Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 39
SÚRSÆT
BAKA
Uppskriftina að
sítr ónupæinu fékk
Helga frá Halldóru
vinkonu sinni sem
heldur úti vefsíð-
unni Nautnabelg-
ur. Margir hafa lagt
hönd á plóg við
þróun pæsins.
TÓNLISTARVEISLA Í BORGINNI
Myrkir músíkdagar standa nú yfir í Reykjavík og verður
margt um að vera í borginni um helgina. Hátíðin hefur
verið einn mikilvægasti vettvangur framsækinnar nú-
tímatónlistar á Íslandi frá árinu 1980. Auk Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar kemur fram fjöldi flytjenda á hátíðinni svo sem
Kammersveit Reykjavíkur og CAPUT.
Ég er með hálfgert blæti fyrir mat-reiðslubókum og finnst mjög gam-an að lesa þær,“ segir Helga glettin
en hún er komin í sjálfskipað bann við
kaupum á slíkum bókmenntum. Helga
er í krefjandi starfi sem framkvæmda-
stjóri en telur ekki eftir sér að elda eftir
að heim er komið. „Ég hef áttað mig á
því að það að stússast í eldhúsinu er af-
slöppun fyrir mig. Þegar ég kem þreytt
heim þá vinn ég úr hlutunum með því að
elda eða baka.“
Helga reynir að hafa tilbreytingu í því
sem hún eldar og prófar reglulega eitt-
hvað nýtt. „Ég kýs helst einfalda, fljót-
lega og létta rétti enda leiðist mér tilgerð
í matargerð,“ segir hún glaðlega. Sítr-
ónupæið sem hún gefur lesendum upp-
skrift að passar vel við þessa lýsingu.
„Pæið gefur mjög gott sætsúrt bragð.
Stundum hef ég sett læm í stað sítrónu
og það kemur líka mjög vel út.“
Uppskriftina fékk Helga frá Halldóru
vinkonu sinni sem heldur úti vefsíðunni
Nautnabelgur. „Margir hafa lagst á eitt
til að búa til þetta pæ. Halldóra fékk
uppskriftina hjá Agnesi vinkonu sinni
sem hafði þróað hana með fjölskyldu
sinni. Botninn kom frá pabba Agnesar
sem hann fékk úr gamalli þýskri mat-
reiðslubók. Fyllinguna kokkaði Rósa vin-
kona hennar upp. Halldóra breytti svo
uppskriftinni aðeins eftir
sínu höfðu og skipti
til dæmis hveiti
út fyrir spelt-
hveiti,“ lýsir
Helga sem
segir pæið
henta vel á
sumrin og
passa sérlega
vel með humri.
ÞESSI UPPSKRIFT
PASSAR Í RÚMLEGA EINA
BÖKU
Deig
■ 400 g fínt hveiti eða spelthveiti
■ 250 g smjör
■ 100 g sykur
■ 1 egg
Fylling
■ 3 egg
■ 180 g sykur eða agavesíróp og þá 1 dl
■ Safi úr tveimur (lífrænum) sítrónum
■ Ysti börkurinn af einni lífrænni sítrónu
■ Örþunnar sítrónusneiðar ofan á
Öllum efnum í deigið blandað saman og
hnoðað.
Stundum
getur þurft
að setja
1-2 msk.
af vatni í
deigið. Gott
er að setja það
stutta stund í
ísskáp til að gera
það meðfærilegra.
Deigið er flatt út á borði eða
bretti og gott að hafa smá hveiti við höndina
svo að kökukeflið klístrist ekki. Gott er að
setja bökuformið í frysti áður en deigið er
sett í það. Ekki má vera neitt gat á deiginu
þegar það er sett í formið því annars lekur
fyllingin úr.
Allt sem er í fyllingunni er hrært vel saman
og sett yfir deigið í forminu. Skornu sítrónu-
sneiðunum er raðað ofan á. Bakað við 175°C
í u.þ.b. 40 mínútur. Bakan er best þegar hún
er aðeins brúnleit á köflum.
Bakan er góð ein og sér en gott er að nota
með grískt jógúrt eða AB-mjólk sem sigtuð
hefur verið í gegnum kaffibréf.
SLÖKUN AÐ ELDA
MATUR Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB, lumar á uppskrift að
sólríku sítrónupæi. Margir hafa lagt hönd á plóg við þróunina.
MEÐ PÆIÐ GÓÐA
Helga segir pæið létt
og ferskt með góðum
súrsætum keim.
MYND/STEFÁN
Þórunnartún 2 - 105 Reykjavík
idan@idan.is - www.idan.is
Hefur þú starfað við matreiðslu
eða framreiðslu í 5 ár eða lengur
og vilt ljúka náminu?
RAUNFÆRNIMAT
NÁNARIUPPLÝSINGARÁ IDAN.IS
Raunfærnimat miðar að því að meta færni og þekkingu
sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið. Að loknu
raunfærnimati fara þátttakendur í skóla og ljúka því námi
sem eftir stendur til að útskrifast.
Inntökuskilyrði í raunfærnimat er 5 ára
starfsaldur í greininni og 25 ára lífaldur.
Þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig!
Nánari upplýsingar um raunfærnimat er að finna á
http://idan.is/raunfaernimat eða með því að senda
fyrirspurn á radgjof@idan.is.
D
A
G
SV
ER
K
.IS
/
IÐ
A
N
01
14
HEILSURÉTTIR
Fullir af trefjum, próteinum og góðum kolvetnum.
Kryddaðir með ferskum hvítlauk, engifer og chilli.
Án salts og sykurs.
Eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti
Orka, kkal 92 Prótein 10,8 gr Kolvetni 10,2 gr Fita 1,4 gr
980 | 1340
065
Veitingahús Nings eru opin alla daga frá 11:30 til 22:00 - Suðurlandsbraut | Hlíðarsmári | Stórhöfði | www.nings.is
Toppur
99
kr.
með öllum
heilsuréttum Nings
í Janúar 2014