Fréttablaðið - 26.11.2013, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.11.2013, Blaðsíða 38
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30 „Okkur finnst þetta rosalega svekkjandi, við vildum ná tölv- unni inn fyrir jólin,“ segir Ágúst Guðbjartsson, framkvæmdastjóri Gamestöðvarinnar og Skífunnar, um þá ákvörðun stjórnarmanna Sony í Evrópu að nýja Playstation 4-tölvan komi til Íslands 29. janúar næstkomandi. „Ég hef mikla samúð með Senu [umboðsaðila Playstation á Íslandi], allir vilja ná jólatraffík- inni. Við verðum að horfa á þetta í stærra samhengi, Ísland er lítill markaður og þessi ákvörðun er byggð á stærð markaðssvæða,“ bætir Ágúst við. Vélarnar eru komnar í sölu í Bandaríkjunum og koma í verslanir víða í Evr- ópu í vikunni. Hann segist búast við því að einhverjir muni ná sér í tölvur erlendis. „Það eru alltaf einhverjir sem fá vélar, einhverjir sem panta sér eða fara sjálfir út.“ Ágúst varar við því að kaupa vélar frá Bandaríkjunum. „Við höfum séð einhverja lenda í vandræðum með vélar sem þeir kaupa í Bandaríkjunum, ef fólk ætlar á annað borð að kaupa sér vélar erlendis er öruggara að gera það í Evrópu, þó svo að við mælum sterklega með því að fólk kaupi þær á Íslandi þegar þær koma, það er öruggast, sérstaklega vegna ábyrgðar og fleira þess háttar,“ segir Ágúst. Hann segir ákvörðun ráðamanna Sony þó ekki vera als- læma fyrir Íslendinga. „Við höfum heyrt af einhverjum bilunum í fyrstu sendingum í Bandaríkjun- um, eins og gengur og gerist. Öll þessi vandamál ættu að vera á bak og burt þegar vélarnar fara í sölu á Íslandi,“ segir Ágúst. Hann býst við því að sýningareintak komi í Gamestöðina í Smáralind í desemb- erbyrjun og að Playstation 4-leikir verði til sölu fyrir jólin. - kak Þetta er svekkjandi fyrir alla Playstation 4 fer í sölu 29. janúar á Íslandi en er komin í búðir í Bandaríkjunum. Ágúst Guðbjartsson hjá Gamestöðinni segir þetta vera svekkjandi. SVEKKTUR Ágúst vildi ná Playstation 4 inn fyrir jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON „Við ætlum að halda alveg geggj- aða tónleika og lofum miklu stuði,“ segir Magnús Tryggvason Eliassen, trommuleikari hljóm- sveitarinnar Tilbury. Sveitin ætlar að halda tvenna útgáfutónleika sem fara annars vegar fram í Kaldalóni í Hörpu 28. nóvember og svo á Græna hattinum á Akureyri 29. nóvem- ber. Snorri Helgason mun sjá um upphitun á hvorum tveggja tón- leikunum. Á tónleikunum verður nýjasta afurð sveitarinnar, Northern Comfort, kynnt en einnig verða eldri lög leikin í bland. Hægt er kaupa miða á hvora tveggja tónleikana á midi.is. - glp Tilbury með tvenna tónleika TVENNIR ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Hljóm- sveitin Tilbury kemur fram á útgáfu- tónleikum í Reykjavík og á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Jazzsöngkonan Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir heldur tónleika á veit- ingahúsinu Kex Hosteli í kvöld. Ásamt Guðlaugu munu þeir Þor- grímur Jónsson bassaleikari, Scott Mclemore trymbill og gítar- leikarinn Peter Tinning koma fram. „Við munum taka eitthvað af efni sem var á plötunni minni sem kom út árið 2008 í bland við aðra jazzstandarda,“ segir Guð- laug. Hún hvetur fólk til að mæta á tónleikana. „Þetta verður skemmtilegt. Peter Tinning kemur frá Dan- mörku gagngert til þess að spila á þessum tónleikum.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og standa yfir í tvo klukkutíma. Aðgangur er ókeypis. -kak Jazz á Kex SPENNT FYRIR KVÖLDINU Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir kemur fram á Kex Hosteli í kvöld.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.