðréttur í fjárlögum ársins 2014. Menntamálaráðherra tók við undirskrifta- listanum og fundaði í kjölfarið með nemendafélög- um skólans. Birna Ketilsdóttir, inspector scholae í MR, telur að rúmlega fimm hundruð nemendur hafi mætt í menntamálaráðuneytið í hádegishléi skólans í gær. Þá hafi nærri allir nemendur skólans skrifað undir yfirlýsinguna, eða tæplega átta hundruð manns. Á fundi nemendafélaganna með ráðherra voru málefni skólans rædd, „Ráðherra útskýrði að skól- anum væri ekki mismunað. Notað sé sama reikni- líkan fyrir alla skóla, en í því séu breytur sem reynist óheppilegar fyrir MR,“ segir Birna. „Við komum fram okkar skoðun á málinu og ráð- herrann sagðist ætla að fara betur yfir þetta. Bolt- inn er því hjá þeim núna,“ segir hún. Birna kveðst stolt af samnemendum sínum sem hafi sýnt mik- inn baráttuhug. - eb Nemendur í MR krefja menntamálaráðherra um aukin framlög til skólans: Hundruð MR-inga á fund ráðherra FUNDUÐU Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra fundaði með fulltrúum nemenda Menntaskólans í Reykjavík. FALKLANDSEYJAR, AP Jarðskjálfti, sem mældist 7 stig varð í Suður- Atlantshafi skammt suðaustur af Falklandseyjum í gær. Á undan stóra skjálftanum höfðu komið fjórir, sem allir mældust meira en 5 stig. Að sögn bandarísku jarðfræði- stofnunarinnar USGS eru skjálftar af þessari stærð frekar sjaldgæfir á þessum slóðum. Á undanförnum fjörutíu árum hafa orðið þar 15 skjálftar, sem mælst hafa 5 stig eða meira. Þessi skjálfti varð á tíu kíló- metra dýpi, um 314 kílómetra suð- austur af Stanley, höfuðborg Falk- landseyja. - gb Jarðskjálfti í Atlantshafi: Stór skjálfti við Falklandseyjar LJÓSBERAR HEIÐRAÐIR Konur sem komu að stofnun Kvennalistans voru ljósberar í Ljósagöngu UN Women á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ FÉLAGSMÁL UN Women á Íslandi stóðu fyrir Ljósagöngu á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi í gær. Dag- urinn markaði upphaf sextán daga alþjóðaátaks sem að þessu sinni ber yfirskriftina Heimilisfriður. Sérstakir heiðursgestir og ljósberar göngunnar voru konur sem stofnuðu Kvennalistann á sínum tíma. Þannig var starf þeirra í þágu jafnréttis á Íslandi heiðrað. -skó Gengu fyrir heimilisfriði á degi gegn kynbundnu ofbeldi: Kvennalistakonur báru kyndla

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.