Fréttablaðið - 26.11.2013, Blaðsíða 46
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 38
Sódavatn. Þar sem mér hefur alltaf
fundist venjulegt vatn mesti óþverri
hefur það alveg bjargað lífi mínu
að einhverjum snillingi datt í hug
að bæta út í það kolsýru til að gera
það drykkjarhæft. Á 7 mánaða
ferðalagi um Afríku var þó ekki
hlaupið að því að fá bólur í vatnið
svo samfundirnir við Sodastream-
tækið urðu þeim mun gleðilegri.
Anna Bergljót Thorarensen, guðmóðir leik-
hópsins Lottu.
DRYKKURINN
„Þetta var eins og að spila fót-
bolta með Maradona,“ segir tón-
listar- og dagskrárgerðarmaður-
inn Magnús Einarsson sem lék
með einum þekktasta trommu-
leikara í heimi á skemmtistaðn-
um Obladí á sunnudagskvöldið.
Trommuleikarinn heitir Steve
Ferrone og hefur unnið með
mörgum af þekktustu og ástsæl-
ustu tónlistarmönnum sögunn-
ar, líkt og Eric Clapton, Michael
Jackson, Tom Petty & the Heart-
breakers og Duran Duran, ásamt
mörgum fleirum.
„Hann er staddur hér á landi
með hljómsveitinni The Straits
sem komu fram í Hörpu í gær-
kvöldi. Við þekkjumst frá því ég
bjó í Los Angeles og við erum
góðir félagar,“ segir trommu-
leikarinn Karl Pétur Smith. Þeir
félagar fóru saman á skemmti-
staðinn Obladí þar sem Ferrone
tók í settið með hljómsveit húss-
ins. Ferrone lék nokkur lög með
hljómsveitinni. „Við spiluðum
ýmislegt, blús, lög eftir Rolling
Stones og Bítlana svo fátt eitt sé
nefnt. Það var svakalega gaman
að spila með honum, þvílíkur
spilari,“ segir Magnús.
Ferrone hefur komið fram
á mörgum mjög þekktum tón-
leikum og ber þá helst að
nefna órafmagnaða tónleika
Eric Claptons þar sem lagið
Tears in Heaven og Layla
komu út í einstökum útgáfum.
Að lokum segist Karl Pétur hafa
dregið Ferrone á Hressó og hvatt
hann til að bragða á íslenskri
kjötsúpu. „Hann elskaði íslensku
kjötsúpuna.“
- glp
Eins og að spila fótbolta með Maradona
Trommuleikarinn Steve Ferrone kom óvænt fram á Obladí. Hann hefur unnið með Eric Clapton og Duran Duran.
GAMAN SAMAN Steve Ferrone,
Magnús Einarsson, Björgvin Gíslason og
Pétur Sigurðsson leika hér saman.
„Þetta er fyrsti sjónvarpsþátturinn sem ég tek þátt
í, á eftir Íslandi í dag,“ segir sjónvarpskonan Sig-
ríður Elva Vilhjálmsdóttir en þáttur hennar, Á fullu
gazi, er frumsýndur í kvöld á Stöð 2. Finnur Thorla-
cius hefur umsjón með þættinum, ásamt Sigríði
Elvu.
Í þáttunum fengu Sigríður Elva og Finnur meðal
annars að keyra flotta bíla líkt og Porsche Cayenne,
Range Rover Evoque og Tesla-rafmagnsbíl. „Það er
erfitt að fara af svona bíl eins og Range Rover og
yfir á litla Toyota Aygo-bílinn minn.“
Farið er yfir víðan völl í þáttunum og tekið á ýmsu
sem tengist bílum og tækni. „Við förum í keppni um
að búa til besta útilegubílinn, fengum bílhræ frá
Vöku og fengum tvo sólarhringa til að gera það að
sem bestum útilegubíl,“ útskýrir Sigríður Elva. Auk
þess að búa til útilegubíl fer fram rallíkeppni, þar
sem fræga fólkið keppir. „Það var mjög skemmti-
legt en fólk blótar ómeðvitað svolítið mikið þegar
það keyrir rallíbrautina,“ bætir Sigríður Elva við.
Á meðal þátttakenda í rallíkeppninni eru Ásdís Rán
Gunnarsdóttir fyrirsæta, Fjölnir Geir Bragason
húðflúrari, Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður,
Saga Garðarsdóttir leikkona og margir fleiri. „Svo
heimsækjum við líka fólk sem á áhugaverða bíla,
prufukeyrum þá og skoðum þá hátt og lágt.“
Lítið var um óhöpp við gerð þáttanna. „Þetta fór
allt saman vel fram. Það var þó einhver smáspreng-
ing sem heppnaðist svo vel að löggan kom á staðinn
en engin slys urðu á fólki.“
Sigríður Elva er nýbökuð móðir en hún eignaðist
dóttur í lok apríl með unnusta sínum, Teiti Þorkels-
syni. „Ég ætlaði nú aldrei að eignast börn en það
hefur svo sannarlega breyst, ég elska móðurhlut-
verkið, það er best í heimi,“ segir Sigríður Elva.
Litla telpan fékk að vera á setti ansi mikið en Sig-
ríður Elva var með hana á brjósti við tökur. „Ætli
það hafi ekki verið mesta vesenið að hafa krakka
á kantinum. Ég þurfti að gefa henni að drekka á
milli skota og svo skiptust Kalli pródúser og Finn-
ur á að passa hana. Hún á pottþétt eftir að verða
tækja stelpa því hún brosti ávallt mikið þegar hún
sá torfærubílana og öll tryllitækin,“ bætir Sigríð-
ur Elva við létt í lundu.
Sjálf segist hún töluverðan áhuga á bílum en sé
þó ekki bílanörd. „Ég hef gaman af öllu sem fer
hratt og er vélknúið en finnst samt Formúla 1 vera
rosalega leiðinlegt sjónvarpsefni.“
Þegar tökum lýkur á þáttunum hyggst Sigríður
Elva fara í ferðlag með fjölskyldu sinni. „Mig langar
að komast í sól því ég eyddi fæðingarorlofinu mínu í
versta sumri Íslandssögunnar,“ segir Sigríður Elva.
- gunnarleo@frettabladid.is
Gaf brjóst á milli skota
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir stýrir nýjum þætti á Stöð 2 og elskar móðurhlutverkið.
MÆÐGUR Í KAGGANUM Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona ásamt dóttur sinni í Toyota Aygo-bifreið sinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BARN Á
BRJÓSTI
Sigríður Elva
var með dóttur
sína á brjósti
við tökur á
þáttunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í TORFÆRUBÍLNUM Mæðgurnar láta fara vel um sig í
torfærubílnum.
BARNAPÍURNAR Bogi Reynisson hljóðmaður, Karl Ágúst
Guðmundsson, leikstjóri og framleiðandi, og Kristinn Þeyr
Magnússon myndatökumaður annast hér litlu telpuna á
meðan mamman vinnur.