Fréttablaðið - 26.11.2013, Page 22
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Fyrir flesta er jólahátíðin tími góðra veitinga og samveru-stunda með fjölskyldunni.
Flestir leyfa sér meira í mat og drykk
og borða gjarnan mun meira en á
öðrum tímum ársins. Ekki má þó
gleyma að hreyfa sig yfir hátíðirnar
og auðvelt er að passa upp á matar-
æðið þannig að hollustan læðist inn
með jólakræsingunum. Jólin eru
einnig sá tími sem flestir verja með
fjölskyldunni og því kjörið tækifæri
til að hreyfa sig saman. Fríða Rún
Þórðardóttir íþróttanæringarfræð-
ingur segir ótal margt hægt að gera
sem sé skemmtilegt og hreyfitengt.
„Jólin eru tilvalinn tími fyrir fjöl-
skyldu og vini til að hreyfa sig saman
enda margt í boði. Einfaldast er að
fara út að ganga, jafnvel að fara niður
að tjörn og skoða fuglalífið í leiðinni.
Einnig er tilvalið fyrir þá sem búa
á höfuðborgarsvæðinu að heim-
sækja Laugardalinn, Öskjuhlíðina og
Elliðaárdalinn en þar er að finna góð
göngusvæði.“ Hún bendir auk þess á
að fjöldi sundlauga og heilsuræktar-
stöðva sé opinn yfir hátíðarnar og
mögulega líka skíðasvæði. Mikill
fjöldi gönguleiða er einnig í boði víðs
vegar um landið og skemmtilegt sé
að hópa sig saman og stunda útiveru
og samvistir í góðum félagsskap.
Langflestir hlaupahópar halda úti
æfingum yfir hátíðarnar og mörg
skipulögð hlaup eru í gangi sem má
kynna sér á www.hlaup.is.
MUNUM AÐ NJÓTA
Þegar kemur að hófsemi í mat yfir há-
tíðina er mikilvægt að sögn Fríðu Rúnar
að gleyma ekki hollustunni. „Það er
æskilegt að borða fljótlega eftir að farið
er á fætur og miklu máli skiptir að borða
trefjaríkan morgunmat sem gefur góða
mettunartilfinningu. Nóg af grænmeti
með matnum hjálpar við að halda magni
af þungu kjöti og sósu innan hóflegra
marka. Auk þess er grænmetið líka
hollt og næringarríkt. Einnig má benda
á ávexti milli mála og sem eftirrétt.
Reglubundnar máltíðir eru góð leið til að
tryggja að blóðsykurinn haldist í betra
jafnvægi og að ekki líði of langt á milli
mála sem getur leitt til ofáts. Síðast en
ekki síst má benda fólki á að drekka nóg
af vatni. Það er alls ekki æskilegt eða
nóg að drekka aðallega malt, appelsín
og kaffi.“
Þrátt fyrir þessar vangaveltur segir
Fríða Rún að mikilvægt sé að muna að
hátíðardagarnir eru örfáir yfir árið og
um að gera að njóta þeirra sem mest
og best saman sem fjölskylda. „Með
hæfilegri hreyfingu ættu flestir að geta
leyft sér að borða hátíðarmatinn án þess
að hlaða utan á sig kílóunum. Munum að
njóta eins og við best getum og það má
ekki vera með samviskubit yfir að leyfa
sér kræsingar.“
Heilsutorg.com í samvinnu við World
Class og Toppfara munu kynna og bjóða
upp á hreyfitengda viðburði í kringum
hátíðarnar sem fylgjast má með á
www.heilsutorg.com. ■ starri@365.is
EKKI GLEYMA HOLLUSTUNNI
HREYFING UM JÓLIN Regluleg hreyfing í bland við neyslu á grænmeti og ávöxtum yfir jólahátíðina ætti að skila flestum í ágætu
formi á nýju ári. Auðvelt er að skipuleggja góðar samverustundir úti við með fjölskyldu og vinum og ekki má gleyma blessuðu vatninu.
ÍÞRÓTTANÆRINGARFRÆÐINGUR „Jólin eru tilvalinn tími fyrir fjölskyldu og vini til að hreyfa sig saman enda margt
í boði,“ segir Fríða Rún Þórðardóttir íþróttanæringarfræðingur. MYND/DANÍEL
HNETUR LENGJA LÍFIÐ
Þeir sem gæða sér reglulega á hnetum lifa lengur. Þetta sýna nýbirtar
niðurstöður stærstu rannsóknar sem gerð hefur
verið á heilnæmi hneta. Niðurstöðurnar birtust í
New England Journal of Medicine.
Í ljós kom að þeir sem maula hnetur daglega
eiga von á lengstum lífaldri og eru einnig líklegri
til að aðhyllast heilbrigðan lífsstíl. Rannsóknin
stóð yfir í þrjátíu ár og voru þátttakendur 120 þúsund.
Eftir því sem hnetur voru oftar innbyrtar því ólíklegra var
að þátttakendur dæju drottni sínum meðan á rannsókninni
stóð.
Þeir sem borðuðu hnetur einu sinni í viku voru 11 prósent ólíklegri til
að deyja á rannsóknartímanum í samanburði við þá sem borðuðu aldrei
hnetur. Dagleg lófafylli af hnetum drógu úr líkum á dauða um 20 prósent.
Greinilegastur ávinningur hnetuátsins voru minni líkur á hjartaáfalli um 29
prósent og 11 prósent minni líkur á dauða af völdum krabbameins.
HÁTÍÐARTÓNLEIKAR
SCHOLA CANTORUM
Kom þú, kom...
JÓLATÓNLISTARHÁTÍÐ HALLGRÍMSKIRKJU 2013
FYRSTA SUNNUDAG Í AÐVENTU
1. DESEMBER KL. 17.00 Í HALLGRÍMSKIRKJU
Miðasala: Hallgrímskirkja | opið 9 - 17 alla daga | s. 510 1000 | hallgrimskirkja.is og á midi.is
FÁTÆKT
13 ára drengur á Vesturlandi