Fréttablaðið - 26.11.2013, Síða 37

Fréttablaðið - 26.11.2013, Síða 37
Til fjölda ára hefur verið bent á það álag sem er á sjúkraliðastéttinni. Undirmönnun, eilífar breytingar og neikvæð umræða kemur í æ ríkara mæli niður á heilsufari stéttarinnar. Sjúkraliðar þjást m.a. af stoðkerfisvandamálum, streitu og streituröskun sem oft á tíðum breytast úr vandamálum og kvillum í sjúkdóma sem valda langvarandi veikindum eða örorku. Álag eykst Álag eykst á heilbrigðiskerfið og um leið á ein- staklinginn sjálfan og fjölskyldu hans. Áður var lögð ofuráhersla á að sjúkraliðar ynnu tveir og tveir saman við hjúkrun. Í dag er sjúkra- liðinn oftast einn við vinnu sína, eða hefur með sér starfsmann sem enga þjálfun hefur í réttri líkams- beitingu. Þetta veldur ójafnvægi sem kemur niður á baki, öxlum, herðum og hnjám. Sjúkraliðum er ætlað að koma mikið veikum einstaklingum í og úr rúmi, snúa og sinna, allt upp í 200 kílóa sjúklingum. Sjúkraliðastéttin er í 99% tilfella konur sem sumar eru ekki meira en 50 kíló. Það sjá það allir sem ekki loka augunum að um ófram- kvæmanlegt verkefni er að ræða, án þess að skaði hljótist af. Þetta hefur leitt til þess í ríkara mæli að Sjúkratryggingar Íslands neita að viðurkenna áverka sem vinnuslys þ.s. ekki var rétt staðið að vinnu. Aukin veikindi Upplýsingar Styrktarsjóðs BSRB sýna að sjúkra- liðar sem fá sjúkradagpeninga úr sjóðnum eru nánast undantekningarlaust með sjúkdóma sem rekja má til líkamlegs og/eða andlegs álags við vinnu. Vaxandi þróun er frá hlutaveikindum til fullra veikinda. Sjúkraliðar eru 10% félagsmanna í styrktar- sjóðnum, en nota þjónustu sjóðsins mun meira en aðrir félagsmenn. Fyrstu 9 mánuði ársins 2012 voru sjúkraliðar 21% þeirra sem fengu sjúkradagpeninga og eru nú á sama tíma 2013 komnir upp í 28%. Af þeim sem fengu niðurgreidda sálfræðiaðstoð á fyrstu 9 mánuðum ársins 2012 voru 23% sjúkraliðar og hefur ekki fækkað á sama tíma 2013. Á fyrstu 9 mánuðum ársins 2012 voru 25% styrkþega sjúkraliðar sem fengu styrk vegna sjúkra- þjálfunar og eru á sama tíma 2013 í 21%. Virk starfsendurhæfing sinnir einnig þeim sem reyna að halda sér á vinnumarkaði eftir langvarandi veikindi og er þar einnig hátt hlutfall sjúkraliða. Það dylst ekki að um er að ræða gríðarlegt og vaxandi heilsuleysi stéttarinnar. Það er því erfið upplifun að hvergi sé hægt að leita stuðnings í formi vinnuverndar vegna undirmönnunar og annarra þátta sem hafa áhrif á heilsufar. Engin ber ábyrgð Vinnueftirlitið vísar á Embætti landlæknis, sem hafi það hlutverk að fylgjast með heilbrigðisstétt- um. Ekki eingöngu hvort þær stéttir séu í stakk búnar til að sinna störfum sínum, en ekki síður að meta þá aðstöðu sem unnið er við og þann mannafla og mannauð sem vinnur verkin. Landlæknisembættið vísar jafnvel til baka á Vinnueftirlitið og niðurstaðan er að engin ber ábyrgð á starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna. Það gerist þó að Embætti landlæknis taki út stofnanir og skili skýrslu varðandi úrbætur. Oftar en ekki er þess krafist að fjölga þurfi hjúkrunar- fræðingum, en ekki sjúkraliðum þó svo að vitað sé að það dragi ekki úr vinnuálagi á sjúkraliða. Lýðheilsustöð sem var innlimuð í landlæknis- embættið hefur ekki beitt sér fyrir því að þessu heilsuspillandi starfsumhverfi sjúkraliða sé breytt til batnaðar. Fá ekki fullt starf Í ráðningarviðtölum sjúkraliða kemur fram að ekki sé í boði fullt starf, því engin standi undir því álagi lengur. Sjúkraliðafélag Íslands minnir á að viðvarandi álag veldur veikindum og vinnuslysum með gríðarlegum erfiðleikum og tilkostnaði. Fyrir hönd sjúkraliðastéttarinnar Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands Evrópudagur sjúkraliða 26. nóvember 2013 STÖÐUGT VINNUÁLAG VELDUR VEIKINDUM OG VINNUSLYSUM Sjúkraliðafélag Íslands Grensásvegi 16,108 Reykjavík Sími 553 9493 / 553 9494 Fax 553 9492 slfi@slfi.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.