Fréttablaðið - 26.11.2013, Page 12
26. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
ALÞINGI Jón Þór Ólafsson, þingmað-
ur Pírata, óskar eftir því að Hanna
Birna Kristjánsdóttir innanríkis-
ráðherra og ráðuneytisstjóri innan-
ríkisráðuneytisins verði kölluð
fyrir stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd Alþingis.
„Leki innanríkisráðuneytisins
á persónuupplýsingum um hælis-
leitendurna Evelyn Glory Joseph og
Tony Omos, er grafalvarlegt mál
sem nauðsynlegt er að fá svör við,“ segir Jón Þór í
tilkynningu.
„Það er að sjálfsögðu stjórnvalda hverju sinni
að gæta þess að trúnaðar sé gætt í málum er varða
persónuleg málefni. Menn verða að fara með upplýs-
ingar í samræmi við eðli þeirra gagna sem þeir hafa
undir höndum.“
Þórunn Þórarinsdóttir hjá Kristínarhúsi, athvarfi
sem er fyrst og fremst ætlað konum
sem eru á leið út úr vændi eða man-
sali, segir trúnaðarbrot alltaf alvar-
legt mál: „Ef rétt reynist að þetta sé
trúnaðarbrestur frá ráðuneytinu, þá
er það mjög alvarlegt mál.“
Í yfirlýsingu frá innanríkisráðu-
neytinu segir að ekkert bendi til að
embættismenn innanríkisráðuneyt-
isins hafi afhent slík gögn. „Ráðu-
neytið leggur mikla áherslu á að öll
formleg gögn allra slíkra mála séu trúnaðarmál og
með þau farið sem slík. Ráðuneytið eða starfsmenn
þess geta samkvæmt lögum ekki tjáð sig um einstaka
mál, en harma ef það hefur í einhverju tilviki gerst að
trúnaðarupplýsingar berist öðrum en þeim sem um
þau fjalla formlega,“ segir í yfirlýsingunni.
Hanna Birna vildi ekki veita viðtal vegna málsins
þegar þess var óskað í gær. - jbg
Þingmaður Pírata vill kalla innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóra fyrir nefnd:
Ráðherra skýri leka úr ráðuneyti
JÓN ÞÓR
ÓLAFSSON
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
*Miðað við C addy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur.
Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Atvinnubílar
Til afgreiðslu strax
Fæst einnig fjórhjóladrifinn
Caddy* kostar aðeins frá
3.090.000 kr.
(2.462.151 kr. án vsk)
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
133
4
73
Dr. Dennis Meadows
Endurskoðun hugtaksins
sjálfbær þróun
Háskóli Íslands og Stofnun Sæmundar fróða bjóða til fyrirlestrar
dr. Dennis Meadows í Hátíðasal Aðalbyggingar miðvikudaginn
27. nóvember nk. kl. 13.30–14.30. Í erindinu mun dr. Meadows
fjalla um nauðsyn þess að endurskoða hugtakið sjálfbær þróun.
Dr. Dennis Meadows er prófessor emeritus í kerfisstjórnun og
fyrrverandi forstöðumaður stofnunar um stefnumótun og félagsvísindi
við Háskólann í New Hampshire. Hann stýrir nú rannsóknamiðstöð um
gagnvirka kennslu. Meadows er þekktastur fyrir að vera meðhöfundur
skýrslunnar Limits to Growth sem kom út árið 1972. Þar var líkan nýtt til að
sýna afleiðingar samspils fólksfjölgunar og takmarkaðra náttúruauðlinda.
Dr. Meadows hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir framlag sitt
til vísinda og verið ráðgjafi ríkisstjórna í Bandaríkjunum og víðar.
Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
HÚSIÐ Í BRIXTON Lögregla á verði utan við húsið, þar sem hjónin hafa búið ásamt
þrælum sínum síðustu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
BRETLAND, AP Breskir fjölmiðlar
hafa upplýst að hjónin, sem héldu
þremur konum í þrælkun í þrjátíu
ár á heimili sínu í London, heita
Aravindan og Chanda Balakrish-
nan.
Breska lögreglan hefur verið að
kanna hvort þrælahaldið teygi anga
sína víðar og meðal annars gert
húsleit á þrettán stöðum í London.
Maðurinn er 73 ára, upphaf-
lega frá Indónesíu, en konan er
67 ára og upphaflega frá Tans-
aníu. Þau hafa þó búið áratugum
saman í London og voru á sínum
tíma leiðtogar í maóistasamtökum.
Þau ráku meðal annars bókasafn
og eins konar félagsmiðstöð fyrir
skoðanabræður sína.
Aravindan Balakrishnan var
áður félagi í Kommúnistaflokki
Englands og gegndi þar mikil-
vægri stöðu, en sagði sig úr
flokknum árið 1974 og stofnaði
maóistasamtök, sem störfuðu þó
ekki nema í fáein ár.
Lögreglan hefur upplýst að
hjónin og konurnar þrjár, sem þau
héldu í þrælkun, hafi verið sömu
sannfæringar í pólitík.
Ein kvennanna er frá Malasíu,
69 ára gömul, önnur frá Írlandi,
57 ára, og sú þriðja bresk, 30 ára.
Talið er að yngsta konan, sem
hefur verið á heimili Balakrish-
nan-hjónanna frá því hún fæddist,
sé dóttir írsku konunnar og Ara-
vindans.
Lögreglan hefur nú staðfest, að
sögn breska blaðsins The Tele-
graph, að eldri konurnar tvær
hafi upphaflega kynnst þrælahöld-
urum sínum í tengslum við póli-
tíska starfsemi og að þau hafi búið
saman í einhvers konar kommúnu.
„Einhvern veginn hætti sú
kommúna en konurnar héldu
áfram að búa hjá hinum grunuðu,“
er haft eftir Steve Rodhouse, yfir-
manni í lögreglunni, í The Tele-
graph. „Hvernig þetta varð svo til
þess að konurnar lifðu lífinu með
þessum hætti í meira en 30 ár er
það sem við erum að reyna að átta
okkur á, en við teljum að andleg og
líkamleg misnotkun hafi verið ein-
kenni á lífi allra fórnarlambanna.“
Hjónin hafa bæði komið við sögu
lögreglunnar í tengslum við póli-
tískar aðgerðir þeirra og setið í
fangelsi.
Lögreglan gerði húsleit hjá þeim
árið 1978, handtók þá 14 félaga í
samtökunum, þar á meðal Bala-
krishnan-hjónin.
gudsteinn@frettabladid.is
Var leiðtogi í
hópi maóista
Breska lögreglan kannar tengsl við þrælahaldarana í
London á þrettán öðrum stöðum í borginni. Þræla-
haldararnir voru forsprakkar í maóistasamtökum.