Fréttablaðið - 26.11.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 26.11.2013, Blaðsíða 6
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvaða íslenskum ráðherra var hótað lífl áti vegna hvalveiða? 2. Hver setti fi mm Íslandsmet í sundi um helgina? 3. Á hvað setur Oddný Sturludóttir stefnuna? SVÖR: 1. Halldóri Ásgrímssyni. 2. Eygló Ósk Gúst- afsdóttir. 3. Frekara nám. VEISTU SVARIÐ? NÁTTÚRA Þriðjungur göngustíga á Þórsmerkursvæðinu er í slæmu eða afleitu ásigkomulagi. Kallað er eftir framtíðarsýn við upp- byggingu í stað „fyrstu hjálpar“ þegar mál eru komin í óefni. Nýbirt er grein Rannveigar Ólafsdóttur, dósents við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, og Micaels C. Runnström hjá Háskólanum í Lundi, í tíma- ritinu Journal of Outdoor Rec- reation and Tourism. Þau könn- uðu ástand göngustígakerfisins í Þórsmörk og í Landmannalaug- um og komust að þeirri megin- niðurstöðu að 30% göngustíga Þórsmerkur og 12% göngu- stíga í Landmannalaugum séu í slæmu eða afleitu ástandi. Um 40% göngustíga í Þórsmörk voru metin í góðu eða mjög góðu ásig- komulagi. Rannveig segir að framlög til að byggja upp svæði sem eru illa farin séu gott og nauðsynlegt framtak. „Hins vegar vil ég gagn- rýna að þetta byggist allt á því að veita „fyrstu hjálp“, svo að segja. Við erum einfaldlega komin með svo marga ferðamenn að okkur vantar heildarsýn. Hvar við vilj- um byggja upp innviði og hvern- ig. Þegar ástandið er orðið svona, þá verðum að gera eitthvað. Tré- stíga þarf örugglega á einhverj- um stöðum, en það sem ég er að gagnrýna er að það vantar stefnu- mörkun um hvar við ætlum að byggja upp manngert umhverfi og hvar ekki,“ segir Rannveig. Augljóslega er sá fjöldi ferða- manna, sem fara um einstök svæði, sá þáttur sem helst ber að líta til. Því er ein tillagan, sem sett er fram í greininni, að flæði ferðamanna um viðkvæmustu svæðin verði stýrt og takmarka þurfi fjölda þeirra. Vinir Þórsmerkur hafa, í sam- vinnu við Skógrækt ríkisins, haldið úti sérstöku verkefni í kringum viðhald á göngustígum á svæðinu og mikill árangur hefur náðst undanfarin tvö ár. Hreinn Óskarsson, fyrrver- andi formaður félagsins, segir að skort hafi fjármagn til að hægt sé að lagfæra alla stíga, en vinnan hefur miðast við að lagfæra fjöl- förnustu stígana; jafnvel færa þá til og græða upp rofsár í kringum gönguleiðirnar. Enn fremur hafa merkingar verið bættar og reynt að beina fólki inn á þær leiðir sem þola mestan átroðning. Sótt var um fast framlag frá ríkinu til verkefnisins í fyrra, 10 milljónir króna, en án árangurs. svavar@frettabladid.is Við erum einfaldlega komin með svo marga ferðamenn að okkur vantar heildarsýn. Hvar við viljum byggja upp inn- viði og hvernig. Rannveig Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands GÆÐABÍLSTÓLAR FYRIR BÖRNIN REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17 REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7 AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13 www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð! EX PO - w w w .ex po .is Sími: 535 9000 VERÐLAUNAÐIR MARG- BARNA- BÍLSTÓLAR Veldu gæði og öryggi fyrir þig og þína kynntu þér málið!w w w . s i d m e n n t . i s Mannvirðing Siðmennt styður opið, víðsýnt og fjölbreytt samfélag Stígar í Þórsmörk í mjög slæmu ástandi Þriðjungur stíga í Þórsmörk reyndist vera í slæmu ásigkomulagi þegar ástand þeirra var rannsakað. Vinir Þórsmerkur hafa staðið fyrir sérstöku verkefni til að bæta ástandið. Nefnt er að stýra verði ferðamönnum og jafnvel takmarka fjöldann. VERSTU DÆMIN Talið er að á milli 75 og 100 þúsund manns gangi Laugaveginn [gönguleiðina milli Landmannalauga og Þórsmerkur] á hverju ári, svo álagið er mikið, og því lýkur viðhaldi og uppbyggingu aldrei. MYNDIR/RANNVEIG OG MICAEL SAMGÖNGUR Isavia og danska fyrir tækið Crisplant A/S undirrit- uðu samning á fimmtudaginn um stækkun og endurbætur á farang- ursflokkunarkerfi Keflavíkurflug- vallar. Samningurinn felur í sér tvöföldun á afkastagetu farangurs- flokkunarkerfisins og eftir breyt- inguna mun kerfið geta flokkað 86 töskur á mínútu. Í tilkynningu frá Isavia segir að verkefnið sé grundvöllur þess að innrita mikinn fjölda flugfarþega á skömmum tíma og tryggja að farangur skili sér á réttan áfanga- stað. Nú þegar hafi sjálfsinnrit- unarstöðvar aukið afköst umtals- vert og endurbæturnar séu liður í að mæta síauknum farþegafjölda og auka þjónustu enn frekar. Vegna mikillar umferðaraukn- ingar um flugvöllinn hefur núver- andi flokkunarbúnaður verið starfræktur með hámarksafköst- um undanfarin tvö ár. Heildarupp- hæð samningsins er um 645 millj- ónir króna og á breytingunum að ljúka í byrjun sumars. - skó Samningur undirritaður um farangursflokkunarkerfi á Keflavíkurflugvelli: Tvöfalda afkastagetu kerfisins SAMNINGSUNDIRRITUN Fulltrúar Isavia og Crisplant A/S undirrituðu samninginn í farangursflokkunarsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. MYND/ISAVIA VÍSINDI, AP Á fimmtudaginn ræðst hvort halastjarnan ISON lifir nálægðina við sólarhitann af og birtist þá nokkru síðar skær og greinileg á himni. Vísindamenn hafa fylgst grannt með ferðum hennar síðustu mánuðina. Hún fer næst sólu á fimmtudaginn og bráðni hún hvorki né sundrist í smámola mun hún sjást berum augum frá jörðu mestallan desembermánuð. Ekki er nein hætta á að hún rekist á jörðina, en næst jörðu verður hún á annan í jólum, 26. desember. Eftir það heldur hún burt út í geiminn og ekki er reikn- að með að hún komi nokkurn tím- ann aftur hingað. Vísindamenn vissu ekkert af tilvist hennar fyrr en í septem- ber á síðasta ári þegar rússneskir stjarnfræðingar tóku eftir henni. Síðan þá hafa allir helstu stjörnusjónaukar jarðar verið notaðir til að kanna ferðir henn- ar og greina efnasamsetningu hennar. Lifi hún af sólarnándina má búast við að í október á næsta ári fari hún nálægt Mars. Svo nálægt reyndar að hali hennar muni um hríð umlykja rauðu plánetuna. - gb Halastjarnan ISON nálgast óðfluga og fer næst sólu á fimmtudaginn: Örlög halastjörnu ráðast brátt HALASTJARNAN ISON Verður vel sýnileg mestallan desember lifi hún af hita sólar- innar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TAÍLAND, AP Hópur stjórnarand- stæðinga réðst inn í utanríkisráðu- neytið í Bangkok í gær. Þeir krefj- ast þess að Yingluck Shinawatra forsætisráðherra segi af sér. Stjórnarandstæðingarnir halda því fram að í raun sé það Thaks- in Shinawatra, bróðir forsætis- ráðherrans, sem stjórni á bak við tjöldin. Thaksin var steypt af stóli í byltingu hersins árið 2006. Á sunnudaginn tóku meira en 150 þúsund manns þátt í mótmæla- göngu gegn stjórninni. - gb Mótmælendur í Taílandi: Stjórnin fari frá Í RÁÐUNEYTI Mótmælendur komnir inn í utanríkisráðuneytið. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA FRAKKLAND, AP Evrópusamband- ið gæti byrjað að létta refsiað- gerðum af Íran strax í næsta mánuði. Þetta fullyrti Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, í útvarpsviðtali. Til þess þarf sameiginlega ákvörðun Evr- ópusambands- ríkjanna. „Það gæti orðið í desem- ber, það gæti orðið í janúar,“ sagði Michael Mann, talsmað- ur ESB í utanríkismálum. Íranir samþykktu um helgina að halda kjarnorkuvinnslu innan ákveðinna marka, þannig að þeim verður vart kleift að smíða kjarn- orkuvopn lengur. - gb Að loknum Íranssamningi: Refsiaðgerðir til endurskoðunar LAURENT FABIUS DANMÖRK Heimsókn nemenda í áttunda bekk í Hjalle-skólanum í Óðinsvéum í Danmörku til skóla í Malmö í Svíþjóð hefur verið aflýst. Ástæðan er sú að nokkr- um foreldrum dönsku barnanna finnst Malmö of hættuleg borg. Foreldrarnir bentu meðal ann- ars á fjölda innflytjenda í hverf- inu Rosengård sem er nálægt skólanum sem dönsku börnin ætl- uðu að heimsækja. Kennari í Malmö segir leitt að mæta svo miklum fordómum. - ibs Danir aflýsa skólaferð: Malmö sögð of hættuleg borg

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.